Þjóðlíf - 01.06.1989, Síða 49
HEILBRIGÐISMÁL
grein læknavísinda
þjáningar eða lengja líf sjúklinga sem haldnir
eru ólæknandi sjúkdómum. Margir eru hins
vegar andvígir því að nýta fósturvefi í sama
tilgangi. Eflaust er þetta að miklu leyti vegna
þess að fósturvefir eru, ólíkt vefjum sem
fengnir eru úr líkum fullorðinna, oft fengnir
vegna ákvörðunar móður um að ljúka með-
göngu með fóstureyðingu.
Sumir óttast að notkun fósturvefja í lækn-
isfræðilegum tilgangi hvetji
konur til að gangast undir
fóstureyðingu sem þær
myndu annars ekki gera.
Margir þykjast sjá það fyrir
að konur verði þungaðar
eingöngu í þeim tilgangi að
láta síðan eyða fóstrinu
gegn greiðslu til að nota
megi vefi þess í lækninga-
skyni. Hætta er á því að far-
ið verði að líta á fóstur ein-
göngu sem læknisfræðilega
afurð og legið sem fóstur-
verksmiðju. Pví hafa verið
settar strangar reglur um
það í Bandaríkjunum að
ekki megi undir nokkrum
kringumstæðum umbuna
eða greiða konum fyrir fóst-
ur sem þær ákveða að láta
eyða.
Sömuleiðis er tekið fyrir
það að læknir sem fram-
kvæmir fóstureyðingu fái
nokkuð fyrir sinn snúð. Það
er gert til að koma í veg fyrir
að læknir verði hlutdrægur
þegar kona ráðfærir sig við
hann um hvort hún eigi að
láta eyða fóstri eður ei.
Sams konar reglur gilda al-
mennt um líffæri, bannað er
að selja þau úr lifandi fólki
jafnt sem látnu. Á sama hátt
er óheimilt að kona gefi
fósturvefi í þeim tilgangi að
nota þá í þágu einhvers til-
tekins sjúklings.
Siðfæðilegar spurningar
eins og þessar sem tengjast
notkun vefja úr fóstrum sem
hefur verið eytt hafa gert
það að verkum að mælt er
með því að ekki verði not-
aðir vefir úr öðrum fóstrum
meðgöngu og fimmtungur fósturláta á næstu
þremur mánuðum þar á eftir stafa af litn-
ingagöllum. Ennfremur hafa ýmsir sýklar
verið tengdir fósturláti, þ.á.m. stórfrumu-
veirur (cytomegalovirus), herpesveirur og
rauðhundaveira. Þessir sýklar eru þekktir
fósturskaðvaldar. Að sjálfsögðu er til einsk-
is, ef ekki til skaða, að flytja sýktan eða
gallaðan fósturvef í fólk.
Augljóslega eru þessi mál margslungin og
erfið. En samkvæmt niðurstöðum nefndar-
innar sem minnst var á hér að ofan telja
sérfræðingar ekki siðferðislega rangt að nota
vefi úr mannsfóstrum til rannsókna og lækn-
inga ef tilteknum, ströngum skilyrðum er
fullnægt.
“hþ
(Byggt á N.E.J. of Med.)
MENTk
p£ Lh \\t&
Smenuty
FðfTHtLfj
YÆ
SpkeFFr
ÝAK lWTAr»;(í
foerui
(iS
Franski læknirinn dr. Touraine skýrir frá aðferðinni sem beitt var þegar ónæmisfrumum
tveggja fóstra sem hafði verið eytt var komið fyrir í Davíð meðan hann var enn í móðurkviði.
Lífsbjörg Davíðs
Lífi lítils drengs hefur eftil vill verið bjargað með fósturvefjalœkningum
í júní í fyrra var söguleg aðgerð
framkvæmd í Lyon í Frakk-
landi. Hún fólst í því að sjö ml
af vökva með u.þ.b. 16 milljón-
um ónæmisfruma úr lifur og
hóstakirtli tveggja fóstra sem
hafði verið eytt var sprautað í
naflastreng þrjátíu vikna gam-
als fósturs í móðurkviði. Þetta
var gert til að reyna að bjarga
fóstrinu sem hafði erft banvæn-
an galla (bare lymphocyte
syndrome) sem veldur því að
ónæmiskerfið er óvirkt. Hinir
verðandi foreldrar höfðu áður
eignast barn með sama sjúk-
dóm en það dó sjö mánaða
gamalt þrátt fyrir vefjaflutning
eftir fæðingu.
í stað þess að eyða fóstrinu
eða reyna sömu meðferð og
mistókst á fyrra barninu ák-
váðu foreldrarnir samkvæmt
ráði lækna að reyna þá aðferð
sem lýst var hér að framan.
Barnið sem heitir Davíð fædd-
ist í ágúst og er því núna níu
mánaða gamalt. Hann þarf
reyndar að dvelja í sótthreins-
aðri plastkúlu en ónæmiskerfi
hans virðist vera að ná sér.
Blóðsýni gefa til kynna að að-
fluttu frumurnar hafi fjölgað
sér í lifur, milta og beinmerg
Davíðs. Ef allt gengur vel ætti
hann að losna úr sótthreinsuðu
prísundinni fyrir haustið.
Saga Davíðs er aðeins eitt
dæmi um hugsanlega nýtingu
fósturvefja til lækninga á erfða-
sjúkdómum en hún bendir jafn-
framt á siðferðislega erfiðar
hliðar þessarar greinar læknis-
fræðinnar.
-hþ
(Byggt á TIME)
en þeim sem til falla við
eðlileg fósturlát. En málið
er ekki svo einfalt. Vitað er
að um helmingur fósturláta
á fyrstu þrem mánuðum
49