Frjáls verslun - 01.07.2005, Page 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5
D A G B Ó K I N
A/S við sig eignarhlut upp á
3,8% og fór hlutur þess upp í
23,9% af heildarhlutafé Össurar
og þar með urðu Danirnir stærsti
hluthafinn. Sænska fjárfestinga-
félagið Industrivärden AB, sem
áður hafði verið stærsti hluthaf-
inn, svaraði fyrir sig um miðjan
ágúst og fór hlutur þess þá upp
í 23,35%. En Danirnir bættu þá
þegar um betur, keyptu meira
og lyftu eignarhlut sínum upp
í 24,58%. Þannig standa mál
núna. Það er þetta andrúmsloft
þegar danskir og sænskir keppa.
5. ágúst
Bomba sumarsins,
Andri hættir hjá KEA
Þetta mál var ein af bombum
sumarsins. „Andri Teitsson,
framkvæmdastjóri KEA, segir
starfi sínu lausu af persónulegum
ástæðum og stjórn félagsins hefur
fallist á uppsögn hans.“ Þetta
hljómaði svo sem saklaust en
þjóðfélagið „fuðraði nánast upp“
dagana á eftir þegar Andri sagði
á heimasíðu KEA að hann hefði
beðið um langt fæðingarorlof í
samræmi við lög og reglur en að
stjórnin hefði talið það óheppilegt.
Það var síðan olía á eldinn
þegar Benedikt Sigurðarson, for-
maður stjórnar KEA, sagði spurður
um málið í fréttum Stöðvar 2
að fæðingarorlof væri ekki fyrir
forstjóra: „Ég er þeirrar skoðunar
og hef verið lengi og fyrir þennan
tíma að þessi lög væru sett fyrst
og fremst til að tryggja réttar-
stöðu almennra starfsmanna.
Staða stjórnenda, sem eru á
alvörulaunum og eru lykilmenn
í sínum fyrirtækjum, er að mínu
mati allt öðruvísi og er eðlilegt að
það væri hugsanlega tekið á þeim
málum með ákvæðum í starfs-
samningum viðkomandi,“ sagði
Benedikt á Stöð 2. Og viðbrögðin
létu ekki á sér standa.
5. ágúst
Jón Björnsson til
Magasin du Nord
Það þóttu auðvitað tíðindi þegar
forstjóri Haga, Jón Björnsson,
var ráðinn forstjóri Magasin du
Nord í Danmörku frá 1. október.
Jón hefur setið þar í stjórn frá því
Baugur og fleiri keyptu fyrirtækið
undir lok síðasta árs. Við þessa
breytingu fór „domino-spilið“ í
gang hjá Högum. Finnur Árna-
son, forstjóri Hagkaupa, tók við
sem forstjóri Haga og Gunnar
Ingi Sigurðsson, rekstrarstjóri
Hagkaupa, tók við Finni sem
framkvæmdastjóri Hagkaupa.
Gunnar hefur verið rekstrarstjóri
verslana Hagkaupa frá árinu
1998.
8. ágúst
Kaupa stórt
land á Spáni
Hún var
einhvern
veginn öðru-
vísi fréttin
um að þeir
Björgólfur
Thor Björg-
ólfsson,
stjórnar-
formaður Actavis, og Róbert
Wessman, forstjóri Actavis, væru
í forsvari fyrir kaup íslenskra fjár-
festa á 2 milljóna fermetra orlofs-
húsalandi á Spáni fyrir um 8 millj-
arða króna. Landið er í nágrenni
Murica á suðausturströnd
Spánar og áætla þeir Björgólfur
og Róbert að skipuleggja þar
orlofshúsabyggð fyrir vel stæða
einstaklinga. Áætlað er að reisa
hótel auk 2.500 íbúða og íbúðar-
húsa og byggja upp golfvelli og
útivistarsvæði fyrir íþróttastaði.
Áætluð fjárþörf verkefnisins er
um 9,5 milljarðar króna. Stofnað
hefur verið hlutafélag utan um
þetta verkefni og heitir það AB
Capital. Burðarás á um fimmtung
í félaginu á móti þeim Björgólfi
Thor og Róberti. Íslandsbanki,
Straumur og Landsbankinn lána
fé til verkefnisins.
9. ágúst
Leiðir skilja -Magnús
selur í Samson
Tilkynnt var þennan dag að
Magnús Þorsteinsson, viðskipta-
félagi Björgólfs Guðmundssonar
og Björgólfs Thors Björgólfssonar
í hartnær fimmtán ár, hefði selt
þeim hluti sína í þremur eignar-
haldsfélögum; Samson eignar-
haldsfélagi ehf., Samson Global
og Topaz Equities. Leiðir þeirra
hafa þó ekki skilið að fullu því
Magnús er ennþá annar stærsti
hluthafinn í lyfjarisanum Actavis
Group á eftir Björgólfi Thor.
Það hefur verið áberandi undan-
farin misseri að áhugi Magnúsar
hefur legið í því að verða umsvifa-
mikill á sviði flutninga. Hann er
aðaleigandi Avion Group sem á
nokkur flugfélög og keypti auk
þess Eimskip af Burðarási sl.
vor.
10. ágúst
Nýr fjármálastjóri
til Actavis
Þennan dag var sagt frá því að
Mark Keatley hefði verið ráðinn
framkvæmdastjóri Actavis Group
frá 1. september og taki sæti í
framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Hann var áður framkvæmdastjóri
fjármálasviðs hjá Farmar SA í
London, leiðandi framleiðanda
á lyfjum til þriðja aðila í Evrópu.
Mark hefur MBA-gráðu frá Stan-
ford Business School. Hann er
löggiltur endurskoðandi í Bret-
landi og meðlimur í félagi endur-
skoðenda þar.
10. ágúst
Bjarni í Brauðbæ
selur
Nýir eigendur eru komnir að
Hótel Óðinsvé og Brauðbæ, en
þar hafa feðginin Bjarni Árna-
son og Þóra Bjarnadóttir ráðið
ríkjum undanfarin ár. Það er
Þórstorg ehf. sem kaupir af þeim
feðginum. Þórstorg er í eigu
Lindu Jóhannsdóttur, Ellerts Finn-
bogasonar, félags í eigu Birgis
Sigfússonar, Jóhanns Gunnars-
sonar og fjárfestingafélagsins
Gamma ehf.
Ellert er hótelstjóri. Bjarni
Árnason hóf rekstur smurbrauðs-
stofunnar Brauðbæjar árið 1964.
Andri Teitsson.
Róbert
Wessman.
Magnús Þorsteinsson.