Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Síða 74

Frjáls verslun - 01.07.2007, Síða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 John P. Kotter Vinsældir Johns Kotters (f. 1947) eru miklar ef marka má upplýs- ingar um stöðu hans. Hann er einn söluhæsti höfundurinn í flokki stjórnunarrita á Amazon.com og hann var nr. 1 yfir kennimenn leiðtogafræðanna í könnun sem Business Week gerði í október 2001. Könnunin náði til 504 fyrirtækja. John Kotter er prófessor við Harvard Business School. Hann hefur ritað 15 bækur og er reglulega með greinar í Harvard Business Review. Þegar kemur að sölu á stökum greinum úr safni Harvard Business Review eru ritverk Johns Kotters með þeim eftirsóttustu. Eins hefur Kotter unnið til fjölda verðlauna fyrir ritverk sín. Síðasta bók Kotters nefnist „Our Iceberg is Melting“ (2006). Þessi met- sölubók snýst um líkingu og útfærslu á einu þekktasta framlagi Kotters, þ.e. átta skrefa breytingaferlinu. Þetta breytingaferli var rækilega kynnt í metsölubókinni „Leading Change“ (2006). Það kom hins vegar fyrst fram í samnefndri grein í Harvard Business Review í mars-apríl 1994. Í bókinni „Leading Change“ fjallar Kotter fyrst um ýmis þau atriði sem virðast standa í vegi fyrir árangri og árangursríkum breytingum í starfsemi fyrirtækja. Þetta eru atriði eins og sjálfsánægja, andvaraleysi, skortur á stuðningi, vöntun á sýn, vöntun á samskiptum og upplýs- ingamiðlun. Einnig minnist hann á að vandinn sé oft skortur á vilja til að ryðja hindrunum úr vegi og ekki sé gætt að því að gera litlar en mikilvægar breytingar sýnilegar. Jafnframt séu of mörg dæmi þess að stjórnendur haldi að björninn sé unninn um leið og fyrstu vísbend- ingar um árangur koma í ljós. Ekki síst virðast stjórnendur vanmeta þátt menningar í fyrirtækjunum. Til að gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að verða árangursríkari kemur Kotter með átta skrefa uppskrift að breytingaferli. Fleiri rann- sakendur og fræðimenn hafa komið fram með svipað ferli en enginn hefur náð eins mikilli útbreiðslu og Kotter. Í stuttu máli eru skrefin átta eftirfarandi: 1) Byggja upp skilning á mikilvægi breytinganna sem nauðsynlegt er að ráðast í. Það er gert bæði með hliðsjón af stöðu fyrirtækisins í umhverfinu og með því að skerpa á því hvort staðan sé ógnun eða tækifæri fyrir fyrirtækið. 2) Nauðsynlegt er að setja saman hópinn sem á að koma breyting- unum til leiðar. Hér skipta völd, áhrif og getan til framkvæmda sköpum. Hópurinn þarf að virka eins og teymi. 3) Sterk framtíðarsýn þarf að liggja fyrir og sömuleiðis hugmynd um hvað gera skuli til að sýnin verði að veruleika. 4) Segja þarf frá því sem stendur til við hvert tækifæri sem gefst. Einnig þurfa stjórnendur að ganga á undan og sýna viljann í verki. 5) Veita þarf umboð til athafna og ryðja hindr- unum úr vegi þannig að það auki getu fyrirtækisins til að ná árangri. 6) Ná sýnilegum árangri, þ.e. sigrum sem hægt er að halda upp á. Hrósa og umbuna opinskátt því starfsfólki sem gert hefur árangurinn mögulegan. 7) Halda áfram breytingaferlinu. Gæta vel að starfs- þjálfun og nýráðningum. Einnig uppfæra allt skipulag og ferla. Huga vel að starfshvatningunni í fyrirtækinu. 8) Festa breytingarnar þannig í sessi að menningin í fyrirtækinu taki upp þá nýju starfshætti og þau viðhorf sem nauðsynleg eru til að tryggja viðvarandi árangur. Eins og sjá má af ofangreindum texta þá kallast skrefin í breyt- ingaferlinu á við þau vandamál sem virðast koma í veg fyrir árangurs- ríkar breytingar í fyrirtækjum. Nánari upplýsingar um manninn og verk Johns Kotters er að finna á vefsíðunni www.johnkotter.com Abraham H. Maslow Nær allir sem hafa komið að stjórnun fyrirtækja eða verið í viðskiptatengdu námi hafa heyrt minnst á þarfapíramída Maslows. Píramídinn er dreginn fram þegar reynt er að útskýra hvað það er sem hvetur fólk til vinnu og fram- lags. Abraham Maslow (1908-1970) var sálfræðingur sem eyddi stórum hluta starfsævi sinnar í að rannsaka og skrifa um geðheilbrigði og mögulega getu mannsins í lífi og starfi. Hann er talinn hafa verið forsprakki og leiðtogi mannúðarsálfræðinnar sem hann kvað vera þriðja aflið í sálfræðinni. Þarfapíramídi Maslows kom fram á miðri síðustu öld og sló í gegn ekki síst fyrir það hversu einföld framsetningin var og hversu auðvelt var að miðla henni. Kenning Maslows höfðaði til stjórnenda og svo virtist sem þeir hafi átt auðvelt með að átta sig á boðskapnum. Kenn- ingar Maslows, sem vel að merkja hafa verið gagnrýndar nokkuð, falla undir flokk innihaldskenninga um starfshvatningu. Aðrar þekktar kenningar sem falla í sama flokk eru kenndar annars vegar við David McClelland og Fredrick Herzberg hins vegar. Þarfapíramídi Maslows er stigveldi sem samanstendur af fimm þrepum. Fyrst koma tvö þrep með grunnþörfunum og síðan þrjú þrep sem hafa að geyma félagsþarfir og einstaklingsmiðaðar óskir. Fyrsta þrepið rúmar þörfina fyrir lífsviðurværi (loft, vatn, mat) og húsaskjól. Annað þrepið snýst um öryggi og andlegt jafnvægi. Þriðja þrepið snýst um þörfina fyrir samskipti og tengsl við annað fólk, þ.e. að vera hluti af hópi og finna fyrir ást og umhyggju. Fjórða þrepið tengist sjálfstraustinu og hugmyndinni um eigin getu sem um leið fær stuðning gegnum viðurkenningu annarra. Fimmta þrepið er svo tileinkað þörfinni fyrir sjálfstjáningu, þ.e að ná nokkurs konar S T J Ó R N U N Kotter nefnir nokkur atriði sem virðast standa í vegi fyrir árangri og árangursríkum breytingum í starfsemi fyrirtækja. Þetta eru atriði eins og sjálfsánægja, andvaraleysi, skortur á stuðningi, vöntun á sýn, vöntun á samskiptum og upplýsingamiðlun. John P. Kotter Abraham H. Maslow
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.