Læknablaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2015/101 95
Styrkur á HbA1c í blóði endurspeglar með-
alstyrk á glúkósa undanfarnar 5-12 vikur.
Hátt gildi á HbA1c er tengt aukinni áhættu
á síðkomnum fylgikvillum sykursýki.
Hækkun á blóðsykri veldur því að glúkósi
bindst við hemóglóbín og glýkósýlerað
hemóglóbín hækkar. Þessi tenging milli
glúkósa og hemóglóbíns er óafturkræf og
glýkósýlerað hemóglóbín helst hækkað í
blóði meðan rauðu blóðkornin lifa. Meðal-
líftími rauðra blóðkorna er 120 dagar. Þegar
HbA1c er mælt er sá hluti hemóglóbíns sem
er bundinn við glúkósa ákvarðaður, svo-
kallað glýkósýlerað hemóglóbín.
Hingað til hafa HbA1c mæliaðferðir
verið staðlaðar eftir bandaríska staðlinum
DCCT, sem var notaður í rannsókninni
„The Diabetes Control and Complications
Trial (DCCT)“. Þessi rannsókn, auk „UK
Prospective Diabetes Study (UKPDS)“, hafa
að miklu leyti legið til grundvallar með-
ferðarmarkmiðum við sykursýki. Aðferðir
staðlaðar eftir DCCT-rannsókninni mæla
þó ekki eingöngu glýkósýlerað hemó-
glóbín.
Til að stuðla að samræmdri alþjóðlegri
stöðlun á HbA1c-mælingum var settur á
fót vinnuhópur á vegum The International
Federation of Clinical Chemistry (IFCC).
Niðurstaða vinnuhópsins var nýr staðall
og ný viðmiðunaraðferð sem mælir HbA1c
sértækar en áður. Mælingar sem nú eru í
notkun á Íslandi nota þennan nýja staðal til
mælinga á HbA1c, svörin hafa síðan verið
umreiknuð í hefðbundin DCCT-gildi.
Á síðustu árum hafa fagfélög, svo sem
American Diabetes Association (ADA),
European Association for the Study of
Diabetes (EASD), International Diabetes
Federation (IDF), IFCC, og International
Society for Pediatric and Adolescent Diabe-
tes (ISPAD) samþykkt ályktanir þar sem
mælt er með því að nota SI-einingu (mmól
HbA1c/mól hemóglóbín) fyrir niðurstöður
mælinga á HbA1c. Flest lönd Evrópu hafa
þegar tekið upp þessa nýju einingu. Flest
Evrópulönd hafa fyrst í stað notað eldri
DCCT eininguna samhliða þeirri nýju.
Frá og með 1. mars 2015 verða niður-
stöður fyrir HbA1c frá rannsóknastofum
á Íslandi gefnar með einingunni mmól
HbA1c/mól hemóglóbín. Fyrsta árið þar
á eftir verða niðurstöður einnig gefnar í
gömlu DCCT einingunni.
Myndin sýnir sambandið milli HbA1c
mælinga, sem eru staðlaðar með DCCT-
staðlinum og hinum nýja IFCC-staðli.
Eftirfarandi formúlur eru notaðar til að
umreikna HbA1c gildin:
HbA1c (eldra gildi) (%) = (0,0915 *HbA1c nýtt gildi
(mmól/mól) ) + 2,15
HbA1c (nýtt gildi)(mmól/mól) = 10,93*HbA1c eldra
gildi (%) – 23,5
Dæmi um reiknivél á netinu:
www.diabetes.co.uk/hba1c-units-converter.
html
Viðmiðunarmörk fyrir HbA1c hjá ein-
staklingum sem ekki eru með sykursýki er
20-42 mmól/mól.
Upplýsingar fyrir einstaklinga með
sykursýki hafa verið gefnar út á Land-
spítala í samvinnu við Félag um klíníska
lífefnafræði og lækningarannsóknir á Ís-
landi.
Heimildir
1. The Diabetes Control and Complications Trial Research
Group. The effect of intensive treatment of diabetes on the
development and progression of long-term complications
in insulin-dependent diabetes mellitus. N Engl J Med
1993;329: 977-88.
2. Stratton IM, Adler AI, Neil HA, Matthews DR, Manley SE,
Cull CA, et al. Association of glycaemia with macrovas-
cular and microvascular complications of type 2 diabetes
(UKPDS 35): prospective observational study. BMJ 2000;
321: 405-11.
3. Consensus Statement on the Worldwide Standardization
of the Hemoglobin A1c Measurement. American Diabetes
Association, European Association for the Study of
Diabetes, International Federation of Clinical Chemistry
and Laboratory Medicine and International Diabetes
Federation Consensus Committee. Diabetes Care 2007;
30: 2399-400.
4. Hanas R, John G. International HBA1c Consensus
Committee. 2010 consensus statement on the worldwide
standardization of the hemoglobin A1C measurement.
Diabetes Care 2010; 33: 1903-4.
ingunn Þorsteinsdóttir
sérfræðilæknir í klínískri lífefnafræði á Landspítala
Rafn benediktsson
yfirlæknir innkirtlalækninga á Landspítala
Ísleifur Ólafsson
yfirlæknir í klínískri lífefnafræði á Landspítala
Ragnar bjarnason
yfirlæknir barnalækninga á Landspítala
HbA1c 7% verður 53 mmól/mól
– ný eining frá 1. mars 2015
F R æ ð i E F n i
For more information
about this post visit:
www.regionhalland.se/jobb
region halland
Physician
to Dermatology clinic, Hallands Hospital Varberg, Sweden.
We are looking to employ a licensed physician qualified
in dermatovenereology.