Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Síða 32

Fréttatíminn - 23.01.2015, Síða 32
Sök bíllausa mannsins M Margir dásama bíllausan lífsstíl – og ég tæki hatt minn ofan ef ég ætti slíkan fyrir því fólki sem hefur tileinkað sér þann lífsmáta og metur hann. Ég viðurkenni að ég er ekki í þeim hópi. Ég kann illa við það að vera bíllaus. Það heftir frelsi mitt. Bílleysi hefur engu að síður verið hlutskipti mitt síðan nokkru fyrir jól, í lengsta samfellda tíma frá því við hjóna- kornin vorum ung og höfðum ekki efni á því að eiga bíl. Nú kjósum við að reka tvo bíla. Við erum í annasömum störfum og þurfum á þessum farartækj- um að halda. Minn betri helmingur er á þeim bíl sem kalla má aðalbíl heimilis- ins, þeim sem við notum til sameigin- legra þarfa, um helgar, í ferðir út á land og annað slíkt. Ég er á eldri bíl sem ég hef átt árum saman en hann hefur dugað mér vel til að koma mér úr og í vinnu, auk tilfallandi snattferða, en allt er í heiminum hverfult. Smávægileg bilun varð í vagninum á aðventunni en þó nóg til þess að viðgerðarmenn fundu ekki lausn á vandanum. Síðan hef ég verið upp á aðra kominn hvað samgöngur varðar. Ég þarf svo sem ekki að kvarta. Eiginkonan keyrir mig í vinnuna á hverjum morgni og sækir mig þegar ég kalla, auk þess sem ég hef notið liðleika nákominna ætt- ingja. Einhver gæti sagt að ekki bæri að kvarta undan svo góðri þjónustu, auk þess sem slík samnýting á bílum sé þjóðhagslega hagkvæm. Það er án efa rétt en breytir því samt ekki að ég hef verið hálf vængbrotinn allan þennan tíma. Annar gæti sagt mér að hætta þessu væli og nota strætó. Slíkt geri fjöldi fólks og sá samgöngumáti sé í senn ódýr og umhverfisvænn. Ég dreg þau rök ekki í efa en ég kann ekki á strætó og tel mig orðinn of gamlan til að læra á leiðakerfið. Of langt er fyrir mig að ganga í vinn- una og ég á ekki hjól. Þess vegna vel ég bílinn. Hann er þægilegur og við höndina þegar á þarf að halda. Í honum er útvarp til dægrastyttingar og hiti í sætum, þegar þannig viðrar. Þannig vil ég hafa það. Þess vegna er líf án bíls erfitt að mati þess haft hefur slíkan til umráða lengi og er góðu vanur. Ef bilunin hefði verið alvarleg hefði mátt afskrifa bílinn en svo var ekki. Bilunin var smávægileg en þó nóg til þess að ekki var með góðu móti hægt að brúka hann. Þess vegna kom ekki til greina að kaupa annan í staðinn, að minnsta kosti ekki meðan von var um viðgerð. Allt frá aðventu hef ég því reynt að halda ró minni, taka ástandinu af æðruleysi. Mín ágæta kona segir það þó ekki hafa dugað, bílleysið hafi aug- ljóslega haft nokkur áhrif á geðslag mitt. Því hef ég neitað staðfastlega. Að vísu hvíli bílleysið á mér sem mara, tómleikatilfinning læðist að, frelsi mitt heyri svo gott sem sögunni til og ég sé nánast einn í heiminum. Samt haldi ég jafnaðargeðinu. Enn eygi ég von um að bilunin í bílnum finnist og hann verði minn á ný. Um leið nefni ég það hæ versklega við minn betri helming að hún ýti aðeins á viðgerðarmennina, því á þeim vettvangi hefur hún nokkur ítök. Hún segir mér að það geri hún annað slagið en að öðru leyti sé mér ekki vor- kunn. Mér sé ekið til vinnu að morgni og jafnframt sé ég sóttur að kvöldi, eða skutlað heim af mér nákomnum. Meðferðin sé því svipuð og þekkist hjá helstu þjóðhöfðingjum eða ráðherrum nema hvað lögreglufylgd sé ekki í boði. Ég finn þó stöku sinnum á þessari góðu konu að henni leiðist þetta enda- lausa skutl með bónda sinn á morgn- ana, einkum þegar ég er farinn að tví- stíga í úlpunni en hún enn með kaffið í bollanum og ekki komin í gegnum Moggann. Ég fer venjulega heldur fyrr af stað en hún, þótt ekki muni miklu. Stjákl bíllausa mannsins ruglar morgunrútínu hennar, þá stund sem hún vill eiga í friði áður en hún hellir sér í at dagsins. Þetta þýðir það að stundum verðum við að flýta okkur heldur meira en æskilegt er í morguntraffíkinni og ekki bætir úr skák að við vinnum í sitt hvoru bæjarfélaginu. Frúin hefur því orðið að leggja á sig daglegt ferðalag aukalega frá því á aðventunni. Því hefur komið fyrir að hún hefur orðið nokkuð sein fyrir suma morgna og aðeins slegið í fákinn, þótt endranær sé hún gætin í umferðinni. Hún var því ekki glöð er hún sótti mig í vinnuna fyrir stuttu. Þá hafði hún þann sama morgun brunað til vinnu sinnar og líklega stigið helst til þungt á eldsneytisgjöf bílsins á einni helstu samgönguæð borgarinnar. Hún vissi að minnsta kosti ekki fyrr til en skær blossi skall á henni í skammdegis- myrkrinu, rétt í þann mund er hún fór yfir fjölfarin gatnamót. Hraðamynda- vél hafði gómað hana, að vísu rétt yfir hámarkshraða, en nóg samt. Hún hafði verið tekin fyrir of hraðan akstur í fyrsta sinn á ævinni, eftir akstur meira en 44 ár. Þetta var mér, heittelskuðum eiginmanni hennar, að kenna, engum öðrum, og þessu eilífa skutli. Það sagði hún blákalt. Ég heyrði af því á skotspónum að þennan sama dag hefði verið sett þung pressa á viðgerðarmenn bíls fyrrnefnds eiginmanns. Vagninn skyldi í samt lag hið snarasta. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Baileysterta pekanpæ jarðarBerjakaka kökur og kruðerí að hætti jóa Fel rósaterta með Frönsku súkkulaði-smjörkremi sími: 588 8998 32 viðhorf Helgin 23.-25. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.