Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 22
Stefnumótunin snýst um einföld, skýr markmið: Við setjum okkur
markmið um hvað mörg lyf verði þróuð, hvaða vöxtur eigi að nást
á hverju svæði, hvað framlegð hverrar verksmiðju eigi að vera mikil
– allt markmið sem er einfalt að mæla. Galdurinn í okkar geira er að
taka flókið fyrirtæki í flóknu starfsumhverfi og koma með einföld
lykilskilaboð sem er auðvelt að mæla og fylgja eftir.“
Er Actavis til sölu?
- Þið hafið keypt mörg fyrirtæki undanfarin ár – en sumir velta því
fyrir sér hvort Actavis sé ekki sjálft orðið álitleg söluvara. Hvernig
horfir það við þér?
„Upp úr 1999 voru margir að horfa á okkur, félagið var tiltölulega
ódýrt og oft spurst fyrir um það en undanfarin fjögur ár hefur sjaldan
verið spurt. Við erum það félag sem hefur vaxið hraðast, bæði með
yfirtökum og innri vexti – eins og er fáum við því ekki fyrirspurnir
um hvort við séum til sölu. Hins vegar er mikill áhugi á okkur meðal
erlendra fagfjárfesta sem gætu hugsað sér að verða hluthafar í félaginu
í framtíðinni.
Félagið er auðvitað skráð á markað svo það má segja að það sé
stöðugt að skipta um eigendur. Ég hef unnið með fimm stjórnar-
formönnum síðan ég tók við 1999 en breytingar á stjórn hafa ekki
breytt neinu um stefnu félagsins. Ég er annars þeirrar skoðunar
að stjórnendur eigi ekki að vera að spá alltof mikið í hverjir eiga
félagið.“
- Hvort fer meiri tími í það hjá þér að leita eftir nýjum fyrirtækjum
til að kaupa eða sinna daglegum rekstri Actavis?
„Þetta kemur í skömmtum. Það fer töluverður tími í að hugsa um
framtíðina, spá í hvort rekstrarumhverfið sé að breytast, hvar tæki-
færin – og hætturnar – liggi.
Sem dæmi um breytingar er að 1999 seldum við til þriggja aðila
sem seldu lyfin frá okkur áfram undir öðrum vörumerkjum. Þetta var
og er arðbær rekstur og framlegðin há – af hverju átti þá að vera að
sperrast við að ná meiru og fara í beina samkeppni við viðskiptavini
okkar?
Ég reyndi þá að sjá fyrir hvernig samheitalyfjaiðnaðurinn myndi
líta út eftir fimm ár, sýndist að hann myndi örugglega þjappast
saman, samkeppnin fyrir hvert lyf færi harðnandi, einstök fyrirtæki
myndu stækka og yrðu sjálfbær í að þróa ný lyf. Því yrði í framtíðinni
mikilvægt að selja lyf undir eigin vörumerkjum og geta þannig stýrt
vörunni frá framleiðslu í apótekin.
Þetta þýddi hins vegar að við færum í samkeppni við kaupendur
okkar en um leið vildum við ekki missa framlegðaráhrifin sem við
höfðum af sölunni til þeirra. Alpharma var þá eitt stærsta fyrirtækið
og við svo litlir að við gátum varla fengið fund með þeim. Við seldum
þeim og þeir voru einna fyrstir að hóta því að hætta að versla við
okkur ef við færum að selja lyf undir okkar eigin vörumerkjum – nú
höfum við keypt þá.
Ef við stefnum að því að eitthvað gerist 2008 verðum við að koma
því af stað núna því að starfsumhverfi okkar einkennist af formlegum
og flóknum ferlum. Ætli helmingur af mínum tíma fari ekki í að
hugsa um framtíðina og helmingur í daglegan rekstur. Áherslan í
daglega rekstrinum er að tryggja að lykilmarkmiðin séu að nást.“
- Er hægt að spyrja hvernig hefðbundinn vinnudagur hjá þér lítur út?
„Nei, hann er ekki til! Dagarnir ákvarðast af því sem ég vil klára þann
daginn, miðast við hvaða mál hafa forgang, skipuleggja ferðalög og
horfa fram í tímann. Ég vil líka vera sveigjanlegur til að geta stokkið
á það sem kemur upp á og endurraða þá verkefnunum.
Vinnan einkennist af ferðalögum, formlegum fundum, innanhús-
fundum og óformlegum samskiptum í síma og um tölvupóst. Áður en
við tökum ákvarðanir erum við ekki að drukkna í löngum skýrslum,
heldur drögum við saman lykilstaðreyndir og komum ákvörðunum
hratt og vel í verk.“
- Hversu oft fundarðu með lykilstjórnendum?
„Framkvæmdastjórnin samanstendur af stjórnendum tekjusviðanna
fjögurra sem eru Bandaríkin, Vestur-Evrópa, Mið- og Austur-Evr-
ópa og sala til þriðja aðila, auk þeirra sem leiða þróunarsvið, fjár-
málasvið og rekstrarsvið. Við hittumst formlega einu sinni í mánuði
en höldum svo vikulega símafundi og þá með stærri hópi sem í eru
FORSÍÐUGREIN • MAÐUR ÁRSINS
RÓBERT
Í ERLI
DAGSINS
Tekur á í ræktinni í Laugum snemma að morgni. Kominn á skrifstofuna og skoðar tölvupóstinn.
22 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6