Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 64
64 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
þessar mundir er verið að innleiða nýtt
tölvukerfi sem ætlað er að fylgja þessu enn
betur eftir þannig að skýr mynd fáist af
afkomu hvers merkis fyrir sig. Aðspurð um
fjárfestingarþörf félagsins á þessum tíma
segir Erna að hún sé í sjálfu sér ekki mikil.
Við sameiningu margra merkja hafi safnast
saman mikið af rekstrar vörum. Það hafi
meðal annars leitt til þess að þegar Hyund
ai opnaði í Garðabæ hafi verið hægt að
sækja á lager mikið af þeim rekstrarvörum
sem hafi þurft. „Á meðan markaðurinn
stækkar ekki miklu meira fjárfestum við
ekki meira. Við eigum hins vegar von á að
hann taki við sér að lokum.“
svEiFlur tíðar
Bílar eru í senn áhugamál og ástríða hjá
mörgum. Líklega hefur það valdið því að
ýmsum hefur þótt rekstur á bílaumboði
spennandi í gegnum tíðina. Á köflum
virðist hins vegar sem það sé ekki á
valdi rekstraraðilanna hvernig reksturinn
geng ur, annaðhvort komi spennandi eða
óspenn andi bílar frá framleiðendum og
svo ræður efnahagsástandið og skattlagn
ing líklega mestu um hvernig reksturinn
gengur. Erna tekur að hluta til undir þessa
lýsingu en bendir á að reynt hafi verið að
bregðast við áhrifum ytri aðstæðna með
margvíslegum hætti. „Menn hafa reynt
að byggja þjónustuhliðina meira upp til
að draga úr þessum sveiflum. Sveiflur í
stærð umboðanna orsakast oftast vegna
breytinga á sölusviðinu, miklu frekar en á
þjónustusviði. Stærstur hluti starfsmanna
er á þjónustusviði og menn hafa reynt að
halda þeim óháð sveiflum. Það kemur til af
því að fyrirtækin þurfa að reyna að lifa af
bæði góðu og slæmu árin. Menn verða að
reyna að spara til mögru áranna, sem koma
alltaf inn á milli. Þá skiptir máli að ætla sér
ekki of mikið og ég þótti stundum dálítið
gamaldags á því sviði. Þegar uppgangur
inn var sem mestur vildu framleiðendur
gjarnan að við afmörkuðum hvert og eitt
merki meira. Íslenski markaðurinn er hins
vegar svo sveiflukenndur og það þarf að
selja ansi marga bíla til þess að þetta borgi
sig. Því verður að stíga varlega til jarðar.“
Af þessu leiðir að eiginfjárhlutfall verður
að vera sterkt en Erna telur þó að sveigjan
leikinn skipti enn meira máli. „Það sem
hefur hjálpað til núna er að megnið af þeim
bílum sem við seljum er framleitt í Evrópu.
„Á meðan mark
aðurinn stækkar
ekki miklu meira
erum við ekki að
fjárfesta meira. Við
eigum hins vegar
von á að hann taki
við sér að lokum.“
erna Hjá bL
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
26
88
0
2
/2
01
3
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
■ Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
■ Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
■ Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair.
■ Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair
njóta þess í hagkvæmari rekstri,
betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða,
rafmagnsinnstunga fyrir tölvu.
ECONOMY COMFORT
Eigandi og forstjóri Bl, stærsta bílaumboðs landsins.
Stjórnarformaður Sjóvár og hluthafi.
Í stjórn Haga.
Ræðismaður Suður-kóreu á Íslandi.