Læknablaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 32
100 LÆKNAblaðið 2015/101
„Það sem kom mér mest á á óvart í þessari
kjarabaráttu var hversu langvinn hún var
og hvað mikið þurfti til að ná samningi,“
segir Sigurveig hiklaust í upphafi samtals
okkar.
„Ég er sannfærð um að þessi samn-
ingur á eftir að koma bæði launþegum og
vinnuveitendum til góða. Samningurinn
er mjög stórt skref í nýrri stefnumörkun
um launaþróun lækna og gerir læknum
sem hyggjast ráða sig hjá ríkinu auðveld-
ara fyrir að átta sig á hver raunveruleg
kjör þeirra eru og munu verða.
Ég get þó skilið ef ekki verða allir jafn
ánægðir með samninginn en í heildina er
hann góður að mínu áliti. Það er í raun-
inni ekki hægt að semja fyrir svona stóran
hóp, þar sem eru margar og mismunandi
þarfir, þannig að allir fái jafnt upp á milli-
metra. En í samninganefndinni voru full-
trúar flestra hópa lækna sem gættu þess
að enginn gleymdist og því tel ég að tekið
hafi verið tillit til nánast allra við samn-
ingsgerðina,“ segir Sigurveig.
Hún segir að samningurinn sé mjög
ólíkur fyrri samningi og samningsgerðin
hafi verið mjög flókin og tímafrek þar sem
ráðist var í uppstokkun á launatöflum og
röðun í þær. Einnig var farið mjög náið
ofan í saumana á vaktakerfi og ýmsar
jákvæðar breytingar gerðar frá fyrri samn-
ingi í þeim efnum. „Það er mjög mikilvægt
fyrir hvern og einn að kynna sér samning-
inn vel og ganga úr skugga um að röðun í
launatöflur sé rétt. Þetta er ekki flókið en
ef fólk er í einhverri óvissu um þetta getur
það leitað til skrifstofu LÍ eftir aðstoð og
frekari upplýsingum.“
Í allri umræðu um samningagerðina
virtist megináherslan lögð á prósentu-
hækkun grunnlauna, krafan var að læknar
gætu framfleytt sér á grunnlaunum og
vaktir- og yfirvinna greidd í samræmi við
það.
„Við náðum vissulega að hækka grunn-
launin verulega hjá öllum hópum en það
var líka nauð-
synlegt að fara
ofan í saumana á
vaktagreiðslum
enda ekki eðlilegt
að fyrir vaktir og
yfirvinnu sé greitt
það sama og fyrir
dagvinnu. Við
vildum sannar-
lega hækka laun
almennra lækna
en þá verður líka
að hækka sérfræð-
ingana í sama hlut-
falli. Nánast allir almennir læknar verða
sérfræðingar og það væri mjög undarlegt
ef þeir hækkuðu ekki í launum við að
ljúka margra ára sérnámi til viðbótar við
almenna læknanámið. Þarna urðum við
að finna lausn sem allir gætu sætt sig við.
Annað sem gerði okkur líka erfitt fyrir er
að margir læknar eru með sérsamninga
sem ekki eru upp á borðinu. Við getum
ekki samið á grundvelli slíks. Við getum
eingöngu samið á grundvelli fyrirliggjandi
kjarasamnings en ekki stofnanasamninga
einstakra hópa eða einstaklinga.“
Ekkert gerðist mánuðum saman
Fyrsti samningafundur milli samninga-
nefndar LÍ og samninganefndar ríkisins
var í maí á síðasta ári. Næstu mánuði var
hver árangurslausi samningafundurinn
haldinn af öðrum og svo virtist sem ekk-
ert gerðist fyrr en langt var liðið á verk-
fallslotu LÍ í byrjun desember. Þá fyrst
komst einhver skriður á umræður og
greinilegt að samninganefnd ríkisins hafði
loks fengið umboð til að semja á vitrænan
hátt. Sigurveig segir að þetta hafi reynt á
þolinmæðina og stundum verið erfitt að
missa ekki sjónar á markmiðunum en þó
hafi tíminn ekki farið algerlega í súginn.
„Við nýttum tímann til að ræða breyt-
ingar á samningnum sem ekki snertu
beinlínis hækkanir í prósentum eða krón-
um og aurum. Við ræddum breytingar á
launatöflu og vaktafyrirkomulagi þannig
að það þyrfti í rauninni ekkert annað en
að setja inn tölurnar þegar þar að kæmi.“
Fannst henni og félögum hennar í
samninganefnd LÍ að verið væri að þreyta
þau til uppgjafar með því að draga við-
ræðurnar mánuðum saman?
„Ég gat aldrei fundið að það væri út-
hugsað af hálfu samninganefndar ríkisins
að teygja viðræðurnar svona á langinn.
Það var ekkert frekar þeirra hagur að klára
ekki viðræðurnar en þau höfðu bara ekki
meira umboð fyrr en seint og um síðir til
að semja við okkur.“
Sigurveig dregur við sig svarið þegar
spurt er hvort samhliða samningafund-
unum í Karphúsinu hafi aðrar viðræður
átt sér stað sem gáfu tilefni til bjartsýni.
„Það hjálpar alltaf að vera upplýstur og
við höfðum ágæt tengsl inn í stjórnkerfið
og fengum þaðan upplýsingar þó ekki
væri með formlegum hætti. Við vorum
þó ekki upplýstari en svo að í byrjun
janúar leit út fyrir að næsta verkfallslota
myndi skella á og við vorum alveg tilbúin
til þess. Ég efaðist samt aldrei um að við
næðum lendingu og myndum semja á
endanum.“
„Efaðist aldrei um að
við næðum lendingu“
– segir Sigurveig Pétursdóttir
formaður samninganefndar LÍ
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
„Það er mjög mikilvægt fyrir hvern og einn að kynna sér saminginn vel og ganga úr skugga
um að röðun í launatöflur sé rétt. Þetta er ekki flókið en ef fólk er í einhverri óvissu um
þetta getur það leitað til skrifstofu LÍ eftir aðstoð og frekari upplýsingum,“ segir Sigurveig
Pétursdóttir formaður samninganefndar LÍ.