Læknablaðið - 01.02.2014, Síða 11
Y F i R l i T S G R E i n
LÆKNAblaðið 2014/100 75
Inngangur
Krabbamein í ristli og endaþarmi eru algeng illkynja
æxli af kirtilþekjuuppruna og vex nýgengi þeirra með
hækkandi aldri. Þessi æxli eru nú þau þriðju algeng-
ustu sem greinast á Vesturlöndum en í um 80% tilvika
greinast sjúklingar með staðbundin æxli með eða án
dreifingar í nærlæga eitla. Áhættuþættir eru margvís-
legir en sá sterkasti er aldur og fjölskyldusaga. Sýnt
hefur verið fram á að skimun er árangursrík og lækkar
dánartíðni af völdum sjúkdómsins. Mælt er með skim-
un frá 50 ára aldri í mörgum vestrænum löndum.1,2
Skurðaðgerð er meginstoð meðferðar en einnig skipar
lyfjameðferð stóran sess. Mikilvægt er að gera skýran
greinarmun á meðferð krabbameina í ristli og enda-
þarmi þar sem meðferðarúrræði eru mismunandi.
Geislameðferð er lykilþáttur í meðferð krabbameina í
endaþarmi en hefur takmarkað notagildi í ristilkrabba-
meini. Útbreiddur sjúkdómur er fyrst og fremst með-
höndlaður með krabbameinslyfjum þó skurðaðgerð
sé stundum beitt í meðferð sjúklinga með lifrar- eða
lungnameinvörp. Markmiðið með þessari yfirlitsgrein
er að veita heildstætt yfirlit yfir skimun og meðferð
krabbameina í ristli og endaþarmi og kynna nýjungar
í meðferð, en umtalsverðar framfarir hafa átt sér stað
á síðastliðnum áratug, bæði á sviði skurðlækninga og
með tilkomu nýrra krabbameinslyfja.
Faraldsfræði og áhættuþættir
Krabbamein í ristli og endaþarmi er þriðja algengasta
illkynja æxli á Norðurlöndum og þriðja algengasta
dánarorsökin.3 Á árunum 2006 til 2010 greindust að
meðaltali 74 karlar og 60 konur á ári á Íslandi og var
meðalaldur við greiningu um 70 ár. Krabbamein í ristli
og endaþarmi nema samanlagt um 10% allra greindra
illkynja æxla á Íslandi (upplýsingar af vef íslensku
Krabbameinsskrárinnar, krabbameinsskra.is). Fimm
ára lifun hefur aukist um 10-15% á síðustu 20 árum á
Norðurlöndunum (frá um 50% upp í 65%).3 Nýgengi
1The Ohio State University
Comprehensive Cancer
Center, 2Yale School of
Medicine, Department of
Gastrointestinal Surgery,
3lyflækningar krabbameina,
Landspítala 150 Reykjavík,
4háskólasjúkrahúsinu í
Lundi, Svíþjóð, 5Mayo Clinic
Cancer Center, Division
of Hematology & Medical
Oncology.
Krabbamein í ristli og endaþarmi eru þriðja algengasta tegund krabba-
meina í hinum vestræna heimi. Algengi þeirra vex með hækkandi aldri.
Æxlin eru oftast staðbundin í ristli, með eða án meinvarpa í nærlægum
eitlum við greiningu en um 20% sjúklinga greinast með útbreiddan
sjúkdóm. Skimun getur dregið úr tíðni krabbameina og lækkað dánartíðni.
Flest vestræn lönd mæla með ristilspeglun frá 50 ára aldri. Skurðaðgerð er
meginaðferðin í meðferð við staðbundnum sjúkdómi en krabbameinslyfja-
meðferð eftir aðgerð getur dregið úr endurkomu, sérstaklega ef meinið
hefur dreift sér til eitla. Geislameðferð, yfirleitt samhliða lyfjameðferð, er
auk skurðaðgerðar ein aðalmeðferðin við endaþarmskrabbameinum og er
yfirleitt beitt fyrir skurðaðgerð. Við útbreiddum sjúkdómi er lyfjameðferð
kjörmeðferð í flestum tilfellum en stundum má beita skurðaðgerð til brott-
náms meinvarpa. umtalsverðar framfarir hafa orðið í meðferð útbreidds
sjúkdóms á síðari árum en 6 ný lyf hafa komið fram síðan 1996.
ÁGRIp
Fyrirspurnir:
Þorvarður R. Hálfdanarson
halfdanarson.
thorvardur@mayo.edu
virðist vera að aukast í þróunarlöndunum en standa í
stað eða lækka í þróaðri löndum.4 Nýgengi meðal yngra
fólks virðist þó vera að aukast í Bandaríkjunum5 en
hefur ekki aukist hjá ungu fólki á Íslandi.6 Einnig virðist
dánartíðni af völdum þessara krabbameina vera á und-
anhaldi meðal vestrænna þjóða.7 Á síðustu áratugum
hefur nýgengi krabbameina hægra megin í ristli aukist
og eru skýringar á því óljósar.7,8
Nýgengi krabbameina í ristli og endaþarmi fer hækk-
andi með aldri en um 40% tilfella greinast eftir 75 ára
aldur.9 Um 40% sjúklinga greinast með sjúkdóminn
á stigi I-II, 40% á stigi III og 20% á stigi IV.10,11 Tafla I
sýnir TNM-stigun ristil- og endaþarmskrabbameina.
Gera má ráð fyrir að einn af hverjum 20 einstaklingum
greinist með krabbamein í ristli og endaþarmi á lífs-
leiðinni.12 Samspil erfða og umhverfisþátta er mikil-
vægt í tilurð þessara krabbameina. Heilkenni Lynch
(Lynch syndrome) veldur um 2-5% allra tilfella og ætt-
gengt ristilsepager (familial adenomatous polyposis) innan
við 1% allra tilfella.13 Sjúklingar með heilkenni Lynch
greinast oftar yngri að árum (meðalaldur 45 ára) með
æxli hægra megin í ristli (í 70% tilfella), oftar með fleiri
en eitt æxli á sama tíma (synchronous) og eru í aukinni
hættu á öðrum krabbameinum, svo sem leg- og eggja-
stokkakrabbameini, maga- og smágirniskrabbameini og
krabbameini í þvagvegum.13 Algengi Lynch-heilkennis á
Íslandi hefur ekki verið rannsakað. Sjúklingar með sögu
um ristilsepa og sjúklingar með sögu um krabbamein
í ristli eða endaþarmi eða ristilsepa meðal nákominna
ættingja eru í aukinni hættu.14,15 Bólgusjúkdómar í görn,
það er sáraristilbólga (ulcerative colitis) og svæðisgarna-
bólga (Crohn‘s disease) auka líkur á ristilkrabbameinum.16
Talið er að líkur á ristilkrabbameinum í slíkum sjúkling-
um séu um 15-20% eftir 30 ár og er áhættan hugsanlega
meiri við sáraristilbólgu.16 Tóbaksreykingar virðast auka
bæði líkur á krabbameini í ristli og endaþarmi sem og
dánartíðni af völdum þess.17 Líkamshreyfing,18 dagleg
aspirínnotkun19 og D-vítamín með kalki20 virðast hafa
Greinin barst
18. apríl 2013,
samþykkt til birtingar
13. desember 2013.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Krabbamein í ristli og endaþarmi
Sigurdís Haraldsdóttir1 læknir, Hulda M. Einarsdóttir2 læknir, Agnes Smáradóttir3 læknir, Aðalsteinn Gunnlaugsson4 læknir,
Þorvarður R. Hálfdanarson5 læknir
Benidette
– Getnaðarvörn til inntöku
Barneignir
ekki á dagskrá
Hver tafla inniheldur 150 µg af desógestreli
og 20 µg af etinýlestradíóli.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
3
1
6
0
8
1