Frjáls verslun - 01.08.2006, Page 208
208 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
M I C H A E L E . P O R T E R
efla sig á sviði nýsköpunar um leið og leitað er leiða til að auka
samvirkni í efnahagslífinu á grunni heilbrigðra viðskiptahátta
og samkeppni. Hann benti einnig á mikilvægi þess að ná
tökum á hvers kyns sveiflum í hagkerfinu, m.a. í gengismálum,
í ljósi viðskiptakostnaðar og áhættu fyrir atvinnulífið. Að síð-
ustu þá væri vert fyrir Ísland að huga að stefnumörkun fyrir
landið með hliðsjón af því á hvaða sviðum það gæti skapað sér
og atvinnulífinu hérlendis sérstöðu í samfélagi þjóðanna.
Samstarf við stofnun Porters Við undirbúning á heimsókn
Porters til Íslands kom í ljós gagnkvæmur áhugi í Háskóla
Íslands og Harvard-háskóla á því að hefja formlegt samstarf
á sviði stefnumótunar og samkeppnishæfni. Þetta samstarf er
nú orðið að veruleika og tveir kennarar frá viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands munu fara til Harvard í desember
nk. til að taka þátt í vinnustofu með Porter, aðstoðarmönnum
hans og öðrum samstarfsaðilum víðs vegar að úr heiminum.
Vegna þessa samstarfs mun viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands frá og með haustinu 2007 bjóða öllum meist-
aranemum í Háskóla Íslands upp á námskeið í rekstrarhagfræði
með sérstaka áherslu á samkeppnishæfni (Microeconomics of
Competitiveness). Námskeiðið, námsefnið og kennsluaðferð-
irnar eru þróaðar af Michael E. Porter og stofnun hans.
Á námskeiðinu er samkeppnishæfni fyrirtækja, stofnana og
hagkerfa skoðuð með tækjum og tólum rekstrarhagfræði. Til-
gangurinn er að þjálfa nemendur í að greina þá þætti sem ráða
því hverjir skara fram úr í samkeppni. Námskeiðið býr nem-
endur undir að móta stefnu fyrirtækja eða opinberra aðila með
samkeppnishæfni að leiðarljósi. Námsefnið kemur að mestu
leyti frá Harvard-háskóla en liður í samstarfinu verður að þróa
námsefnið frekar með hliðsjón af íslenskum aðstæðum og upp-
lýsingum um íslensk fyrirtæki.
Það var mikill fengur að fá Michael E. Porter til Íslands.
Fyrirlestrar hans voru afar fjölsóttir og mjög gagnlegir fyrir þá
sem á hlýddu. Capacent ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækið,
sem stóð að komu Porters til landsins, á mikið lof skilið fyrir
framtakið. Háskóli Íslands tók virkan þátt í undirbúningi
heimsóknarinnar og samstarfið sem nú er hafið milli Háskóla
Íslands og Harvard-háskóla er eitt af því sem tekur við í fram-
haldi af heimsókninni.
Michael E. Porter er heiðursdoktor við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands
Til marks um það sem er í vændum verður haldin ráð-
stefna í febrúar 2007 um „samkeppnishæfni og útrás íslenskra
fyrirtækja“. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður dr. Christian
Ketels, sem er einn af samstarfsmönnum Porters í Harvard.
Ráðstefnan verður haldin á vegum MBA-námsins í Háskóla
Íslands og félags þeirra einstaklinga sem hafa lokið MBA-gráðu
frá Háskóla Íslands.
PORTER Á ÍSLANDI framhald
HELSTU RITVERK PORTERS
Porter hefur verið afkastamikill fræðimaður. Verk hans má flokka á ýmsan
hátt, en það eru einkum þrjár bækur sem hafa að geyma grundvöllinn og
kjarnann í framlagi hans:
1. Competitive Strategy:
Techniques for Analyzing Industries and Competitors,
útgefandi Macmillan - Free Press 1980.
Þessi bók markar upphafið að frægðarferli Porters. Í bókinni eru kynntar
hugmyndir hans og verkfæri til að greina rekstrarumhverfi fyrirtækja, einkum
samkeppniskraftalíkanið. Hann leggur jafnframt línurnar um það hvaða meg-
inleiðir fyrirtæki geta farið til að treysta stöðu sína í samkeppninni og ná
yfirburðum, Annars vegar er um að ræða leið lágmörkunar á kostnaði við
verðmætasköpunina og hins vegar um leið til aðgreiningar vöru og þjón-
ustu á markaðnum. Í grunnlíkani Porters gerir hann svo greinarmun á því
hvort þessum leiðum er beitt á markaði í heild eða á markaðskima. Porter
kynnir einnig til sögunar í bók sinni aðferðir til að greina samkeppnisaðila og
mögulegar aðgerðir þeirra. Einnig hvernig flokka megi fyrirtæki sem keppt
er við í stefnuhópa. Hann fjallar einnig um þróun innan atvinnugreina og að
hverju þurfi að huga við stefnumarkandi ákvarðanir.
2. Competitive Advantage:
Creating and Sustaining Superior Performance,
útgefandi Macmillan - Free Press 1985.
Þessi bók hefur að geyma kjarnann í hugmyndum Porters um samkeppnisfor-
skot og yfirburði fyrirtækja. Bókin er rökrétt framhald af fyrstu bókinni og
þráðurinn sem er tekinn upp snertir meginleiðirnar sem fyrirtæki geta farið
til að ná árangri. Meginskilaboðin lúta annars vegar að framleiðni í starfsemi
fyrirtækjanna og hins vegar að þeirri sérstöðu sem fyrirtæki ná að skapa sér
á markaði. Til að ná utan um nýtingu framleiðsluþáttanna kynnir Porter til
sögunnar virðiskeðjuna, sem nú er ómissandi verkfæri í stefnumótunarvinnu
fyrirtækja. Virðiskeðjan gefur til kynna hvað fyrirtækið gerir og í hvaða röð.
Virðiskeðjan varpar ljósi á verðmætasköpunina og kostnaðinn við starfsem-
ina. Skilningur á virðiskeðjunni er grundvallaratriði ef fyrirtækið ætlar að
keppa á grundvelli skilvirkni og skiptir sömuleiðis miklu máli ef ætlunin er
að ná forskoti á grundvelli aðgreiningar. Í bókinni er einnig fjallað um mik-
ilvægi tækni við að ná samkeppnisforskoti og hvernig velja megi keppinauta
og markhópa. Þá er fjallað um verðmætasköpun frá sjónarhóli virðiskerfis,
samstarfs og samvirkni milli sjálfstæðra aðila. Að lokum er vikið að því hvað
skipti máli í bæði sókn og vörn fyrirtækja.
3. The Competitive Advantage of Nations,
útgefandi Macmillan Press 1990.
Með þessari bók lýkur þríleik Porters um lyklana að samkeppnishæfni. Hér
er sviðið stækkað og horft á samkeppnishæfni þjóða. Í fyrstu er greint frá
þeim hugtökum og forsendum sem lagðar voru til grundvallar þeim rann-
sóknum sem bókin byggir á. Saman myndar þessi grunnur „demant“ Porters
sem varpar ljósi á samkeppnishæfni þjóða. Demanturinn gerir grein fyrir
aðstæðum í framboðshlið og framleiðsluþáttum hagkerfis þjóðarinnar og
einnig aðstæðum í eftirspurnarhlið kerfisins. Litið er til atvinnugreinanna,
skipulags þeirra og einkenna fyrirtækjanna í landinu, ekki síst með tilliti
til þeirrar samkeppni sem er innanlands. Jafnframt er horft til stoðkerfis,
atvinnugreina og fyrirtækja sem geta stutt við þá verðmætasköpun sem er
í tiltekinni atvinnugrein. Hér er fjallað um klasana sem Porter bendir á að
skipti miklu máli í samkeppnishæfni þjóða. Í bókinni er einnig vikið að hlut-
verki hins opinbera í að efla samkeppnishæfnina og skapa þær aðstæður sem
ýta undir færni fyrirtækja til að ná árangri bæði heima fyrir og erlendis.