Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2015, Síða 30

Læknablaðið - 01.02.2015, Síða 30
Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í Divide et impera Þorbjörn jónsson, formaður orri Þór ormarsson, varaformaður Magnús Baldvinsson, gjaldkeri Magdalena Ásgeirsdóttir ritari Arna Guðmundsdóttir Björn Gunnarsson Guðrún jóhanna Georgsdóttir Hildur Svavarsdóttir Þórarinn Ingólfsson Fulltrúi FAL er Tinna Harper Arnardóttir Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Að deila og drottna (latína: divide et impera) er ákveðin stjórnunaraðferð og hernaðarlist þar sem reynt er að kljúfa fólk í mismunandi hópa og hindra að hugsan- legir andstæðingar þínir geti tengst saman og myndað stærri heild og þar með staðið sterkari saman. Þessi aðferð hefur verið óspart notuð af hernaðarsnillingum og pólitíkusum í gegnum tíðina, meðal ann- ars af ekki ómerkari mönnum en Napó- leoni og Sesari segir sagan. Þegar „best“ tekst til nægir að halla sér aftur á bak og horfa á andstæðingana berast á banaspjót innbyrðis, stundum bókstaflega. Þessi stjórnkænska á enn við og þarf ekki að rekja langt aftur í tímann til að sjá að þetta hefur einnig brunnið á okkur læknum. Sérstaklega þegar launakjör og önnur hagsmunamál eru í deiglunni. Hefur það oft komið viðsemjendum vel að geta att saman mismunandi sérgreinum og hópum lækna. Má þar nefna sjálfstætt starfandi læknum gegn þeim sem starfa hjá hinu opinbera, unglæknum gegn sér- fræðingum og svo framvegis. Aðstæður þessara hópa geta vissulega verið afar misjafnar og hagsmunirnir virst ólíkir svo það er kannski ekki óeðlilegt að stundum verði árekstrar. Það verður því að teljast mikill sigur og fagnaðarefni fyrir stétt- ina að í kjaradeilunni undanfarið hafa læknar staðið saman og fylkt sér að baki samninganefndinni og stjórn Lækna- félagsins. Reyndar vil ég segja forsvars- mönnum lækna í deilunni það til hróss að sérstaklega vel hefur verið vandað til alls undirbúnings og gott samstarf haft við grasrótina, meðal annars með skoðana- könnunum um óskir og forgangsröðun, auk kynningarfunda. Auðvitað er aldrei hægt að uppfylla allar óskir og vissulega eru atriði sem ræða þarf betur en vonandi leysast þau í framtíðinni. Þetta eru þó að mínu mati minniháttar hnökrar og það sem virðist standa upp úr í huga allra er samheldnin og samstaðan sem náðist. Ég finn einnig á kollegunum að bæði ánægja og vellíðan, auk ákveðins faglegs stolts, fylgir því að Stjórn lÍ 2014 Hildur Svavarsdóttir heimilislæknir heilsugæslustöðinni Hvammi hildursvavarsdottir@hotmail.com 98 LÆKNAblaðið 2015/101 hafa náð svona mikilli samstöðu á erf- iðum tímum. Ég tel afar mikilvægt að við læknar höldum áfram að standa saman um þau mál sem brenna á okkur og skjólstæðing- um okkar. Auðvitað verða alltaf skiptar skoðanir en þær má ræða málefnalega og komast að samkomulagi sem gengur upp. Við munum öll standa sterkari eftir og það mun ekki einungis koma læknastétt- inni til góða heldur einnig þeim sem til okkar sækja. Þjónustan verður betri og faglegri og samfélagið í heild hagnast á því. Næg verkefni eru framundan og mjög margt sem þarf að bæta til að byggja upp heilbrigðiskerfið. Vonandi tekst að snúa við þeirri óheillaþróun sem orðið hefur síðastliðin ár. Auðvitað er það fyrst og fremst á ábyrgð stjórnvalda að sjá til þess að landsmenn fái viðunandi heilbrigðis- þjónustu en við læknar höfum aldrei skorast undan okkar ábyrgð og alltaf sinnt okkar hlutverki af fagmennsku, vandvirkni og alúð. Þar skiptir samstaða okkar lækna miklu máli. Rödd okkar er sterk ef við tölum einum rómi, vonandi nægilega sterk til þess að á sé hlustað og við náum eyrum stjórnvalda í þágu heil- brigðiskerfisins og landsmanna. Fyrirlesarar öldungadeildar í febrúar og mars Stefán jón Hafstein kemur á fund okkar 4. febrúar. Segir hann þá frá upplifun sinni í Afríku. Fyrirlesturinn nefnist Afríka - ást við aðra sýn eins og reyndar einnig nýútkomin bók hans. Vefsíða hans er stefanjon.is jón Kristjánsson fiskifræðingur mun svo koma til okkar 4. mars og ræða um ýmislegt sem á döfinni er. Fundir öldungadeildar eru jafnan fyrsta miðvikudag hvers mánaðar og hefjast kl. 16, en fyrst fáum við okkur kaffi og vínarbrauð frá kl. 15.30. Þeir félagar í öldungadeildinni sem hafa ekki fengið netpóst með tilkynningum um fundi eru beðnir að senda póst til mbe@talnet.is eða tilkynna það skrifstofu LÍ og geta um netfang.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.