Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Page 46

Fréttatíminn - 23.01.2015, Page 46
46 matur & vín Helgin 23.-25. janúar 2015 ÚRVALS NORÐLENSKUR Þorramatur Kjarnafæði býður fjölbreyttan úrvals Þorramat, bæði súrsaðan og nýjan, svo sem súr lambaeistu, súra lundabagga, súra lambasviðasultu, súra lifrarpylsu, Vopnafjarðarsvið, hangikjöt, nýja lifrarpylsu, nýjan blóðmör, nýja lambasviðasultu, magál og fleira. Súrsun matvæla eykur hollustu þeirra og geymsluþol til muna. Súrsunin varðveitir einnig næringargildið ásamt því að maturinn verður meyrari og auðmeltari. Skyrmysan er auðug af kalki og próteinum sem síast inn í súrmatinn. Sama gildir um B2-vítamín. Nú á dögum skipar súrmatur mikilvægan sess á þorranum. Veldu gæði, veldu Þorramat frá Kjarnafæði. www.kjarnafaedi.is  Bjór Bruggmeistarar Borgar notast við BourBon-tunnur og sérrí-tunnur við framleiðslu sína Fjórir Surtir til að þreyja þorrann Þorrinn er genginn í garð og það þýðir að í Vínbúðunum er aukið úrval af íslenskum bjór. Strákarnir í Borg brugghúsi bjóða upp á fjórar tegundir af Surti að þessu sinni og mjöðinn Galar í ofanálag. Þ að er veisla þetta árið,“ segir Árni Theodór Long, brugg-meistari hjá Borg brugghúsi. Þorrinn gengur í garð í dag og Árni og félagar senda frá sér fimm tegundir af bjór af því tilefni. Fyrst- an ber að telja Surt nr. 30. Hefð er komin fyrir því að Borgar-menn sendi frá sér Surt á þessum árstíma en þetta er fyrsti reykti Surturinn. Venju samkvæmt er Surturinn afar bragðmikill, auk reyksins má greina kunnugleg stef stout-bjórsins svo sem ristun, lakkrís, kaffi og kakó. „Það er mjög viðeigandi að koma með reyktan bjór á þorranum, það er bara þjóðlegt og skemmtilegt,“ segir Árni. „Það er mikil þyngd í þessum bjór og hann ræður vel við reykinn. Við notum malt sem við látum taðreykja hér á landi, þetta er aðferð sem við höfum verið að þróa hjá okkur.“ Surtur kom í fyrsta sinn á markað árið 2012 og sló í gegn og seldist upp á tveimur dögum. Það mun því sjálfsagt verða mörgum fagn- aðarefni að fyrsti Surturinn, nr. 8, kemur nú aftur í sölu og að þessu sinni með tveimur afkvæmum sín- um. Surtur nr. 8 verður eingöngu seldur í sérstakri viðhafnarútgáfu ásamt Surti nr. 8.2 sem er þroskað- ur á amerískum bourbon-tunnum í sex mánuði og Surti nr. 8.3 sem er þroskaður á sérrí-tunnum. Þess- ari viðhafnarútgáfu fylgir sérstakt glas. „Það verður gaman að hafa upp- runalegu útgáfuna með, sérstak- lega fyrir þá sem hafa ekki áttað sig á bragðeiginleikum tunnanna. Það er nefnilega töluverður munur á milli þessara tveggja tunna,“ segir Árni. Árni og félagar fluttu inn tunnur til framleiðslunnar. Bourbon-tunn- urnar komu til að mynda frá Ten- nessee. „Þær eru bara notaðar einu sinni þar en það er mjög mikið eftir af tunnu-karakternum þegar við setjum bjórinn á hann. Það er þung vanilla og algengt að finna kókos í þessu líka,“ segir hann. Á bóndadaginn í fyrra sendi Borg frá sér Kvasi sem titlaður var „fyrsti íslenski mjöðurinn“. Árni og fé- lagar halda áfram tilraunum sínum með þennan drykk forfeðra okkar, Breezer víkinganna eins og sagn- fræðingurinn Stefán Pálsson hefur kallað mjöðinn. Mjöðurinn í ár kall- ast Galar nr. 29. Að sögn Árna er Galar talsvert ólíkur Kvasi þó svo að útlitið sé hið sama og eins og áður einungis um að ræða gerjað hunang. „Munurinn liggur því fyrst og fremst í hunanginu sjálfu en að þessu sinni notuðum við spænskt ávaxtahunang sem gefur talsvert annan tón. Okkur finnst töluvert mikill munur á þeim og það væri gaman ef einhver lumar á Kvasi frá í fyrr að gera samanburð á þeim,“ segir Árni. Þó þetta sé óvenjustór vöru- lína frá einu brugghúsi á þorra gerir Árni ekki mikið úr störfum þeirra félaga. „Þetta hljómar eins og rosa pakki en allir þessir þrír í gjafapakkningunni voru bruggaðir fyrir hálfu ári síðan. Þetta hljómar eins og við höfum verið rosa dug- legir en þetta er samt ekkert meira en venjulega. Við vildum gjarnan gera meira, en við höfum því miður ekki endalaust pláss hérna til fram- leiðslu.“ Árni Theodór Long og Valgeir Valgeirsson, bruggmeistarar í Borg brugghúsi, senda frá sér fimm bjóra nú í byrjun þorra. Þar af eru fjórir Surtir og einn mjöður. Ljósmynd/Hari

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.