Listin að lifa - 01.03.2004, Side 28
Nýtt leikrit hjá leikfélagi eldri borgara í Reykjavík:
Rapp&
rennilásar
Ennþá spinna Snúður og Snælda fram af snældu sinni,
nú nýtt leikrit eftir Cunnhildi Hrólfsdóttur sem ber hið
forvitnilega nafn - Rapp og rennilásar. Leikstjóri er
Bjarni Ingvarsson.
Leikritið er samið fyrir leikfélagið Snúð og Snældu.
Leiksviðið er sumarbústaður á Suðurlandi. Þar áformar
hópur fólks, sem fermdist saman fyrir 55 árum, að hitt-
ast. Laumulegur náungi sést á ferli í bústaðnum, en lætur
sig hverfa þegar gestina ber að garði.
Margt hefur drifið á daga gömlu fermingarsystkin-
anna sem rifja upp horfna tíð með trega. Leikurinn æsist
þegar vinirnir verða varir við óvæntar mannaferðir við
bústaðinn. Spenna, misskilningur, rómantík og söngur.
Allt þetta hefur leiksýningin upp á að bjóða. Leikararnir
níu sýna tilþrifamikinn leik og lífsgleði í túlkun sinni.
Alls taka þátt í sýningunni á annan tug eldri borgara og
er meðalaldur þeirra 78 ár.
Leikarar eru: Aðalheiður Guðmundsdóttir, Theódór
Halldórsson, Hannes Pétursson, Hörður S. Óskarsson,
Sigrún Pétursdóttir, Vilhelmína Magnúsdóttir, Aðalheið-
ur Sigurjónsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Þorvaldur Jóns-
son.
Sýningar í Ásgarði, Glœsibœ, á sunnudögum kl. 15.00
og föstudögum kl. 14.00. Miðapantanir í síma: 588-
2111; 568-9082 og 551-2203.
""j ' 0 "
Étsaumur - jllerkíngar eljf.
Þarftu aö láta merkja?
r
Utsaumur írúmfatnað,
handklæði, fatnad og margt fleirra.
Hrauntungu 45
200 Kópavogi
sínti 554-4866
'H,< i ■
m
/ * 4 -M—. v v 1. .
Lifið hvern dag
eins oglífið væri^
að hefjast... m
og njótið ávaxtanna!
er afl framfara..
KB Borgarnesi ehf. - Stórmarkadur í hjarta Borgarness
28