Frjáls verslun - 01.07.2005, Side 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5
M
agnús Hreggviðsson, fyrrum stjórnarformaður og aðaleig-
andi Fróða, og Róbert Trausti Árnason, fyrrum forstjóri
Keflavíkurverktaka og sendiherra, hafa stofnað saman ráð-
gjafafyrirtækið Firma Consulting. Þeir segja að „þekking og
traust“ séu einkunnarorð hins nýstofnaða fyrirtæki sem sérhæfir sig í
ráðgjöf við fjárfesta og stjórnendur meðalstórra og stórra fyrirtækja.
Þeir Magnús Hreggviðsson og Róbert Trausti Árnason, segja að
lögð verði áhersla á persónulega þjónustu þar sem gæði, trúnaður
og traust verða í fyrirrúmi. Meðal þess sem Firma Consulting ehf.
tekur að sér er aðstoð við kaup og sölu á fyrirtækjum á Íslandi,
Norðurlöndum og Bandaríkjunum. Ennfremur aðstoð við samein-
ingu fyrirtækja, verðmat á fyrirtækjum, verðmat á fasteignum, við
skoðun á fjármögnun fyrirtækja, stofnun og uppstokkun.
Magnús og Róbert Trausti eru þekktir einstaklingar í viðskipta-
lífinu hér á landi og hafa víðtæka reynslu og þekkingu. Magnús
er með áratuga reynslu úr endurskoðunarstörfum, sem rekstrar-
ráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgefandi, fasteignarekandi og
starfandi stjórnarformaður í nokkrum fyrirtækjum. Róbert Trausti
hefur starfað við fyrirtækjaráðgjöf og verið í
sjálfstæðum rekstri. Var hann um nokkurra ára
skeið forstjóri Keflavíkurverktaka og starfaði um
árabil sem sendiherra í utanríkisþjónustunni og
ráðneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu og var um
skeið forsetaritari.
Traustur sameiginlegur grunnur „Við samein-
uðum krafta okkar í sumar og teljum að bak-
grunnur okkar Róberts Trausta sé sterkur þegar
kemur að ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja,“
segir Magnús. „Róbert Trausti hefur undanfarin tvö ár aðstoðað
marga í slíkum viðskiptum. Ég seldi Fróða á síðastliðnu ári og
hef síðan verið að skoða ýmsa möguleika í viðskiptalífinu sem
gætu hentað mér og varð niðurstaðan sú að fara í þessa sérhæfðu
ráðgjafaþjónustu, aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja. Ég stofnaði
18 ára gamall bókhaldsskrifstofu sem óx í meðalstórt endurskoð-
unar- og ráðgjafafyrirtæki á þeirrar tíðar mælikvarða og helgaði mig
henni í fimmtán ár. Aflaði mér m.a. löggildingar til sölu fyrirtækja,
fasteigna og skipa. Árið 1982 söðlaði ég um og fór úr hlutverki
ráðgjafa í framkvæmdahlutverkið með sölu endurskoðunar- og
ráðgjafafyrirtækis míns. Var frá 1982 í 22 ár í útgáfustarfsemi,
fasteignarekstri, „land-development“ (Smárahvammi), og ráðgjöf
við nokkra athafnamenn. Nú hef ég í hyggju að hasla mér völl á sér-
hæfðu sviði og nýta mér menntun mína, reynslu úr ráðgjafastörfum
og rekstri sem framkvæmdamaður síðastliðna
tæpa fjóra áratugi.
Þeir félagar segja að markmið Firma Consult-
ing ehf. verði að veita stjórnendum og eigendum
meðalstórra og stórra fyrirtækja vandaða þjón-
ustu: „Við viljum vera óháðir aðilar á þessum
vettvangi og teljum okkur vera með reynslu og
bakgrunn sem á að vera traustur grundvöllur fyrir
slíka þjónustu. Róbert Trausti er sem kunnugt
er með mikla reynslu í utanríkismálum sem fyrr-
verandi sendiherra og starfsmaður utanríkisþjón-
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
N Ý T T F Y R I R T Æ K I
„Við sameinuðum krafta
okkar í sumar og teljum að
bakgrunnur okkar Róberts
Trausta sé sterkur þegar
kemur að ráðgjöf við kaup
og sölu fyrirtækja,“
segir Magnús
Stofna Firma
Consulting
Magnús Hreggviðsson og Róbert Trausti Árnason
hafa stofnað ráðgjafafyrirtækið Firma Consulting.
Þetta er fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu meðalstórra og stórra fyrirtækja.