Læknablaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 30
Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í
Divide et impera
Þorbjörn jónsson, formaður
orri Þór ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
Björn Gunnarsson
Guðrún jóhanna Georgsdóttir
Hildur Svavarsdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Fulltrúi FAL er Tinna Harper Arnardóttir
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Að deila og drottna (latína: divide et
impera) er ákveðin stjórnunaraðferð og
hernaðarlist þar sem reynt er að kljúfa fólk
í mismunandi hópa og hindra að hugsan-
legir andstæðingar þínir geti tengst saman
og myndað stærri heild og þar með staðið
sterkari saman. Þessi aðferð hefur verið
óspart notuð af hernaðarsnillingum og
pólitíkusum í gegnum tíðina, meðal ann-
ars af ekki ómerkari mönnum en Napó-
leoni og Sesari segir sagan. Þegar „best“
tekst til nægir að halla sér aftur á bak og
horfa á andstæðingana berast á banaspjót
innbyrðis, stundum bókstaflega.
Þessi stjórnkænska á enn við og þarf
ekki að rekja langt aftur í tímann til að
sjá að þetta hefur einnig brunnið á okkur
læknum. Sérstaklega þegar launakjör
og önnur hagsmunamál eru í deiglunni.
Hefur það oft komið viðsemjendum vel að
geta att saman mismunandi sérgreinum
og hópum lækna. Má þar nefna sjálfstætt
starfandi læknum gegn þeim sem starfa
hjá hinu opinbera, unglæknum gegn sér-
fræðingum og svo framvegis. Aðstæður
þessara hópa geta vissulega verið afar
misjafnar og hagsmunirnir virst ólíkir svo
það er kannski ekki óeðlilegt að stundum
verði árekstrar. Það verður því að teljast
mikill sigur og fagnaðarefni fyrir stétt-
ina að í kjaradeilunni undanfarið hafa
læknar staðið saman og fylkt sér að baki
samninganefndinni og stjórn Lækna-
félagsins. Reyndar vil ég segja forsvars-
mönnum lækna í deilunni það til hróss að
sérstaklega vel hefur verið vandað til alls
undirbúnings og gott samstarf haft við
grasrótina, meðal annars með skoðana-
könnunum um óskir og forgangsröðun,
auk kynningarfunda.
Auðvitað er aldrei hægt að uppfylla
allar óskir og vissulega eru atriði sem
ræða þarf betur en vonandi leysast þau
í framtíðinni. Þetta eru þó að mínu mati
minniháttar hnökrar og það sem virðist
standa upp úr í huga allra er samheldnin
og samstaðan sem náðist. Ég finn einnig á
kollegunum að bæði ánægja og vellíðan,
auk ákveðins faglegs stolts, fylgir því að
Stjórn lÍ 2014
Hildur
Svavarsdóttir
heimilislæknir
heilsugæslustöðinni
Hvammi
hildursvavarsdottir@hotmail.com
98 LÆKNAblaðið 2015/101
hafa náð svona mikilli samstöðu á erf-
iðum tímum.
Ég tel afar mikilvægt að við læknar
höldum áfram að standa saman um þau
mál sem brenna á okkur og skjólstæðing-
um okkar. Auðvitað verða alltaf skiptar
skoðanir en þær má ræða málefnalega og
komast að samkomulagi sem gengur upp.
Við munum öll standa sterkari eftir og
það mun ekki einungis koma læknastétt-
inni til góða heldur einnig þeim sem til
okkar sækja. Þjónustan verður betri og
faglegri og samfélagið í heild hagnast á
því. Næg verkefni eru framundan og mjög
margt sem þarf að bæta til að byggja upp
heilbrigðiskerfið. Vonandi tekst að snúa
við þeirri óheillaþróun sem orðið hefur
síðastliðin ár. Auðvitað er það fyrst og
fremst á ábyrgð stjórnvalda að sjá til þess
að landsmenn fái viðunandi heilbrigðis-
þjónustu en við læknar höfum aldrei
skorast undan okkar ábyrgð og alltaf
sinnt okkar hlutverki af fagmennsku,
vandvirkni og alúð. Þar skiptir samstaða
okkar lækna miklu máli. Rödd okkar er
sterk ef við tölum einum rómi, vonandi
nægilega sterk til þess að á sé hlustað og
við náum eyrum stjórnvalda í þágu heil-
brigðiskerfisins og landsmanna.
Fyrirlesarar öldungadeildar í febrúar og mars
Stefán jón Hafstein kemur á fund okkar 4. febrúar. Segir hann þá frá upplifun sinni í Afríku.
Fyrirlesturinn nefnist Afríka - ást við aðra sýn eins og reyndar einnig nýútkomin bók hans.
Vefsíða hans er stefanjon.is
jón Kristjánsson fiskifræðingur mun svo koma til okkar 4. mars og ræða
um ýmislegt sem á döfinni er.
Fundir öldungadeildar eru jafnan fyrsta miðvikudag hvers mánaðar og hefjast kl. 16, en fyrst fáum við
okkur kaffi og vínarbrauð frá kl. 15.30.
Þeir félagar í öldungadeildinni sem hafa ekki fengið netpóst með tilkynningum um fundi eru beðnir að
senda póst til mbe@talnet.is eða tilkynna það skrifstofu LÍ og geta um netfang.