Frjáls verslun - 01.07.2005, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5 53
í mastersnám á tölvufræðum í
City University í London. Árið
1998 var ég orðinn 63 ára og þá
var kominn tími til að hætta og
snúa sér að áhugamálunum. Ég
gíraði mig aðeins niður, hætti
í Búnaðarbankanum og tók
að mér verkefni fyrir KPMG á
árunum 1998-2000. Verkefnin
fólust aðallega í því að sinna
áreiðanleikakönnunum og ráð-
gjafaverkefnum á vegum tölvu-
mála. Eftir það lagði ég niður
störf og nýt eftirlaunaáranna við
tungumálagrúsk, golf, laxveiðar
og önnur áhugamál.“
Strik í reikninginn „Ég lenti
í því þegar ég var 42 ára að fá
heilablóðfall, æð sprakk í höfð-
inu, í vertíðarlokum ársins 1982.
Ég gekkst þá undir aðgerð, var
frá vinnu í þrjá mánuði en náði
mér smám saman aftur. Læknir
minn, Bjarni Hannesson, sagði
mér að innan við 2% þeirra sem
fengju heilablóðfall á þessum
stað, næðu sér að fullu. Ég tel
mig því vera verulega heppinn
að vera við góða heilsu nú 23
árum síðar. Í veikindum mínum
reyndust Ólafur og Helgi mér
afskaplega vel og gengu í störf
mín í fjarveru minni. Þar sannað-
ist hið fornkveðna, „sá er vinur
er í raun reynist“. Þá fann ég
virkilega fyrir því hve góðir vinir
mínir þeir eru,“ segir Guðni.
„Að hætta að vinna 65 ára
- hvað tekur við? Fjölskyldan,
fyrst og fremst og svo allir okkar
góðu vinir. Við hjónin eigum
barnaláni að fagna. Við eigum
þrjú uppkomin börn, 13 barna-
börn og tvö barnabarnabörn,
eða 18 afkomendur alls sem sjá
mér fyrir nægum verkefnum það
sem eftir er. Við eigum okkar
sælureit sem er sumarhús í
Skorradal og þangað viljum við
fara eins oft og kostur er. Nú
verða stundirnar þar fleiri. Ég á
mér ýmis áhugamál önnur, svo
sem veiði og að spila keilu. Svo
á ég við ramman reip að draga,
þar sem ég á langt í land með að
standast hinum „nestorunum“
snúning í golfi, en nú er lag að
ráða bót á því!“
Meiri sérhæfing og flóknara
starfsumhverfi „Starfsumhverfi
endurskoðandans hefur breyst
verulega á þeim tíma sem ég
hef starfað,“ segir Ólafur. „End-
urskoðunarfyrirtækin hafa
stækkað og hafa tekist á við
meiri sérhæfingu í störfum.
Áður fyrr þurftu menn að vita
allt um alla hluti sem lutu að
þjónustunni, en nú gengur það
ekki. Það koma stundum margir
starfsmenn að stærri verkefnum
og hefur hver þeirra sérþekk-
ingu á sínu sviði. Sérhæfingin
er meiri og tækjabúnaður og
möguleikar manna eru núna
allt aðrir og meiri en áður var.
Starf endurskoðandans var mjög
tímabundin álagsvinna en vinnu-
álagið er orðið jafnara en áður,“
segir Ólafur.
Gjörbreytt starf endurskoð-
enda Sveinn er á því að starf
endurskoðandans hafi breyst
heilmikið á starfsferlinum. „Þar
ber helst að nefna fjögur atriði.
Starfsumhverfið sjálft hefur
breyst mikið. Löggjöfin og allt
regluverk um fjármálafyrirtæki
er í dag ótrúlega miklu flóknari
og ítarlegri en þegar ég var að
starfa á mínum fyrstu árum sem
endurskoðandi. Alþjóðavæð-
ingin hefur gert það að verkum
að fyrirtæki starfa ekki lengur
bara í einu landi, oft mörgum í
einu. Endurskoðandinn verður
að bregðast við þeirri gífurlegu
breytingu sem af því leiðir. Einn
angi af því er að samræma vinnu-
brögð við kollegana í öðrum
löndum.
Önnur breyting er sú að
formleg uppbygging fyrirtækja
er orðin mjög flókin í mörgum
tilfellum. Þú sérð í fréttum að
A-hf á í B-hf sem á í C-hf sem á
í D-hf. Endurskoðandinn verður
að leggja fram vinnu til að endur-
skoða samstæðureikninga á milli
þeirra og getur það verið ansi
flókið mál.
Þriðja breytingin sem minn-
ast má á, er sú að viðskipta-
samningar eru orðnir miklu
flóknari í öllum greinum, ekki
síst í fjármálaheiminum. Margir
kannast orðið við svokallaða
afleiðusamninga sem gera reikn-
ingsskilin verulega flókin.
Í fjórða lagi má nefna tækn-
ina sem að sjálfsögðu hefur í
mörgum tilfellum hjálpað end-
urskoðandanum, en skapar jafn-
framt nýja áhættu. Viðskipti
gerast hraðar og eru oft pappírs-
laus,“ segir Sveinn.
Kenndir við íþróttafélög Fjór-
menningarnir eru allir kenndir
við íþróttafélög, Ólafur og Helgi
við KR, Sveinn við KA og Guðni
við Val. „KR stendur sig ekki vel
um þessar mundir í Landsbanka-
deildinni í knattspyrnu en við
látum ekki deigan síga þó illa
gangi. Það var alltaf gott sam-
komulag hérna í vinnunni, við
KR-ingar vorum með svo mikla
yfirburði og fáir sem lögðu til
atlögu við okkur,“ segir Ólafur
sem var þekktur skíðakappi hjá
KR á sínum yngri árum.
„Þegar Valur féll í fyrsta skipti
úr úrvalsdeild niður í 1. deild í
knattspyrnu, var Sveinn Jónsson
duglegur að velta mér upp úr
því, því KA hafði vanalega ekki
úr miklu að spila. Þegar tæki-
færið gafst, fullnýtti Sveinn nátt-
úrulega það. Fótboltarígurinn
stóð hins vegar samstarfi okkar
aldrei fyrir þrifum, við göntuð-
umst eðlilega með árangur
okkar félaga þegar þannig stóð
á,“ segir Guðni.
„Það væri heldur ekkert
gaman af því ef KR ynni alltaf.
Önnur íþróttafélög myndu
hreinlega hætta ef svo færi,“
segir Helgi, en hann var lengi
leikmaður í meistaraflokki
KR og landsliðsmaður í knatt-
spyrnu á árunum 1955-61. Hann
spilaði einnig handbolta með
Aftureldingu og körfubolta
með ÍR. „Þetta kallar maður
nú bara lauslæti,“ segir Ólafur,
„að stunda íþróttir með þremur
félögum“!
E N D U R S K O Ð U N
Sveinn kom
til starfa hjá
Endurskoðun
hf. 1978 en
var áður
aðstoðar-
seðlabanka-
stjóri.
„Löggjöfin og allt reglu-
verk um fjármálafyrirtæki
er í dag ótrúlega miklu
flóknari og ítarlegri en
þegar ég var að starfa á
mínum fyrstu árum sem
endurskoðandi.“
- Sveinn Jónsson.
Ólafur var
skattrann-
sóknarstjóri
áður en
hann hóf
störf hjá
Endur-
skoðun hf.
„Eftirminnilegast úr störf-
um mínum finnst mér
vera samrunarnir sem
orðið hafa á stórum fyrir-
tækjum á Íslandi.“
- Ólafur Nilsson.