Læknablaðið - 01.02.2014, Qupperneq 62
126 LÆKNAblaðið 2014/100
Úr fórum Læknablaðsins – 1915-2014
Staðfest sem 1. valkostur til viðhaldsmeðferðar. Við LLT á öllum stigum
®HEFJIÐ MEÐFERÐ MEÐ SPIRIVA (TÍÓTRÓPÍUM)
2��milljónir�sjúklingaára�
**1
��me��Spiriva
ÞAÐ Á AÐ LIFA LÍFINU
SPIRIVA: Langverkandi andkólínvirkt lyf til viðhaldsmeðferðar við LLT einu sinni á dag.
SPIRIVA TÍÓTRÓPÍUM
16%
FÆKKUN
2DAUÐSFALLA
P< 0,05
• •
• •
• •
• •
Minnkar viðvarandi
3.4.*
andnauð
Minnkar marktækt hættu
5,6,*,+á versnun LLT
Eykur marktækt lífsgæði
5,7,8,#.+
hjá LLT-sjúklingum
Eykur marktækt líkamlegt
4,9,10,#
úthald
# Upplýsingarnar sem koma fram vísa
til meðferðar með SPIRIVA 18 míkróg
®einu sinni á dag með HandiHaler
+ SPIRIVA breytti ekki skerðingarhraða
lungnastarfsemi. Aukaendapunktur
í UPLIFT sýnir að meðferðin leiðir til
meiri bóta á lungnastarfsemi saman-
borið við lyfleysu
S
p
i-
1
3
-0
1
-1
0
m
aj
2
0
1
3
Andkólínvirkt lyf með
fyrirliggjandi upplýsingar
um dauðsföll
*Ábendingin: Tíótrópíum er ætlað sem berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð
til að lina einkenni hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu (LLT).
** Í heiminum.
Heimildir: 1. Yohannes, A.M. et al, Ten years of tiotropium: clinical impact and patient perspectives, International Journal of COPD
2013;8:117-125. 2. Samantekt á eiginleikum Spiriva innöndunardufti í hylkjum, samþykkt af heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku 19. júní
2012. „Lyfhrif: Í rannsókn sem stóð yfir í 4 ár sást bati á lungnastarfsemi (FEV1). Batinn hélst stöðugar öll 4 árin. Á meðferðartímanum
sást 16% minnkun hættu á dauðsfalli.“ 3. Casaburi R et al. A long-term evaluation of once-daily inhaled tiotropium in chronic obstructive
pulmonary disease. Eur Respir J 2002;19:217-224. 4. O'Donnell DE et al. Effects of tiotropium on lung hyperinflation, dyspnoea and
exercise tolerance in COPD. Eur Respir J 2004;23:832-840. 5. Tashkin DP et al; for the UPLIFT® Study Investigators. A 4-year trial of
tiotropium in chronic obstructive pulmonary disease. N Engl J Med 2008;359:1543-54. 6. Vogelmeier C et al; for the POET-COPD
Investigators. Tiotropium versus salmeterol for the prevention of exacerbations of COPD. N Engl J Med 2011;364:1093-1103. 7.
Troosters T et al; for the UPLIFT® Study Investigators. Tiotropium as a first maintenance drug in COPD: secondary analysis of the UPLIFT®
trial. Eur Respir J 2010;36:65-73. 8. Tonnel AB et al; for the TIPHON study group. Effect of tiotropium on health-related quality of life as a
primary efficacy endpoint in COPD. Int J Chron Obstruct Pulmon Dis 2008;3:301-310. 9. Casaburi R et al. Improvement in Exercise
Tolerance With the Combination of Tiotropium and Pulmonary Rehabilitation in Patients With COPD. Chest 2005;127:809-817. 10.
Maltais F et al. Improvements in Symptom-Limited Exercise Performance Over 8 h With Once-Daily Tiotropium in Patients With COPD.
Chest 2005;128:1168-1178.
Hér sést kápan á Læknablaðinu 1934,
vindlaauglýsingin úr fyrsta árgangi er
horfin en í staðinn er komið efnisyfirlit
tölublaðsins. Blaðið kemur 6 sinnum út
þetta ár og er það vel af sér vikið í því
ölduróti sem gekk yfir Norðurálfuna þá.
Nótt hinna löngu knífa skall á í Þýska-
landi 30. júní, og í ágústbyrjun tók Hitler
öll völd, varð der Führer.
Í langri upphafsgrein er rakin tilurð
og saga blaðsins: … á fundi (Læknafélags
Reykjavíkur) 20. janúar 1915 var skýrt frá því,
að komið hefði svar frá 25 læknum. Voru þeir
allir hlyntir fyrirtækinu og lofuðu að kaupa
blaðið. Var þá samþykt að gefa út blaðið og
kosin ritnefnd. Skyldu koma 12 blöð á ári og
verðið vera 10 krónur. … aldrei hefir komið
fram nein rödd um leggja blaðið niður, svo að
öllum virðist ljós þýðing þess og gagn fyrir ísl.
læknastétt og framtíð þess ætti að vera borgið
úr þessu.
Með þessari grein er ágrip á ensku og
allt blaðið hefur heimsborgaralegan svip.
Fjórar stórar greinar eru birtar á þýsku, og
ágrip margra greinanna eru
á þýsku, og
nokkur á ensku. Þriðja þýska ríkið er búið
að fóta sig á mörgum sviðum bæði heima
og heiman, og menn reyna að láta rödd
sína heyrast þar.
Ljósmyndin hér á síðunni er úr grein
Steingríms Matthíassonar: Risi. Þar segir:
Á Akureyrar-sjúkrahúsi hefi eg nú undan-
farna mánuði haft til meðferðar risavaxinn
mann, sem mér finst trúlegt, að muni vera
hæstur og stærstur allra núlifandi Íslendinga.
Eg finn því ástæðu til að lýsa honum nokkuð
hér í Læknablaðinu og sjá svo til, hvort nokkur
landa vorra bjóði betur. Jóhann heitir hann,
risinn, og er Pétursson, frá Ingvörum í Svarf-
aðardal, 21 árs, ógiftur sjómaður.
Steingrímur birtir síðan töflu yfir 34
atriði sem mæld hafa verið á þeim báðum
(25. maí 1934) til frekari samanburðar:
Líkamshæð 218,5 / 171,5 cm, líkamsþyngd
139 / 74 kg, ummál höfuðs 69 / 55 cm,
ummál brjóstsins 126 / 91 cm, axlarbreidd
40 / 30 cm, lengd eyrans 7 / 5,5 cm. Og
hann fer mörgum orðum um risann
sem bera merki síns tíma og
hugsunarháttar:
Um gáfur Jóhanns er það að
segja, að hann hefir komið oss
svo fyrir í daglegri umgengni
og viðtali, sem hann sé vel í
meðallagi að greind og gáfna-
fari. Við fermingu reyndist
hann framar jafnöldrum
sínum öllum í kristnum
fræðum og skólafögum.
Honum hefir farið vel úr
hendi venjuleg störf, verið
gæfur í lund, glaður í
sínum hóp, vinsæll af
félögum, og verið engu
síðri en hver annar
í því, að lítast vel á
laglegar stúlkur. Þó
halda mætti, að svo
stór skrokkur sem
Jóhanns, þyrfti meiri
næringu en venja
er til, ber aldrei
á því, að Jóhann
[sé] verulega
neyzlu frekari en
fólk flest. Hans
diuresis og excreta alvi eru heldur ekki meiri en
annara menskra manna.
Útvarp Reykjavík var byrjað að senda
út dagskrá þegar þarna er komið sögu og
laugardaginn 1. desember var Útvarps-
tríóið með tónleika frá kl 21.50-24.00, og
lék þá Danzlög. Þetta var í fyrsta sinn sem
lesnar voru jólakveðjur í útvarpinu..
Á baksíðu Alþýðublaðsins segir 1. des.
1934: Halldór Kiljan Laxness dvelur nú í
Rómaborg. Samkvæmt bréfi sem hann skrifaði
Eggert Briem frá Tyrol, hefir hann í hyggju
að fara frá Róm um Konstantínopel til Rúss-
lands. Halldór Kiljan hefir nýlega selt Bonnier
í Stokkhólmi útgáfurétt á bók sinni „Salka
Valka“ í Svíþjóð og verður hún þýdd úr dönsku
og kemur út innan skamms.
„Ég lét taka mynd af okkur báðum saman, og sýnir
myndin myndin glögt, hve Jóhann er mikill að vallarsýn, í
samanburði við meðalmann eins og mig.“ Segir Steingrímur
Matthíasson Jochumssonar um sjúkling sinn 1934.
Desemberblaðið 1934, 20. árgangur
■ ■ ■ Védís Skarphéðinsdóttir