Listin að lifa - 01.03.2004, Qupperneq 70
Hellismannasaga
Ein þekktasta þjóðsagan í Borgarfirbi greinir frá 18 skólapiltum frá Hólum sem tóku sér bólfestu í
Surtshelli og höfbu meb sér 2 stúlkur frá Kalmanstungu. Hellismenn rændu saubfé af heibum,
svo ab slæmar heimtur urbu hjá bændum, en enginn þorbi ab hætta sér í hendur Hellismanna.
Bóndasonurinn í Kalmanstungu gekkst
þá undir að svíkja Hellismenn.
Honum tókst að safna saman vopn-
færum mönnum í sveitinni og koma
að Hellismönnum sofandi í Vopnalág.
Hellismenn náðu ekki að grípa til
vopna og gátu ekki staðist fjöldann,
en margir náðu að flýja upp úr lág-
inni. Eiríkur, sem Eirrksjökull er
kenndur við, fór á handahlaupum upp
undir jökul. Svo nærri voru bændur,
að einn náði að höggva af honum fót-
inn í öklastað. Einkur komst upp á
Eiríksgnípu og kvað:
Hjartað mitt er hlaðið kurt;
hvergi náir skeika,
með fótinn annan fór ég á burt;
fár mun eftir leika.
Mörg örnefni í Borgarfirði bera nöfn
Hellismanna eftir því hvar þeir voru
felldir, eins og: Þorvaldsháls, Geir-
aldsgnípa, Atlalækur, Asgeirs-
brunnur, Þiðrikstjörn, Þórishóll,
Vilmundarsteinn, Sveinsstígur, Þor-
móðslækur, Krákslág, Gíslabrekka,
Gunnlaugshöfði og Mundaflöt.
Teiknarinn okkai; Ragnar Lái; gefur
okkur innsýn í bardagann í Vopnalág
- og inn í Surtshellinn þegar bónda-
sonurinn í Kalmanstungu þykist vilja
ganga í félag með hellismönnum.
Nýlegar rannsóknir á hraunlögum í
Borgarfirði sýna að hraunið hefur lík-
lega runnið á landnámsöld. Tilgátur
eru því uppi um að hitinn í hrauninu
gæti hafa reynst hitaveita fyrir Hellis-
búa í Surtshelli.