Frjáls verslun - 01.01.2013, Qupperneq 84
84 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
stuttur ferðamannatími vandamál
„Vandinn við íslenska ferðaþjónustu er
of stuttur háannatími – rétt um átta vikur
– og of fáir staðir. Langflestir ferðast um
Suðurland og suðvesturhornið. Því hefur
komið upp sú hugmynd hvort ekki sé
rétt að rukka til þess að hægt sé að byggja
upp viðkomandi svæði. Við höfum verið
fylgjandi því að þeir borgi sem njóti. Þetta
er ekki spurning um greiðslu inn á hvern
einasta stað eða opið svæði hér á landi.
Þetta snýst fremur um að innheimta þar
sem nú er átroðningur og brýnt að hafa
meiri stjórn á fjöldanum.“
Birkir nefnir þar vinsæla staði eins og
Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Með gjald töku
megi hafa meiri stjórn á umferð um við
kom andi svæði og vernda þau og varðveita
betur. Önnur lönd hafa glímt við svipuð
vandamál og brugðist við með gjaldtöku –
bæði til að vernda og byggja upp. „Framtíð
íslenskrar ferðaþjónustu veltur á því að fá
fleiri ferðamenn á tímabilinu frá september
til maí og Ice land air vinnur markvisst að
því.“
En er líklegt að þetta markmið um ferða
menn utan sumartímans náist? Það hefur
verið á oddinum í mörg ár. Birkir telur svo
vera: „Við höfum allt til þess að ná þessu.
Ef við horfum t.d. á finnska módelið sjáum
við að það koma fleiri erlendir ferðamenn
til Finnlands á veturna en sumrin. Uppi
í Lapplandi, nánar tiltekið Rovaniemi, er
mikil vetrarferðamennska. Allt sem þar
er höfum við hér á Íslandi. Nefni ég þar
sérstaklega Akureyri þar sem við höfum
aðstöðu til að vera á skíðum og njóta
náttúrunnar. Þar eru mikil tækifæri. Þetta
snýst bara um að standa skynsamlega að
málum og framkvæma hlutina rétt – rétt
markaðssetning er lykillinn að árangri.“
vantar stefnumótun í
atvinnugreinina
Birkir segir að íslenska ferðaþjónustu hafi
lengi vantað stefnumótun og aðgerðar áætl
un. Mikilvægt sé að vinna samkvæmt að
minnsta kosti tíu ára stefnumótun hverju
sinni en eins og staðan er núna sé hún ekki
nógu skýr, sérstaklega þegar horft er til
ört vaxtandi fjölda ferðamanna. „Við erum
þó á réttri leið enda ríkir mikil samstaða
um það að auka ferðamannastraum yfir
veturinn.“
Á síðasta ári fjölgaði ferðamönnum um
19,6% og 18,0% árið á undan. Það megi
meðal annars þakka auknu framboði á
ferðum til landsins en ný flugfélög eru
byrjuð að fljúga hingað. Birkir segist ekki
sjá þessa auknu samkeppni sem vandamál
fyrir Icelandair; félaginu hafi gengið vel
að auka eigið framboð og sölu. „Farþegar
koma hins vegar ekki af sjálfu sér heldur
þarf markaðsstarfið að vera stöðugt og
öflugt. Átakið Inspired by Iceland gafst
sérstaklega vel. En ferðaþjónustan þarf
stöðugt að hamra járnið og kynna Ísland
og sérstöðu þess. Það er ekki sjálfgefið að
fólk stökkvi til Íslands þótt ferð sé í boði.“
Og vissulega eru ferðir í boði. Icelandair
hefur stöðugt aukið ferðir til og frá Íslandi,
jafnframt því sem nýir áfangastaðir hafa
komið inn í leiðarkerfi félagsins. Icelandair
hefur fjölgað áfangastöðum sínum í
Norð urAmeríku um helming síðan 2008,
nokkuð sem ekki er víst að allir átti sig á.
„Okkar áhersla hefur verið á að auka
tíðni yfir vetrartímann og bæta við fleiri
heilsársáfangastöðum. Þegar við hefjum
flug inn á staði eins og Denver, en þangað
byrjuðum við að fljúga síðasta vor, sækjum
við inn á fjölmenn svæði sem leggja
grunninn að auknu flæði farþega yfir hafið.
Þannig er hægt að byggja upp aukna tíðni
til landa eins og Frakklands. Með aukinni
tíðni inn á París fást t.d. fleiri franskir
ferðamenn hingað til lands, ekki síst yfir
vetrarmánuðina. Þetta er módelið okkar –
að leita að jaðarmörkuðum ytra til að geta
aukið tíðnina til Íslands og frá. Með tíðari
ferðum til Denver fjölgum við ferðum
inn á meginland Evrópu yfir veturinn.
Vetrarflug til München er líka hluti af
þessari uppbyggingu og það sama á við
um eldri áfangastaði eins og Amsterdam
og Frankfurt. Aukin tíðni til stórborga
vestra tryggir fleiri ferðamenn til Evrópu.
Ef frönskum ferðamönnum býðst að koma
fjóra daga í viku í stað eins þá koma fleiri,
aukin tíðni stækkar kaupendahópinn.“
tveir milljarðar í markaðsstarf
Icelandair eyðir um tveimur milljörðum
króna á ári í auglýsingakostnað erlendis.
„Markaðssetningin er lykillinn að vexti
okkar. Framboðið selur sig ekki sjálft þó
að sá misskilningur sé útbreiddur. Margir
virðast halda að Ísland sé svo vinsælt að
það bíði fólk í röðum úti á flugvelli eftir því
að komast hingað! Það er ekki svo einfalt
og við finnum strax fyrir því ef við drögum
úr markaðssetningu á tilteknum stöðum,
þá dregur strax úr bókunum. Okkur finnst
að markaðsherferðin „Ísland allt árið“ hafi
tekist mjög vel, meðal annars vegna umtals
meðal fólks. Þar hafa samfélagsmiðlarnir
dugað vel til að dreifa ferðasögum.
Herferðir sem ganga út á þetta geta verið
mjög hagkvæmar.“
Birkir tekur sem dæmi um árangursríka
markaðsherferð þegar ákveðið var að
bregða á leik og fá fólk til að velja nýtt nafn
á Ísland og um leið dreifa sögum af reynslu
sinni af „vörumerkinu“ Íslandi. Þar hafi
lítill leikur fengið mikla athygli og hjálpað
„Bæði þessi verkefni
hafa tekist vel en
þau sýna líka að það
þarf þolinmæði til
að byggja upp. Til að
auka ferðamennsku
á veturna þarf að
skipuleggja viðburði
um leið og annað
sem einkennir landið
er kynnt; svo sem
hreina loftið, veturinn,
norður ljósin, fiskurinn
og vatnið.“
„Margir halda að
Ísland sé svo vinsælt
að það bíði fólk í
röðum úti á flugvelli
eftir því að komast
hingað! Það er ekki
svo einfalt og við
finnum strax fyrir
því ef við drögum úr
markaðssetningu á
tilteknum stöðum.“
sjóðHeitt ÍsLand