Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Side 56

Fréttatíminn - 23.01.2015, Side 56
 TónlisT sTórvirki Bryndísar Höllu GylfadóTTur Sellósvítur Bachs Bryndís Halla Gylfadóttir selló- leikari, sem er meðal virtustu hljóðfæraleikara þjóðarinnar, lýk- ur heildarflutningi sínum á selló- svítum Johanns Sebastians Bachs á tónleikum á vegum Kammermúsík- klúbbsins næstkomandi sunnudag, 25. janúar. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósasal Hörpu og hefjast klukkan 19.30. Sellósvítur Bachs, sex að tölu, eru meðal þekktustu einleiksverka tónlistarsögunnar og er heildarflutningur á þeim ávallt merkisviðburður. Bryndís Halla ræðst nú í fyrsta sinn í þetta stór- virki, en hún flutti þrjár af svítunum á tónleikum í janúar í fyrra og leikur nú þrjár seinni svíturnar. Áheyrendur á tónleikunum á síðasta ári voru dolfallnir yfir leik Bryndísar Höllu og hafa beðið óþreyjufullir eftir seinni tónleikun- um, segir í tilkynningu Kammer- músíkklúbbsins. Tónleikarnir á sunnudaginn eru hinir fjórðu á starfsári Kammer- músíkklúbbsins. -hf Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari.  HáskólaTónleikar verk Tíu Tónskálda Frumflytur nýtt verk í hverjum mánuði Flautuleikarinn Pamel De Sensi ætlar á árinu að halda 10 tónleika á árinu þar sem frum- flutt verður nýtt íslenskt verk í hvert sinn. Hún kallar verkefnið In..Kontra, þar sem hún mun hafa kontrabassa, bassa og alt-flautur í forgrunni, ásamt hinum hefðbundnu flautum. Ekkert verkanna á efnisskránni hefur áður verið flutt á Íslandi, og á fyrstu tónleikunum sem verða á miðvikudaginn verður verkið Nautilus eftir Steingrím Þórhallsson frumflutt. É g fékk þessi bassahljóð-færi fyrir tveimur árum og eru þau einu sinnar teg- undar á landinu,“ segir Pamela De Sensi. „Ég ákvað því að fá 10 tónskáld til þess að semja verk sérstaklega fyrir þessi hljóðfæri. Þau hafa ekki oft verið brúkuð í aðalhlutverki og þau eru svo mögnuð að mig langar til þess að kynna þau nánar fyrir tónlistar- áhugafólki,“ segir Pamela. „Þessi hljóðfæri eru vel þekkt erlendis en hafa kannski ekki náð fótfestu hér, svo ég fékk 10 tónskáld til þess að semja sérstaklega verk fyrir þau og píanó. Einnig vil ég vekja athygli á þessum tónskáld- um sem við eigum hér á landi. Tónleikarnir verða einu sinni í mánuði, þó verða tvennir af þeim á Ítalíu í sumar,“ segir Pamela sem er frá Ítalíu en hefur búið hér um árabil. „Ég ætla að taka upp verkin á hverjum tónleikum og á endan- um er ég komin með efni í disk sem inniheldur 10 ný íslensk verk fyrir bassaflautur,“ segir hún. „Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt og ég hlakka til að leyfa fólki að heyra í þessum frábæru hljóðfærum og öllum möguleikunum sem þau bjóða upp á. Bassaflautan hefur mik- ið verið notuð í djassinum og meira að segja í Beat-Box tón- list svo möguleikarnir eru enda- lausir,“ segir Pamela De Sensi. Fyrstu tónleikarnir í In.. Kontra verkefninu verða sem fyrr segir, miðvikudaginn 28. janúar í Háskóla Íslands, klukkan 12.30. Píanóleikari á fyrstu tónleikunum verð- ur Eva Þyrí Hilmarsdóttir. Á efnisskránni verða verk eftir Bill Douglas, Mike Mower, Adrienne Albert, Gary Schoc- ker ásamt frumflutningnum á verki Steingríms Þórhallsson- ar, Nautilus. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Pamela De Sensi spilar á allar tegundir flauta. PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEP- ÚTSALA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET... Revestimiento Ace Negro 33,3x100 cm Ace Blanco 33,3x100 cm Pavimento Crystal Floor White 33,3x33,3 cm Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm Þúsundir fermetra af flísum með 20%-70% afslætti og nú öll gólfefni án vörugjalda Verðdæmi: Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3990.- m2 Filtteppi kr. 598.- m2 Teppi og dúkar 25-70% afsláttur Skipadreglar kr. 1485.- m2 Gegnheilir Tarkett vinyldúkar frá kr. 2675.- m2 – fyrst og fre mst ódýr! 3999kr.kg Lambafile með sítró nupipar DEKRAÐU VIÐ BÓNDANN Í DAG NÝTT Kór,kór,kvennakór. Kvennakórinn Kyrjurnar eru að hea sitt 17.starfsár og getur bætt við sig nýjum kórfélögum. Við æfum í Friðrikskapellu við Vodafonhöllina á miðvikudögum kl.19:30. Kyrjurnar leggja metnað sinn í ölbreyt og skemmtilegt lagaval Stjórnandi er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir söngkennari og söngkona. Láttu nú drauminn rætast, hafðu samband við Sigurbjörgu í síma 8655530 eða Auði í síma 8646032. Það verður tekið vel á móti þér. 56 menning Helgin 23.-25. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.