Fréttatíminn - 09.01.2015, Page 60
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Bakhliðin
Góður veiði-
maður og
viskubrunnur
Nafn: Ásta Þórarinsdóttir
Aldur: 44 ára.
Maki: Gunnar Viðar lögfræðingur.
Börn: Kristín 16 ára og Dagur Ingi 10
ára.
Menntun: BS í hagfræði og MS í
eignastýringu.
Starf: Framkvæmdastjóri Evu ehf. sem
er þróunarfélag á velferðarsviði og
móðurfélag Sinnum heimaþjónustu.
Fyrri störf: Var framkvæmdastjóri
Sinnum þar til haustið 2014. Starfaði í
ellefu ár hjá bankaeftirliti Seðlabanka
Íslands og síðar Fjármálaeftirlitinu
(1994-2005). Í styttri tíma hjá Thule
investments, Kópavogsbæ og Lánasjóði
íslenskra námsmanna.
Áhugamál: Heilsa og hreysti, golf, kór-
söngur, fjallgöngur og skemmtilegt fólk.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Stjörnuspá: Þú átt stóra prófraun fram
undan og þarft á öllu þínu að halda til
þess að leysa hana. Ekkert er of mikil
fyrirhöfn.
Á sta er einstaklega dásamleg manneskja að öllu leyti,“ segir Gunnar
Viðar, eiginmaður Ástu. „Hún
skilar alltaf góðu verki í öllu sem
hún tekur sér fyrir hendur og
hefur einstakar gáfur á mörgum
sviðum. Hún er góður veiðimaður
og hefur náð góðum árangri í
golfi þrátt fyrir að byrja seint,“
segir Gunnar. „Hún er með blítt
og gott lundarfar og hefur áhuga
á öllu. Maður kemur aldrei að
tómum kofanum hjá Ástu,“ segir
Gunnar Viðar.
Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði
nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) í
vikunni, en skipunartími fyrri stjórnar
rann út um áramót. Ásta Þórarinsdóttir
var skipuð formaður stjórnar FME. Ásta
hefur setið í mörgum stjórnum og nefnd-
um bæði á einkamarkaði og hjá hinu
opinbera, s.s. hjá Jöklum – verðbréfum,
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, ISB Hold-
ing, LÍN og Yfirfasteignamatsnefnd.
Hrósið ...
... fá tónlistarmennirnir Ólafur
Arnalds og Arnór Dan Arnarson
sem eiga lag í hasarmyndinni Taken
3 sem frumsýnd er um helgina.
Ásta Þórarinsdóttir
MARSHALL
HÁTALARI
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Frábær hljómgæði
Verð frá 69.900,-