Læknablaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 20
88 LÆKNAblaðið 2015/101
um þær vegna þess að þær eru ekki sýnilegar. Áráttur eru í raun
viðbrögð við þráhyggju þar sem einstaklingurinn reynir að hlut-
leysa eða draga úr áhrifum þráhyggjuhugsana. Í töflu I er listi yfir
algengar þráhyggjuhugsanir og áráttur og hversu algengar þær
eru samkvæmt ákveðnum rannsóknum.8
Samkvæmt 10. útgáfu alþjóðlega sjúkdómsflokkunarkerfisins,
International Classification of Diseases (ICD-10), þurfa að hafa
verið til staðar þráhyggjuhugsanir og/eða áráttur flesta daga
í að minnsta kosti tvær vikur til þess að einstaklingur uppfylli
greiningarskilmerki þráhyggjuárátturöskunar.9 Viðkomandi þarf
að gera sér grein fyrir því að þessar hugsanir eru sprottnar úr
hans/hennar eigin hugarheimi en ekki komið fyrir af öðru fólki
eða utanaðkomandi öflum. Þráhyggjuhugsanir og áráttur þurfa að
endurtaka sig í sífellu, vera tímafrekar og valda miklum óþæg-
indum og truflun á daglegu lífi. Skilmerkin gera einnig ráð fyrir
því að einstaklingurinn reyni árangurslaust að ýta þráhyggju-
hugsunum frá sér.
Oft líða mörg ár frá því að einkenni koma fram þar til hinn veiki
leitar sér aðstoðar og fær greiningu og sýndi ein vönduð rann-
sókn að meðaltími frá upphafi einkenna til greiningar var 17 ár.10
Þessi langa greiningartöf stafar af því að fólki finnst einkennin
vandræðaleg eða skammarleg og er gjarnan tregt til að lýsa þeim
bæði fyrir sínum nánustu og heilbrigðisstarfsfólki. Víða er einnig
ónóg þekking á þráhyggjuárátturöskun meðal fagfólks og oft er
ekki spurt sérstaklega um einkenni hennar þegar fólk leitar sér
hjálpar í fyrsta skipti.11 Slíkt getur gjarnan leitt til þess að fólk fær
ranga greiningu og óviðeigandi meðferð. Af framansögðu má því
með réttu segja að þráhyggjuárátturöskun sé að vissu leyti falinn
sjúkdómur.
Rétt er að geta þess að einkenni þráhyggjuárátturöskunar geta
verið mjög mismunandi á milli einstaklinga og einnig koma ein-
kenni þráhyggju og áráttu oft fyrir í ýmsum öðrum geðröskunum
og má þar til dæmis nefna Tourette-heilkenni, einhverfurófsrask-
anir, átraskanir og geðklofa.12 Í nýjustu útgáfu sjúkdómsflokkun-
arkerfis bandaríska geðlæknafélagsins, DSM-V (Diagnostic and
Statistical Manual of Mental Disorders V), sem birt var 2013, var
gerð sú breyting frá eldri útgáfu að þráhyggjuárátturöskun telst
ekki lengur til kvíðaraskana.13 Í stað þess er kominn nýr flokkur
sem nefnist þráhyggjuárátturöskun og skyldar geðraskanir. Í
þessum flokki eru auk þráhyggjuáráttu, hárplokkunarárátta (hair-
pulling disorder), söfnunarárátta (hoarding disorder), húðkroppunar-
árátta (skin picking disorder) og líkamslýtaröskun (body dysmorphic
disorder). Nöfn þessara raskana eru lýsandi fyrir einkennin þar
sem einstaklingar með húðkroppunar- og hárplokkunaráráttu
rífa endurtekið af sér hár eða kroppa í húð þar til þeir fá útbreidd
sár eða hárlaus svæði og í söfnunaráráttu safnar einstaklingurinn
ýmsum hlutum í miklum mæli og fyllir gjarnan híbýli sín. Í lík-
amslýtaröskun hefur einstaklingurinn þráhyggju um að einhver
hluti líkamans sé gallaður þrátt fyrir að öðrum sé augljóst að lýtið
er minniháttar eða ekki til staðar. Meginrökin fyrir þessari breyt-
ingu eru þau að þrátt fyrir að þráhyggjur og áráttur séu gjarnan
kvíðatengdar er einkennamyndin frábrugðin kvíðaröskunum og
rannsóknir síðustu ára benda til þess að þráhyggjuárátturöskun
eigi meira sameiginlegt með röskununum í hinum nýja flokki.13
Skyldleikinn felst aðallega í því að einkennamynd skarast oft hjá
þessum röskunum, sjúkdómsgangur og meðferðarsvörun er oft
svipuð og sömu fylgiraskanir koma fyrir.
Til þess að fá fram einkenni þráhyggjuárátturöskunar í við-
tali er mikilvægt að leggja fyrir einstaklinginn beinar og skýrar
spurningar um algengustu einkenni vegna þess að oft er fólk tregt
til þess að lýsa þráhyggju sinni og áráttum. Í leiðbeiningum NICE
(National Institute for Care Excellence) í Bretlandi eru tillögur að
Y F i R l i T
Mynd 1. Endurtekinn og tímafrekur handþvottur er algeng árátta í þráhyggjuáráttu-
röskun. Mynd: höfundur
Mynd 2. Röðunarárátta fylgir gjarnan þráhyggju um að hlutir í umhverfi þurfi að vera
í samhverfir eða í ákveðinni röð. Mynd: höfundur
Tafla I. Tegundir og tíðni þráhyggjuhugsana og árátta.8
Þráhyggjuhugsanir (%) Áráttur (%)
Smit og óhreinindi 38 Að gá ítrekað að einhverju 28
Ótti við að valda sjálfum sér
eða öðrum skaða 24
Þrif/þvottur 27
Finnast hlutir þurfa að vera samhverfir 10 Endurtaka athafnir 11
Líkamleg vandamál 7 Hugræn ritúöl 11
Trúarlegar hugsanir 6 Raða hlutum 6
Kynferðislegar hugsanir 6 Safna hlutum 4
Hugsanir um að safna 5 Telja 2
Ótti við að haga sér á óviðeigandi hátt 4 Ýmislegt 11