Frjáls verslun - 01.11.2011, Qupperneq 144
144 FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011
Ég starfa sem sérfræð-ing ur þjónustumála í Landsbankanum. Verk -efnin eru fjölbreytt og
fela m.a. í sér þjónustufræðslu
til starfsmanna og meðhöndlun
kvartana og ábendinga. Við
leggj um áherslu á að virkja alla
starfs menn í þjónustuhugsun,
hvort sem þeir starfa í framlínu
bankans eða í stoðdeildum.
Þeg ar öllu er á botninn hvolft
mynda allir starfsmenn eina þjón-
ustukeðju með hið endanlega
markmið að veita framúrskar andi
þjónustu. Margt hefur breyst í
Landsbankanum síðustu misseri
og framundan er nýtt ár með
nýjum áskorunum og ég hlakka
til að takast á við þau. Undanfar-
in átta ár hef ég einnig í auka
starfi stýrt gæðamálum hjá
Raf skoðun ehf., sem er faggilt
skoð unarstofa á rafmagnssviði.“
Kristín fæddist í Reykjavík árið
1969. Lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykja vík
árið 1989, BA-gráðu í stjórn -
mála fræði árið 1996 og BS
í viðskiptafræði 2001. „Með
há skólanáminu starfaði ég sem
flug freyja hjá Icelandair og var
um tíma öryggiskennari fyrir
flug áhafnir. Flugfreyjustarfið er
ekki eingöngu þjónustustarf
heldur liggur að baki heilmikil
þjálfun í því hvernig bregðast á
við þeim aðstæðum sem geta
komið upp og þá er mikilvægt
að kunna réttu tökin.“
Eiginmaður Kristínar er Björn
Ágúst Björnsson og eiga þau
þrjú börn, Þorstein Friðrik,
19 ára, Sólveigu, 12 ára, og
Harald, 5 ára. Ekki má gleyma
hundinum Koli sem er einlitur
rakki af tegundinni English
Cocker Spaniel. „Eftir að við
eign uðumst hund hef ég gengið
mikið með hundinn um Seltjar
narnesið og það eru örugglega
ekki margir hundar sem fá tvo til
þrjá góða göngutúra á hverj-
um degi“ Á stóru heimili gefst
lítill tími fyrir áhugamál en þau
eru nokk ur. Það blundar í mér
söng- og leiklistaráhugi en ég
var frekar virk í skólaleikritunum
í gamla daga. Hver veit nema
ég stígi á svið þegar hægist um
á heim ilinu.
Fjölskyldan fór í skemmtilegt
frí til Spánar síðastliðið sumar
þar sem við uppgötvuðum
fal legar strendur og lítil þorp.
Næsta sumar er stefnan hins
vegar tekin á ferð um Ísland,
okkar yndislega land, en ég
á t.d. enn eftir að heimsækja
Vestfirði og þangað er förinni
heitið. Ég ólst nefnilega upp með
móður minni sem var dug legri við
að drösla mér með sér til útlanda
en að ferðast innanlands.“
Kristín Lúðvíksdóttir
– sérfræðingur í þjónustumálum hjá Lands -
bankanum
„Eftir að við eignuðumst hund hef ég gengið mikið með hundinn um Seltjarnarnesið og það eru
örugglega ekki margir hundar sem fá tvo til þrjá góða göngutúra á hverjum degi. “
Nafn: Kristín Lúðvíksdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík, 5.
nóvember 1969
Foreldrar: Sólveig Jónsdóttir og
Lúðvík Vilhjálmsson
Maki: Björn Ágúst Björnsson
Börn: Þorsteinn Friðrik, 19 ára,
Sólveig, 12 ára, og Haraldur, 5 ára
Menntun: BA í stjórnmálafræði
og BS í viðskiptafræði
FÓLk