Frjáls verslun - 01.07.2005, Qupperneq 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5
D
ómsdagur, sá fyrsti í þessu mikla máli. Þau gengu
saman sem ein liðsheild í Austurstrætinu á leið í Hér-
aðsdóm Reykjavíkur við Lækjartorg. Þau voru vel
klædd, afslöppuð, vel útlítandi, brosandi og geisluðu af
sjálfstrausti.
Þannig komu sakborningarnir sex í Baugsmálinu mönnum fyrir
sjónir þegar þeir gengu ásamt verjendum sínum inn í Héraðsdóm
Reykjavíkur hinn 17. ágúst þegar Baugsmálið var dómtekið.
Fréttamenn, innlendir sem útlendir, voru á útopnu í kringum þau.
Sennilega hafa sakborningar aldrei áður komið jafn sameinaðir fyrir
dómara Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta var eins og vel útfært atriði
í kvikmynd.
ÁKÆRAN ER RÖNG
„Ákæran er röng og ég er algjörlega saklaus,“ sagði Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs, þegar Pétur Guðgeirsson dómsforseti
spurði hann hvort ákæran á hendur þeim væri rétt eða röng. Þessi
setning telst mjög líklega setning ársins í íslensku viðskiptalífi, líkt og
myndin af sakborningum saman í Austurstrætinu á leið í Héraðsdóm
telst mynd ársins.
Aðrir sakborningar svöruðu á sömu leið og Jón Ásgeir. „Ákæran
er röng, ég er saklaus,“ hljómaði þegar Pétur Guðgeirsson dómsfor-
seti spurði ákærðu, einn af öðrum, hvort ákæran á hendur þeim væri
rétt eða röng.
HIN ÁKÆRÐU
Hin ákærðu eru: Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Tryggvi
Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, Jóhannes Jónsson, stjórnar-
maður í Baugi, Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums,
Stefán Hilmarsson endurskoðandi og Anna Þórðardóttir endur-
skoðandi.
Lögmenn sakborninganna eru: Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, Einar Þór Sverrisson, verjandi Jóhann-
esar Jónssonar, Jakob R. Möller, verjandi Tryggva Jónssonar,
Kristín Edwald, verjandi Kristínar Jóhannesdóttur, og Þórunn
Guðmundsdóttir, verjandi Stefáns Hilmarssonar og Önnur Þórð-
ardóttur.
Þinghaldið í Héraðsdómi stóð aðeins yfir í 20 mínútur en
þá frestaði Pétur því til 20. október. Fyrirsjáanleg eru mikil og
ströng réttarhöld sem setja munu svip sinn á fréttir vetrarins - svo
umfangsmikið er það.
Fari málið fyrir Hæstarétt er búist við að dómur hans liggi fyrir
næsta haust. Ákæruatriðin í málinu eru 40 talsins og málsskjöl yfir
20 þúsund blaðsíður. Þau verða ekki afhent fjölmiðlum.
Eðlilega varð ekki þverfótað fyrir fréttamönnum og ljósmynd-
urum í Héraðsdómi þegar sexmenningarnir mættu ásamt lög-
mönnum sínum. Þinghaldið hófst kl. 13.30 þennan dag og hófst á
því að Jón H. B. Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra, fór yfir ákæruatriðin.
FJÖLSKIPAÐUR DÓMUR
Dómurinn er fjölskipaður. Meðdómendur Péturs eru þeir Arngrímur
Ísberg héraðsdómari og Garðar Valdimarsson, hæstaréttarlögmaður
Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Bónusfeðga, og
sá sem kærði málið til lögreglunnar, mætti við þingfestingu málsins.
SEK EÐA
SAKLAUS?
B A U G S M Á L I Ð D Ó M T E K I Ð
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON