Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.2014, Side 40

Læknablaðið - 01.12.2014, Side 40
680 LÆKNAblaðið 2014/100 borgarsamfélaginu. Í byrjun voru heilbrigðismál sett á oddinn en skipulags- og byggingarmál urðu æ fyrirferðarmeiri enda nátengd lýðheilsu. Erlendar rannsóknir á heilsu, lífslíkum og dánartíðni við þröngar íbúðaraðstæður almennings bentu til þess að bætt borgarumhverfi leiddi til meiri lífsgæða. Læknar börðust víða fyrir úrbótum í umhverfismálum og áttu sér tvö kjörorð: loft og ljós. Þetta fól í sér hreinlæti, hreint vatn, öflugt skólpkerfi, rúm - bet ri og bjartari íbúðir og ferskt loft. Í Reykjavík höfðu læknar bent á nauðsynlegar úrbætur varðandi vatnsveitu, húsnæði og úrgang en ekki sett þau mál í stærra samhengi. Guðmundur sat í skipulagsnefnd Reykjavíkur frá 1921 og vakti athygli á erlendum kenningum um lýðheilsu í borgum og ýmsa áhrifaþætti í hinu byggða umhverfi og tók mið af alþjóðlegum rannsóknum og staðfærði og aðlagaði niðurstöður að íslensk um aðstæðum og veruleika. Hann lagði áherslu á fagurfræði í fyrir- komulagi bæja og fyrirhyggju í skipulagi borgarhluta og mikilvægi garða. Hugmyndir Guðmundar voru á þann veg að byggð in skyldi vera þétt og samfelld en varaði við því að húsin væru of há, til þess að tryggja að allar vistarverur nytu sólar. Áhersl an var lögð á samfellda, fremur lágreista íbúðabyggð, 2-3 hæða hús, gjarnan lítil raðhús með garðbletti til ræktunar og síðast en ekki síst aðskilnað íbúðar- og atvinnusvæða. Ein af nýjungun um sem hann setti fram var regla um skipan húsa á lóðir og legu gatna miðað við sólarátt og ríkjandi vindstefnu. Hann útskýrir hvers vegna sveigð gata sé fegurri en bein, þar sem húsaröðin lokar göturýminu og teikning- ar hans af gatnakerfi minna töluvert á æðakerfi. Guðmundur taldi að fagurfræði í mótun bæja væri jafn mikilvægur þáttur til þess að tryggja góða heilsu og vellíðan fólks og tæknileg atriði eins og veitukerfi og gatnagerð. Gott dæmi um skipulag frá hans hendi er hverfið milli Njarðargötu og Barónsstígs en það er að flestra mati vel heppnað og þykir standa sumum nýjustu hverfum á höfuð- borgarsvæðinu framar um flesta þætti sem einkenna góða byggð. Áherslur hans sem frumkvöðuls borgar skipulags á Íslandi fellur vel að þeim hugmyndum sem nú er haldið á lofti um áhrifaþætti heilbrigðis og lýðheilsu þjóða. Þar er lögð áhersla á samþættingu þjónustu, efnahagslegra, félagslegra og umhverfislegra þátta til að styðja við heilsu íbúana. Skrif Guðmundar voru grundvöllurinn að fyrstu löggjöf um skipulagsmál hér á landi sem sett var árið 1921 og árið 1927 var samþykkt skipulag fyrir Reykjavík sem Guðmundur átti drjúgan þátt í. Þannig hafði hann bein áhrif á allt skipulagsstarf í landinu auk þess sem áhrifa hans gætti við byggingu fjölmarga íbúðar- húsa út um allt land. Af skrifum Guðmundar er ljóst að hann taldi nauðsynlegt að læknar ynnu saman til að miðla þekkingu og reynslu og vinna að hagsmunamálum sínum en ekki síður til að styrkja og bæta þjóðina. Landlæknir, Jónas Jónassen (1840-1919), boðaði til lækna- fundar árið 1896 með það að markmiði að stofna læknafélag og þar mætti Guðmundur með ýmsar hugmyndir í farteskinu sem ekki áttu upp á pallborðið hjá sumum öðrum fundarmönnum. Ekk- ert varð af félagsstofnun heildarsamtaka lækna. Læknar bjuggu vítt og breitt um landið, tilheyrðu yfirstétt samfélagsins, höfðu öruggar tekjur og gátu að mestu hagað vinnu sinni að vild. Það var í raun fátt sem kallaði á nauðsyn þess að stofna stéttarfélag fyrir lækna þar sem þeir höfðu greiðan aðgang að yfirvöldum. Það var ekki fyrr en utanaðkomandi aðstæður kröfðust þess að læknar stofna stéttar félag. Árið 1909 var Sjúkrasamlag Reykjavíkur stofnað að frumkvæði Oddfellowreglunnar en það var samlag „fullhraustra íbúa sem áttu skuldlausa eign og höfðu meðaltekjur“. Sjúkrasamlagið vildi gera samninga við lækna fyrir hönd félagsmanna sinna í stað þess að semja við hvern og einn lækni og það kallaði á félagsstofnun Guðmundur var höfundur að skipulagi Þingholtanna milli Njarðargötu og Barónsstígs en það þykir einstaklega vel heppnað og standast tímans tönn. Skipulagið tekur mið af ríkjandi vindáttum, birtu, fagurfræði og heilbrigði. Mynd frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, ljósmyndari: Sigurhans E. Vignir, tekin 1945-1947.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.