Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 72
Harður slagur —
Ford ættin vill aftur
vera með
Ford Motor Company hefur
aldrei gengiö betur en í fyrra — ef
miðað er við reikninga undanfar-
in 60 ár. Veltan í fyrra jókst um
15.7% frá árinu áður — og var
92.5 milljarðar dollara. Aðal-
keppinauturinn General Motors
var fyrir örfáum árum tvöfalt
stærri en er nú einungis með um
þriðjungi meiri veltu. Þetta er
þriðja árið í röð, sem Ford skilar
meiri hagnaði en General Motors
og í janúar sl. fóru í fyrsta skipti í
60 ár fleiri bílar af færiböndum
Fordverksmiðjanna en General
Motors.
Frá því árið 1979 þegar Henry
Ford II. lét af störfum aðalfor-
stjóra eftir 34 ára stjórnartíð, hef-
ur fyrirtækinu vegnað vel. Þá var
fyrirtækið reyndar nærri gjald-
þrota en við stjórn tóku óháðir
aðilar — utan Ford-fjölskyldunn-
ar. Frá 1985 hefur Donald Peter-
sen danskættaður maður rúm-
lega sextugur verið aðalforstjóri
og er talinn standa fremst í
bandaríska bílaiðnaðinum um
þessar mundir. Fyrirtækið hefur
sífellt bætt stöðu sína. Og nú eftir
að það hefur komist á græna
grein hafa meðlimir Ford-fjöl-
skyldunnar aftur lýst áhuga sín-
um á að komast í forstjórastól-
ana. Henry Ford stofnaði fyrir-
tækið árið 1903 og stýrði því til
1947. Henry Ford II. barnabarn
hans tók við 28 ára gamall og sté
upp úrforstjórastólnum 1979. Nú
hafa sonur Henrys Fords II. —
Edsel Ford II.(40 ára) og frændi
hans, William Clay Ford jr., lýst
yfir áhuga sínum á að taka við
toppstöðum í fyrirtækinu þegar
Petersen hættir árið 1991.
Petersen og nánustu sam-
starfsmenn hans eru ekki yfirsig
hrifnir af þessari hugmynd. „Við
viljum ekki nýja Neróa“, er haft
eftir einum framkvæmdastjórn-
armanna. Þeir telja að tekist hafi
að búa til samstillta
framkvæmdastjórn sem verði
ógnað ef fjölskyldan komi á ný til
stjórnunarstarfa. Framundan eru
því átök milli framkvæmdastjórn-
ar og hluthafa.
Ford-fjölskyldan ræður yfir
hlutabréfum sem hafa áttfalt at-
kvæðisvægi á við önnur — þetta
Frændurnir Edsel Ford og William Clay jr. eru „lágt settir“ innan fyrirtækisins þessa dagana.
„Sterki maðurinn" í fjölskyldunni, William Clay Ford, hefur hins vegar lýst því yfir að drengirnir
muni fljótlega komast á toppinn.
Hinn danskættaði Donald Pet-
ersen, forstjóri Ford, hefur
hafið áróðursstríð gegn ættar-
veldinu og leggur sig í líma við
að halda frændunum út í kuld-
anum.
eru svokölluð B-hlutabréf sem
hafa þennan rétt samkvæmt
stofnskrá hlutafélagsins. Þegar
þau lenda í höndunum á ein-
hverjum utan Ford-fjölskyldunn-
ar glata þau þessu áttfalda vægi
sínu. En það er þessi þyngd
Fordhlutabréfanna sem er
grundvöllurinn að nýrri sókn fjöl-
skyldunnar innan fyrirtækisins.
Þrátt fyrir kostnaðarsama
Henry Ford ll.fyrirframan mál-
verk af hinum goðsagna-
kennda Henry Ford, stofnanda
fyrirtækisins.
hjónaskilnaði, mikla dreifingu
erfðanna, og dýrkeypt munaðar-
líf margra Fordara á fjölskyldan
enn yfirað ráða um 40% atkvæö-
isréttar í Ford fyrirtækinu. Og það
sem mikilvægara reynist, fjöl-
skyldan notar atkvæðamagn sitt
eins og væri allt á einni hendi.
Henry Ford II. átti bróður, Willi-
am Clay Ford, sem nú er 64 ára
gamall og hefur löngum verið
„sterki maðurinn“ í fjölskyldunni.
Hann hefur frá 1987 farið með
atkvæði fjölskyldunnar á hlut-
hafafundum hjá Ford. Hann
hafði byggt upp veldi fjölskyld-
unnarhægt og rólega, m.a. kom-
ið í veg fyrir sölu hlutabréfa úr
höndum hennar. Þegar hann lét
nýlega af störfum lýsti hann því
yfir að frændi hans Edsel Ford og
sonur hans og nafni William Clay
jr. myndu fljótlega taka við topp-
stöðum hjá fyrirtækinu. Þessir
tveir drengir eru nú frekar lágt
settir og Petersen forstjóri vill
halda þeim niðri. Hann hefur
þegar hafið áróðursstríðið og
leggur sig í líma við að halda
þeim frá aðalstjórn fyrirtækisins.
Á sl. ári gerðu þeir frændur kröfu
um að fá betri stöður og meiri
áhrif í fyrirtækinu, en Petersen
hefur bent á að þeir hafi ekki
skapað þetta fyrirtæki. „ Ég dáist
í sjálfu sér að því að þeir skuli
vinna að því að komast eins langt
og þeir geta“, sagði Petersen.
Og með yfirlýsingum í þessum
dúr hefur verið tekist á innan
fyrirtækisins. Til að fyrirtækið
lendi ekki í höndunum á Fordum
á þessari öld hefur Donald Peter-
sen á síðustu misserum ráðið í 13
af 15 æðstu stöðum fyrirtækisins
til aldamóta. „í störf hjá Ford-
fyrirtækinu er ekki ráðið eftir
hlutafé heldur getu“, er haft eftir
Petersen. Hinsvegarteljamargir
að Fordarar muni ekki bíða til
aldamóta..
72