Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 53

Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 53
VIÐSKIPTI Samruni fyrirtækja Samrunabylgja yfir ísland. Oft og tíðum vafasamur ávinningur Fjöldi fyrirtækja hefur runnið saman við önnur og margir telja að árið 1989 verði „ár samrunans". Oft og tíðum er ríkisvaldið látið fjármagna samruna og miklum vafa undir- orpið hvort raunveruleg hagkvæmni er af samrunanum þegar upp er staðið. Fyrsta dæmið er af tveimur fiskvinnslufyr- irtækjum á Suðurlandi sem sameinast undir nýjum hatti. Markmið beggja fyrirtækjanna er að samnýta eignir, sérhæfa framleiðslulín- ur og draga að nýtt fjármagn. Annað dæmið er af tveimur alhliða flugfé- lögum sem ræða um sameiningu að undirlagi ríkisstjórnar. Markmið annars er að forða sér frá rekstrarstöðvun, koma eignum í verð og bjarga fjármunum eigenda. Markmið hins: að auka markaðshlutdeild sína og markaðsvald. Þriðja dæmið er af fyrirtækjum í ólíkum starfsgreinum, gosdrykkjaverksmiðju sem með beinum kaupum sameinar útgáfufyrir- tæki rekstri sínum. Markmið kaupanda: að minnka skattgreiðslur sínar með því að draga tap af reksri keypta fyrirtækisins frá hagnaði. Samruni íslenskra fyrirtækja — og hug- Jónas Guðmundsson hagfrœðingur skrifar: myndir um samruna — tekur á sig sig fjöl- breyttari myndir með hverjum mánuðinum sem líður. Aldrei hafa fleiri fyrirtæki samein- ast, t.d. fékk hlutafélagaskrá tilkynningar um nálægt þrjátíu slík tilfelli fyrir síðustu áramót. Og enn má gera ráð fyrir að fjöl- breytni og tíðni muni aukast þegar líður á árið, enda hefur því verið spáð að einsog árið 1988 var ár gjaldþrotanna þá verði árið 1989 ár samrunans í íslensku atvinnulífi. Því hefur verið fleygt að samdrátturinn í íslensku efnahagslífi á liðnum mánuðum hafi kallað á samruna fyirtækja; nauðsynlegt hafi verið að sameina fyrirtæki til að byggja upp sterkari framleiðslu- og þjónustueiningar, sem síðan gætu dregið að sér nýtt fjármagn, m.a. frá ríkinu. Samruni hefur þannig verið útmálaður sem nauðvörn fyrirtækja í krögg- um. Það má vissulega til sanns vegar færa að stundum getur sameining leitt til betri árang- urs í rekstri, og því sé réttlætanlegt að til samruna hafi verið stofnað í þeim tilgangi — sérstaklega í útflutningsgreinum. En fleira kemur til. Sameining fyrirtækja hefur í tímans rás verið jafn algengt fyrirbæri í efnahagslegum uppsveiflum og niðursveiflum. Samruni, hvort sem hann verður með með stofnun sérstaks fyrirtækis um rekstur tveggja (eða fleiri) eða yfirtöku eins fyrirtækis á öðru. Verða bankarnir næstir ? Margir telja að árið 1989 verði „ár samrunans" hefur verið leið fyrirtækja til að styrkja stöðu sína á markaði; auka markaðshlutdeild, ná markaðsvaldi. Þannig hefur verið litið á sam- runa sem stórvirkt tæki fyrirtækja til vaxtar á vaxandi mörkuðum. Það er líka athyglisvert að sameining fyrirtækja hérlendis hefur ekki verið bundin við þær greinar sem verst hafa orðið úti á samdráttartímum. Markaðsvald Víða á Vesturlöndum hafa stjórnvöld lagt sig fram um að fylgjast með breytingum á markaðsaðstæðum, þ.m.t. þeim sem verða vegna samruna fyrirtækja. Fyrstu hringa- myndunarlög Bandaríkjanna voru sett í kjöl- far samrunabylgju, þeirrar fyrstu þar í landi, á síðasta áratug nítjándu aldar. Þá sameinuð- ust mörg fyrirtæki innan sömu atvinnugrein- ar — og stórfyrirtæki eins og Stcmdard Oil og U.S. Steel urðu til. „Láréttursamruni", sam- runi fyrirtækja úr sömu atvinnugrein, er sér- staklega til þess fallinn að minnka sam- keppni og auka markaðsvald; breyta mark- aðsaðstæðum úr samkeppni í fákeppni eða einokun. Bandarísk lög hafa síðar verið hert og 53

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.