Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Page 4

Fréttatíminn - 23.01.2015, Page 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur SV-átt, hVaSS um kVöldið. Él S- og V-til, en lÉttir til fyrir norðan og auStan. höfuðborgarSVæðið: Él og hiti um frostmark. bjart og Stillt framan af, en hVeSSir og hlánar um kVöldið. höfuðborgarSVæðið: Él fyrst, sól um miðjan dag, en rignir um kvöldið . hVaSSt með úrkomu, rigningu og Síðar Éljum. höfuðborgarSVæðið: rigning og Él síðdegis og kólnandi. umhleypingar og úrkomusamt Boðið verður upp á sýnishorn af mörgum tilbrigðum vetrarveðráttunnar. eiginlega allt nema köld n-átt. tvær lægðir stefna á landið og fara hratt yfir með snöggum veðrabrigðum. vindastamt og úrkoma sem fellur ýmist sem rigning, slydda eða snjókoma. at- burðarrásin verður hröð eftir því, en á laugardag yfir miðjan daginn er að sjá sem veður verði skaplegt um stund og sólin sýni sig meira að segja. 1 -1 -3 -2 1 -1 -4 -7 -8 -3 1 -1 1 -1 1 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is  vikan sem var rekinn vegna fjárdráttar Björgvin g. sigurðsson var settur af sem sveitarstjóri Ásahrepps vegna fjárdráttar. Björg- vin notaði debetkort hreppsins til að greiða fyrir vörur til eigin nota, svo sem hangikjöt, bækur og grænar baunir. Þá millifærði hann sjálfur 250 þúsund krónur á eigin reikning sem fyrirfram greidd laun. Björgvin hefur beðist afsökunar á framferði sínu og hefur hafið áfengismeðferð á vogi. Hrotubani vinsæll Yfir 150 ein tök af svo kölluðum hrotu­ bana, sem net versl un in Bsv býður upp á, hafa selst að undanförnu. um er að ræða hring sem sett ur er á litla fing ur fyr ir svefn inn og ætlaður til þess að stöðva eða minnka hrot ur. Með 100 milljónir í árslaun knattspyrnumaðurinn viðar örn kjartansson hefur ákveðið að ganga til liðs við kínverska félagið jiangsu guoxin-sainty. kínverska liðið greiðir norska félaginu vålerenga hátt í hálfan milljarð fyrir framherjann. viðar ætti að eiga fyrir salti í grautinn í framtíðinni því árs- laun hans í kína verða rúmlega 100 millj- ónir króna eftir skatt. Hún er eins og lampi „ragga er áberandi hávaxin og hún er næstum eins og lampi – ljómandi, brosandi og oftast með hálfblautt hár.“ Úr viðtali við sundkonuna Ragnheiði Ragnarsdóttur í DV. 1.980.209 krónur hefur gunnar einarsson, bæjar- stjóri í garðabæ, í laun á mánuði. Það jafnast á við laun forseta íslands. gunnar er launahæsti bæjarstjóri lands- ins, samkvæmt úttekt viðskiptablaðsins. Kominn á pólinn Pólfarinn Einar Torfi Finnsson náði á suðurpólinn í vikunni eftir 57 daga ferðalag.  gjaldtaka uppbygging Ferðaþjónustunnar a ðilar innan Samtaka ferða-þjónustunnar, SAF, sendu stjórn samtakanna bréf í vikunni þar sem ósk þeirra um að komugjöld yrðu tekin upp í stað náttúrupassa var komið á framfæri. Stjórnin brást hratt við beiðninni og fundaði með umræddum aðilum á miðvikudag. Þar fór umræða um komugjöld hæst auk virðisauka- skatts á ferðaþjónustuna, sem taka mun gildi frá næstu áramótum. Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri SAF, segir flesta félagsmenn vera á því að komugjöld séu einfald- asta og skilvirkasta leiðin. „Það hef- ur alltaf verið ljóst, ekki bara eftir eitt lögfræðiálit heldur fleiri, að það sé ekkert lagalega því til fyrirstöðu að komugjald verði sett á,“ segir Helga en frá því að umræða um tekjuöflun til uppbyggingar ferða- þjónustunnar hófst innan SAF hef- ur meirihluti félagsmanna lýst því yfir að komugjöld séu vænlegasti kosturinn. komu- og brottfaragjöld brjóta ekki í bága við lög Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráð- herra ferðamála, lagði fram frum- varp um náttúrupassa þann 28. nóvember 2014. Samkvæmt ráðu- neyti hennar eru komu- og brottfar- argjöld ekki fær leið þar sem þau yrðu flokkuð sem landamæragjöld og hvorki megi leggja þau á íbúa innan EES-svæðisins né í Schengen löndunum. Þessi niðurstaða ráðu- neytisins er þó ekki í samræmi við niðurstöðu lögfræðiálits sem SAF lét lögmannastofuna LEX vinna fyr- ir sig í september 2014 um álitaefni tengd komu- og brottfarargjöldum. Komugjöld til tekjuöflunar eru við lýði í nokkrum löndum innan svæð- isins, svo sem í Bretlandi, Þýska- landi og Frakklandi, svo ljóst er að undanþágur eru mögulegar. Sam- kvæmt lögfræðiálitinu brjóta um- rædd gjöld á flug-og skipafarþega ekki í bága við EES-samninginn, ef tryggt er að þau taki með sama hætti til millilanda- og innanlands- flugs. Einnig kemur fram í álitinu að aðildarríkjum sé frjálst að móta sína eigin stefnu í skattlagningu á ferðaþjónustu. ferðaþjónustan þarf fjármagn sem fyrst Niðurstaða lögfræðiálitsins hefur samt sem áður ekki orðið til þess að stjórn SAF beiti sér fyrir komu- og brottfarargjöldum og samkvæmt heimildum Fréttatímans hefur það skapað óánægju innan samtakanna, sem varð meðal annars til þess að fundað var nú í vikunni. Helga Árnadóttir segir málið vera mjög flókið og bendir á að auk laga séu til staðar alþjóðlegir sátt- málar og flugleiðalög sem getur tekið langan tíma að breyta. „Það eru sáttmálar, eins og til dæmis Chi- cago-sáttmálinn frá 1944, sem væri hægt að breyta ef stjórnvöld væru til í það. En þetta gæti tekið nokkur ár og miðað við þörfina núna fyrir fjármagn þá teljum við okkur ekki í stakk búin að bíða í svo langan tíma,“ segir Helga og bætir því við að aðalatriðið í huga stjórnarinnar sé að leysa málið og tryggja fjár- magn sem fyrst. Virðisaukaskattur á ferða- þjónustuna mun skila millj- örðum Auk komu- og brottfarargjalda var virðisaukaskattur á ferðaþjónust- una, sem tekur gildi frá og með næstu áramótum, ræddur. „Það er mjög eðlilegt að það sé skoðað al- varlega því ferðaþjónustan er að fara inn í virðisaukaskattskerfið og mun skila ríkissjóði milljörðum í viðbót- artekjur.“ Á sama tíma og stjórn og félags- menn SAF funda í Reykjavík um aðra valkosti en náttúrupassa ferðast Ragnheiður Elín Árnadótt- ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um landið til að kynna náttúrupass- ann á opnum fundum. Aðspurð út í óánægju SAF með náttúrupassan í kvöldfréttum RÚV þann 21. janú- ar sagði hún náttúrupassann vera farsælustu leiðina til tekjuöflunar þrátt fyrir að vera ekki gallalausa. Hún mun mæla fyrir frumvarpinu í þinginu þann 27. janúar næstkom- andi. halla harðardóttir halla@frettatiminn.is aðilar innan samtaka ferðaþjónustunnar vilja skoða möguleika á komu- og brottfarargjaldi enn betur. Félagsmenn funduðu í vikunni þar sem fjáröflunarleiðir voru ræddar og spurningunni velt upp hvort nauðsynlegt sé að leggja sérstakan skatt á ferðaþjónustuna þar sem hún muni skila milljörðum í ríkiskassann þegar virðisaukaskattur verður lagður á greinina innan árs. Vilja komugjöld en ekki náttúrupassa komu- og brottfaragjöld til tekjuöflunar eru við lýði í nokkrum löndum innan schengen og ees, svo sem í Bretlandi, Þýskalandi og frakklandi, svo ljóst er að undanþágur eru mögulegar. Mynd Getty. 4 fréttir Helgin 23.­25. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.