Læknablaðið - 01.12.2014, Page 7
LÆKNAblaðið 2014/100 647
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Heilsugæslan hefur ekki verið eins áber-
andi í þjóðfélagsumræðunni og Land-
spítalinn. Það virðist oft vanta skilning
á mikilvægi heilsugæslunnar í umræðu
bæði meðal þingmanna og almennings
í landinu. Það hefur verið að fjara undan
heilsugæslunni á Íslandi og nú er svo
komið að það vantar um 70-80 sérfræðinga
í heimilislækningum á landsvísu. Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lengi
bent á mikilvægi starf semi heilsugæslu í
heilbrigðiskerfum landa. Rannsóknir hafa
sýnt að lönd sem hafa sterka heilsugæslu
ná betri árangri hvað varðar heilbrigði
almennings og eru með hagkvæmari
heilbrigðiskerfi en samanburðarlönd.1,2
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin bendir á í
skýrslu sinni að efnaðri lönd byggi stóran
hluta heilbrigðiskerfis síns á sterkri þriðja
stigs heilbrigðisþjónustu, með ríkum hags-
munum fyrir ólíka aðila, til dæmis lyfja- og
lækningatækjaiðnaðinn.2 Í sömu skýrslu er
bent á mikilvægi þess að fjárfesta í heilsu-
gæslunni, auka teymisvinnu og önnur
úrræði í heilsugæslu. Að í heilsugæslunni
séu mikil sóknarfæri bæði í forvörnum og
snemmgreiningum.
Lífslíkur hafa aukist en á sama tíma
hafa ýmsir lífsstílssjúkdómar rutt sér til
rúms. Til dæmis hefur fjöldi sykursjúkra
á heimsvísu farið úr 30 milljónum manna
1985 í 382 milljónir manna 2013. Spár gera
ráð fyrir að fjöldinn geti verið um 552 millj-
ónir manna árið 2030. Kostnaður vegna
sykursýki í Bandaríkjunum nam 11% af
heilbrigðisútgjöldum fyrir fullorðna þar í
landi 2011 og fer hækkandi.3 Í Svíþjóð hef ur
heilsugæslan verið efld til þess að taka við
þeim sem eru með sykursýki af tegund 2.
Hvað varðar geðheilbrigðismál er
notkun þunglyndislyfja á Íslandi mest af
lönd um OECD. Árið 2013 fengu 39.000
einstak l ingar á Íslandi ávísað þunglyndis-
lyfjum og 34.000 fengu ávísað svefnlyfjum
og róandi lyfjum að minnsta kosti einu
sinni.4 Í nokkr um nágrannalöndum okkar
er hug ræn atferlismeðferð í boði á heilsu-
gæslunni og í Gautaborg, þar sem ég hef
starfað síðastliðin 6 ár, er skylda að bjóða
upp á samtalsmeðferð í allt að 10 skipti í
heilsu gæslunni, þetta vantar sárlega hér.
Heilsugæslan vinnur mjög mikilvægt
starf í dag, svo sem í ungbarnavernd og
bólusetningum, mæðravernd, heilsuvernd
og heimilislækningum. Með breyttu sam-
félagi, hærra hlutfalli eldri borgara þar
sem fólk lifir lengur og oftar en ekki með
einn eða fleiri undirliggjandi sjúkdóma, er
þörfin fyrir öfluga samræmda heilsu gæslu
á landsvísu mjög mikil. Að heilsu gæslan
verði efld með aukinni áherslu á heim-
ilislækningar, hjúkrunarfræðinga með við-
bótarnám til dæmis í sykursýkismeðferð,
næringarráðgjöf og lungnasjúkdómum,
sálfræðinga og félagsráðgjafa til viðbótar
því fagfólki sem starfar í dag innan heilsu-
gæslunnar. Að fjölbreytni verði aukin í
rekstri, að skjólstæðingar okkar geti valið
hvert þeir sæki þjónustu og fjármagn ið
fylgi þeim, enda eru þeir skattborgararn ir
sem borga þjónustuna.
Með þessu er hægt að byggja upp öfluga
heilsugæslu á landsvísu og ná árangri í for-
vörnum og snemmgreiningum. Þannig er
ráð í tíma tekið og ekki mest áhersla lögð á
að bjarga „innistæðum á ögurstundu“, líkt
og við þekkjum úr hruninu.
Heimildir
1. Heath I. A general practitioner for every person in the
world. BMJ 2008; 336: 861.
2. The World Health Report 2008 - Primary Health Care
(Now More Than Ever).
3. df.org/sites/default/files/Media-Information-Pack.pdf
4. who.int/mediacentre/factsheets/fs236/en/ – nóvember
21014.
5. landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item25254/
Avisunum-a-tauga--og-gedlyf-a-Islandi-hefur-fjolgad-fra-
2003-til-2013 – nóvember 21014.
Primary Care, investigating in a Healthier Future
oddur Steinarsson MD, GP, MBA
Chief Medical Executive
Primary Health Care of the Capital Area
Álfabakka 16, 109 Reykjavík
Heilsugæsla, fjárfesting
í heilsu til framtíðar
oddur.steinarsson@heilsugaeslan.is
Oddur
Steinarsson
Sérfræðingur í
heimilislækningum og MBA
Framkvæmdastjóri lækninga
Heilsugæslu höfuðborgars-
væðisins
Álfabakka 16,
109 Reykjavík
Í lokahófi í Iðnó eftir XXI þing lyflækna sem haldið var á dög-
unum í Hörpu. Þarna er Þórður Harðarson í pontu, og Gunnar
Sigurðsson og Ástráður B. Hreiðarsson á góðri stund ásamt
formanni Félags íslenskra lyflækna, Runólfi Pálssyni. Félagið
heiðraði þá Nick Cariglia, Gunnar og Ástráð fyrir dygg störf og
þjónustu í þágu lyflækninga hérlendis.
Mynd Hrafnhildur Linnet Runólfsdóttir (læknanemi).
Relvar® Ellipta® innöndunarduft, afmældir skammtar. Hver stök innöndun gefur skammt (skammt sem fer í gegnum munnstykkið) sem er 22 míkróg af vílanteróli (sem trífenatat) og 92 eða 184 míkróg af
flútíkasónfúróati. Þetta samsvarar afmældum skammti sem er 25 míkróg af vílanteróli (sem trífenatat) og 100 eða 200 míkróg af flútíkasónfúróati. Hjálparefni með þekkta verkun: Hver skammtur inniheldur u.þ.b.
25 mg af laktósa (sem einhýdrat). Ábendingar: Astmi: Relvar Ellipta er ætlað til notkunar við reglulega astmameðferð hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri þegar notkun samsetts lyfs (langverkandi
beta2-örva og barkstera til innöndunar) á við: Þegar ekki næst viðunandi stjórn á sjúkdómnum með barksterum til innöndunar og skjótvirkum beta2-örvum til innöndunar „eftir þörfum“. Langvinn lungnateppa
(aðeins Relvar Ellipta 92/22 míkróg): Relvar Ellipta er ætlað til meðferðar á einkennum langvinnrar lungnateppu hjá fullorðnum með FEV1 < 70% af áætluðu eðlilegu gildi (eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs) og sögu
um endurtekna versnun, þrátt fyrir reglulega meðferð með berkjuvíkkandi lyfjum. Skammtar og lyfjagjöf: Astmi: Fullorðnir og unglingar 12 ára og eldri: Ein innöndun af Relvar Ellipta 92/22 míkróg einu
sinni á dag. Sjúklingar finna yfirleitt fyrir bættri lungnastarfsemi innan 15 mínútna frá innöndun Relvar Ellipta. Hins vegar skal upplýsa sjúklinginn um að regluleg dagleg notkun sé nauðsynleg til að viðhalda
stjórn á einkennum astma og að notkun skuli halda áfram, jafnvel þó einkenni hverfi. Ef einkenni koma fram á tímabilinu á milli skammta, skal nota skjótvirkan beta2-örva til að létta strax á einkennum. Íhuga
skal 92/22 míkrógramma upphafsskammt af Relvar Ellipta hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri sem þarfnast lítils til meðalstórs skammts af barksterum til innöndunar ásamt langverkandi beta2-örva.
Ef ekki næst fullnægjandi stjórn á sjúkdómnum með Relvar Ellipta 92/22 míkróg, má auka skammtinn upp í 184/22 míkróg, sem getur gefið betri árangur við astmastjórnun. Heilbrigðisstarfsmaður skal
endurmeta sjúklinga reglulega þannig að þeir haldi áfram að fá kjörstyrkleika af flútíkasónfúróati/vílanteróli og að honum sé aðeins breytt samkvæmt læknisráði. Skammtinn skal aðlaga þannig að alltaf sé
notaður minnsti skammtur sem nær virkri stjórn á einkennum. Íhuga skal notkun Relvar Ellipta 184/22 míkróg hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri sem þurfa að fá hærri skammta af barksterum til
innöndunar ásamt langverkandi beta2-örva. Langvinn lungnateppa: Fullorðnir 18 ára og eldri: Ein innöndun af Relvar Ellipta 92/22 míkróg einu sinni á dag. Relvar Ellipta 184/22 míkróg er ekki ætlað til notkunar
hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu. Enginn viðbótarávinningur er af notkun 184/22 míkrógramma skammts samanborið við 92/22 míkróg skammtinn og hætta á aukaverkunum svo sem lungnabólgu
og altækum aukaverkunum tengdum barksterum er hugsanlega aukin. Það skal gefa á sama tíma dag hvern. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Aukaverkanir: Mjög
algengar: Höfuðverkur og nefkoksbólga. Algengar: Lungnabólga, sýking ofarlega í öndunarvegi, berkjubólga, inflúensa, hvítsveppasýking í munni og koki, verkur í munnkoki, skútabólga, kokbólga, nefslímubólga,
hósti, raddtruflun,kviðverkir, liðverkur, bakverkur, hiti. ATC R03AK10. Markaðsleyfishafi: Glaxo Group Limited, 980 Great West Road, Brentford, Middlesex TW8 9GS. Bretland. Fulltrúi markaðsleyfishafa:
GlaxoSmithKline ehf. Þverholti 14, 105 Reykjavík, Ísland, Sími 530 3700. Dagsetning endurskoðunar textans: 22. maí 2014. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur
mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is
Pakkningar og verð (September 2014)
Relvar Ellipta 92 mcg/22 mcg, innönddu, 30 skammtar R, G Kr. 9.482
Relvar Ellipta 184 mcg/22 mcg, innönddu, 30 skammtar R, G Kr. 11.830
Aukaverkanir má tilkynna á vef Lyfjastofnunar:
www.lyfjastofnun.is/Aukaverkanir/tilkynna eða til GlaxoSmithKline í síma 530 3700.
Heimildir:
1. Relvar Samantekt um eiginleika lyfs. www.serlyfjaskra.is. 2. Boscia JA et al. Clin Ther. 2012; 34(8): 1655-66.
3. Svedsater H et al. BMC Pulmonary Medicine 2013; 13: 72.
(flútíkasónfúróat/vílanteról)
® ®
24 klst. verkun. Mjög einfalt.
* Barksteri og langvirkt berkjuvíkkandi lyf til innöndunar.
Fyrsta ICS/LABA-meðferðin sem virkar í 24 klst.1,2
... skömmtun einu sinni á dag1
... í einföldu og handhægu innöndunartæki3
Relvar® Ellipta® er ætlað til notkunar við reglulega astmameðferð hjá fullorðnum og
unglingum 12 ára og eldri þegar notkun samsetts lyfs á við: þegar ekki næst viðunandi
stjórn á sjúkdómnum með barksterum til innöndunar og skjótvirkum beta2-örvum til
innöndunar „eftir þörfum“.
Relvar® Ellipta® er ætlað til meðferðar á einkennum langvinnrar lungnateppu hjá
fullorðnum með FEV1 < 70% af áætluðu eðlilegu gildi (eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs) og
sögu um endurtekna versnun, þrátt fyrir reglulega meðferð með berkjuvíkkandi lyfjum.
24
klst
AstmiLLT
IS
/F
FT
/0
01
7/
14
a
S
ep
te
m
be
r 2
01
4
IS_FFT_0017_14a_Relvar_adv_A4_Sept2014.indd 1 22.09.2014 07:38:20