Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.12.2014, Qupperneq 64

Læknablaðið - 01.12.2014, Qupperneq 64
704 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, segir að læknismenntun hans geri hann tvímælalaust að betri borgarstjóra. Á tímum æ meiri sér- hæfingar og hólfunar innan okkar há- tæknivædda samfélags hefur dregið úr samfélagslegri þátttöku hinna menntuðu sérfræðinga; fólk menntar sig ýmist beinlínis til samfélagslegrar þátttöku eða annarra starfa innan afmarkaðra fræða – tæknigeira. Dagur segist víða finna fyrir ánægju í röðum lækna með að hann skuli hafa lagt stjórnmál fyrir sig en félagar hans í læknastétt hafa líka spurt hann hvort hann ætli ekki að fara að vinna eitthvað! Aðdragandi þessa viðtals er reyndar orð- inn býsna langur þar sem við Dagur hitt- umst er hann var borgarstjóri árið 2008. Tími hans í stólnum reyndist þó styttri en búist var við, borgarstjórnarmeirihlutinn féll, aðrir tóku við og viðtalið mátti bíða. Nú bendir hins vegar fátt til annars en að meirihlutinn haldi sínu þetta kjörtímabil hið minnsta og því óhætt að eiga samtal um læknismenntun og pólitík án þess að allt fari á hvolf. Við hefjum samtalið með því að spyrja hvers vegna Dagur hafi valið stjórnmálin fremur en að stefna á sérnám í læknis- fræði. „Ég var í rauninni fluttur til Stokk- hólms og var að hefja sérnám í smitsjúk- dómum við Karolinska sjúkrahúsið þegar ég leiddist út í pólitík og var fenginn til að taka sæti á lista fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar 2002. Reyndar nær þessi áhugi á samfélaginu mun lengra aftur. Ég valdi mér læknisfræðina til að finna áhugavert og innihaldsríkt starf sem byggði á mann- legum samskiptum og hugsaði það sem leið til að halda mér frá pólitíkinni en fá samt útrás fyrir samfélagslegan áhuga minn. Góð læknisfræði byggir á sam- félagslegri nálgun og það er hægt að lesa sögu læknisfræðinnar að mörgu leyti með þeim gleraugun. Það er einnig algerlega ótvírætt að læknar hafa náð hvað mestum árangri í baráttu sinni gegn sjúkdómum, fyrir langlífi og aukinni vellíðan í samfé- laginu með því að berjast fyrir málefnum sem oft koma læknastofum eða skurð- stofum sáralítið við.“ Og nú er stjórnmálamaðurinn Dagur B. Eggertsson farinn að hitna og þarf lítillar hvatningar við frá blaðamanni. „Við þekkjum það úr sögu Reykjavíkur að það sem skipti einna mestu máli í upp- hafi 20. aldar í baráttunni fyrir bættu heilbrigði bæjarbúa var tilkoma vatns- veitunnar. Það var læknir sem barðist fyrir því í borgarstjórninni og honum var reyndar ráðlagt að bjóða sig ekki fram aftur því það var býsna óvinsælt að mæla fyrir vatnsskatti sem var nauðsynlegur til að hægt væri að fjármagna vatnsveituna. Nærri hundrað árum síðar var hið sama upp á teningnum þegar sett var á holræsa- gjald til að koma skólpinu burt úr fjör- unum umhverfis borgina. Hitt atriðið var húsakostur. Einn fyrsti og mesti hugsuður íslenskur í skipulagsmálum, Guðmundur Hannesson prófessor í læknisfræði, leit á skipulag, húsbyggingar og efnisval hús- bygginga sem ríkan hluta af sínu læknis- starfi. Félagslegur aðbúnaður fólks var kenndur í læknadeildum í lok 19. aldar. Og margir íslenskir danskmenntaðir læknar komu með mjög róttækar og samfélagsleg- ar áherslur inn í íslenskt samfélag á þeim tíma og fóru fremstir í flokki í baráttu gegn fátækt og óheilnæmum aðstæðum al- mennings í landinu.“ Alvarlegasti faraldur 21. aldarinnar Þótti þér þá sem læknanámið svaraði vænt- ingum þínum um samfélagslegar áherslur? „Að hluta til gerði námið það. Hins vegar má alveg velta því fyrir sér í ljósi þess hver eru stærstu viðfangsefnin á sviði heilbrigðis og sjúkdóma hvort lækna- námið og læknisfræðin sem grein séu á réttri leið. Þó er hæpið að tala um læknis- fræði sem eina grein og vissulega er sterk hefð fyrir sjálfsgagnrýnni umræðu innan læknisfræðinnar en hún þyrfti kannski að vera enn meiri. Hver eru stærstu við- fangsefnin? Í fyrsta lagi er það ójöfnuður. Í öðru lagi að annast fólk sem þarf að lifa með sjúkdómum og hins vegar eru faraldrar einsog offitufaraldurinn í hinum vestræna heimi sem kallar á lausnir sem eru ekki innan læknastofunnar. Samt hefur offitufaraldurinn hingað til verið talinn viðfangsefni hins hvíta slopps fyrst og fremst.“ Áttu við að afleiðingar en ekki orsakir offitu séu meginviðfangsefnin? „Það þarf mun breiðari nálgun. Í Bandaríkjunum hafa menn rannsakað þró- un offitu í samfélaginu í 20 ár og þar eru niðurstöðurnar ógnvekjandi því hlutfall sjúklega of feitra einstaklinga hefur í nær öllum fylkjum aukist úr 10-15% í 25-30% og þó erum við bara að tala um sem svarar „ Skortir skýra framtíðarsýn” Segir Dagur B. Eggertsson um heilbrigðisþjónustuna ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.