Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Síða 24

Fréttatíminn - 23.01.2015, Síða 24
M ér líður mikið betur. Ég vakna betur og er orku-meiri,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs- félags Akraness, sem hefur misst yfir 30 kíló á einu ári. „Ég hélt á einu af mínum sex barnabörnum um daginn sem var nýkomið úr mæðra- skoðun og vó 11 kíló. Eftir smá stund þreyttist ég og bað mömmuna að taka drenginn en hún benti mér þá á að ég hefði verið með sem sam- svarar þremur 11 kílóa drengjum utan á mér. Það þarf ekki að fjölyrða hvaða áhrif það hefur á heilsuna að losa sig við svona mikla þyngd,“ segir hann. Pabbar geta grátið Vilhjálmur tekur á móti mér á skrifstofu sinni við Sunnubraut á Akranesi. Þar blasa við myndir af syni hans heitnum, Óttari Arnari, sem lést þann 11. apríl í fyrra, að- eins þrítugur að aldri. Vilhjálmur skrifaði bréf til sonar síns tveimur dögum eftir að hann lést og birti á Facebook-síðu sinni. Þar skrifaði hann meðal annars: „Hér sit ég á skrifstofunni minni og skrifa þessi orð til þín og það hjálpar mér, trúðu mér. En mér er hugsað um lagið sem Helgi Björns söng „Geta pabb- ar ekki grátið“ Jú, pabbar geta svo sannarlega grátið því tárin streyma niður í hvert sinn sem ég slæ á lykla- borðið, en þetta hjálpar mér og það er gott.“ Vilhjálmur hélt auk þess erindi á alþjóðlega sjálfsvígsdeginum í fyrra og segir í raun komið gott af því að hann tali opinberlega um sonarmissinn. „Það sem ég vil vekja athygli á er að við erum árlega að missa tugi kornungra einstaklinga ár hvert vegna sjálfsvíga. Ég held að heilbrigðisyfirvöld og samfé- lagið allt þurfi að taka þessi mál til gagngerrar endurskoðunar. Það er greinilega eitthvað sem við erum að gera rangt og það ríkir þöggun um þennan málaflokk. Oft eru þetta ungir strákar sem í mikilli vanlíðan eða stundarbrjálæði og verða hvat- vísi sinni að bráð. Ég held að það sé ekkert vandamál svo stórt að ekki sé hægt að fá hjálp. Það þarf að efla forvarnir og lýðheilsu almennt. Við verðum að koma í veg fyrir að við séum að missa kornungt fólk,“ segir hann. Kílóin fuku Margir hafa haldið að Vilhjálmur hafi grennst þessi ósköp í kjölfar þess að missa son sinn en hann var byrjaður fyrr að taka mataræði sitt í gegn og hafði þegar misst um 10 kíló þegar sonur hans lést. „Sá at- burður hægði ekki á ferlinu. Mat- arlystin var ekki mikil, hreyfingin datt niður hjá mér í um tvær vikur. Þetta var mikið högg en ég ákvað að halda mínu striki, huga að mat- aræðinu og hreyfa mig reglulega.“ Vilhjálmur hafði um hríð hugsað um að hann yrði að léttast, heils- unnar vegna. „Ég er að verða fimm- tugur og þetta bara gekk ekki leng- ur. Ég var kominn yfir 123 kíló en nú er ég kominn niður fyrir 90 kíló.“ Steininn tók úr þegar Vilhjálmur sá myndir af sjálfum sér frá blaða- mannafundi sérfræðihóps um af- nám verðtryggingarinnar sem haldinn var 23. janúar í fyrra þegar hópurinn kynnti tillögur sínar en hann var meðlimur hópsins. „Þess- ar myndir voru út um allt. Ég vissi að ég hafði bætt á mig en það sló mig að sjá þessar mynd- ir af sjálfum mér og það ýtti sannarlega við mér. Það var um svipað leyti sem félagi minn í stjórn verkalýðsfélagsins skor- aði á mig og við fórum í keppni um hvor væri fljótari að ná af sér kíló- unum. Hann nefndi þá við mig að hann hefði verið að byrja á lágkol- vetnakúr. Ég var í fyrstu ekkert rosalega spennt- ur en ákvað að slá til. Þegar ég tek að mér ný verkefni þá tek ég þau með trukki. Ég fór á lágkolvetnamataræði og byrjaði að hreyfa mig og árangurinn lét ekki á sér standa. Kílóin byrjuðu að hrynja af mér og það var mikil hvatning að fylgjast með því. Fyrsti vikuna missti ég 1,6 kíló og 1,5 kíló þá næstu. Eftir átta og hálfan mánuð voru 33 kíló farin. Af því að ég birtist stundum í fjölmiðlum vegna vinnunnar þá var mér farið að bregða þegar ég sá gamlar myndir af mér. Nú snemma í janúar tók ég mig svo til og birti á Facebook saman nýja mynd af mér og árs gamla mynd,“ segir hann. Þegar Vilhjálmur skar kolvetn- in sem mest niður borðaði hann hreint skyr í morgunmat, fékk sér oft sjávarréttasúpu frá 1944 í hádegismat og borðaði á Subway þar sem hann fékk sér salat með skinku, osti og kjúklingi. „Ég leyfði mér á Subway að fá mér BBQ-sósu með. Á þessu mataræði má borða mikið af eggjum og kjöti, það þarf bara að sleppa kartöflunum. Þetta er auðveldara en margir gera sér grein fyrir. Ég miðað við að borða undir 50 grömmum af kolvetnum á dag og las innihaldslýsingar á öllum mat. Einföld kolvetni eru í mínum huga mjög varhugaverð fyrir okkur sem eigum í vand- ræðum með aukakílóin. Það kom mér á óvart hvað kolvetnin leynast víða. Fyrsta hálfa mánuðinn bók- staflega æpti líkami minn á meira kolvetni en eftir það var ég kominn yfir hjallann.“ Verkamaður að upplagi Bætt heilsa og meira þrek kemur Vilhjálmi vel bæði í lífi og starfi en fram undan er mikil barátta fyrir bættum kjörum verkafólks. „Ég tók við formennsku hjá Verkalýðsfélagi Akraness 19. nóvember 2003. Ég bý að því að hafa alla tíð verið verka- maður. Við hjónin vorum búin að eignast fjögur börn þegar við vorum 27 ára gömul og lífsbaráttan á þess- um tíma, þegar maður var að koma börnum sínum á legg, var gríðar- lega erfið. Ellefu ára gamall byrjaði ég að beita hjá föður mínum sem var útgerðarmaður, fjórtán ára var ég farinn að hengja upp skreið hér á Eyrinni og fara út á trillu með föður mínum. Ég hef verið á svokölluðum vertíðarbátum og ég hef verið bæði háseti og kokkur á togara. Kokk- inn sótti ég um til að fá plássið jafn- vel þó ég kynni varla að sjóða vatn. Ég var sjö ár á Akraborginni og við sigldum hér á milli Reykjavíkur og Akraness. Þar var ég þar til 10. júlí 1998 þegar Akraborgin var lögð nið- ur. Ég fór með henni síðustu ferð- ina. Eftir það fór ég síðan að vinna í gjaldskýlinu við Hvalfjarðargöng og vann þar til 19. nóvember 2003. Aðkoma mín að verkalýðsmálum tengist upphaflega Speli sem rekur Hvalfjarðargöngin. Við sem vorum að vinna á Akraborginni höfðum for- gang að störfum í gjaldskýlinu en sá samningur sem gerður var í upphafi hjá Speli var svo skelfilegar slakur Sló mig að sjá myndirnar af sjálfum mér Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforkólfur hefur tekið af sér yfir 30 kíló á einu ári með lágkolvetnamataræði og aukinni hreyfingu. Liðið ár var afdrifaríkt fyrir Vilhjálm en hann missti son sinn skyndilega og vill hann auka forvarnir gegn sjálfsvígum. Vil­ hjálmur fer af hörku inn í komandi samningaviðræður og segir ekki annað koma til greina en verulegar launahækkanir fyrir verkafólk. Myndirnar sem Vilhjálmur setti á Face­ book. Það sem aðskilur þær er eitt ár og yfir 30 kíló. Framhald á næstu opnu 24 viðtal Helgin 23.-25. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.