Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 32

Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 FORSÍÐUGREIN • MAÐUR ÁRSINS Alhliða fjármálaþjónusta fyrir þig og þína E i n n t v e i r o g þ r í r 1 2 .0 7 8 www.spkef. is Keflavík - Njarðvík - Sandgerði - Garður - Grindavík - Vogar - Þú nefnir að erfiðustu ákvarðanirnar séu þær sem enginn annar sjái rökin fyrir. Er kalt á toppnum? „Ég álít ekki að það sé kalt á toppnum eins og sumir segja. Þó maður þurfi að taka erfiðar ákvarðanir virða menn ákvarðanir okkar því að við erum með samstilltan hóp stjórnenda. Þó menn séu ekki alltaf sammála er kúltúrinn þannig að menn fylkja sér að baki ákvörð- uninni og hrinda henni í framkvæmd.“ - Hvaða eiginleikum leitarðu eftir þegar þú ræður fólk? „Ég lít á reynslu, en umfram allt að fólk hafi frumkvæði, kraft og metnað, bæði fyrir sig sjálft og fyrirtækið. Okkur liggur á hér í Actavis. Í okkar umhverfi er meiri samkeppni en víðast annars staðar. Verðlækkanir í okkar geira nema um 10 prósentum á ári sem er álíka upphæð og allur hagnaðurinn. Við þurfum bæði að ná því aftur og samt að vaxa. Ég leita eftir fólki sem skilur að okkur liggur á og að það er áríðandi að klára hlutina. Ég leita að stjórnendum sem eru virkir, óhræddir að taka á hlutunum, deila út verkefnum og fylgja þeim eftir. Auðvitað verður að tryggja að allir hafi sömu framtíðarsýn, ekki dugir að margir kokkar séu að krydda sömu steikina. Við höfum lent í að ráða stjórn- endur sem byrjuðu á að byggja upp sitt eigið veldi, en þeir hafa ekki staldrað lengi við hjá okkur. Starfsfólkið er lykilatriði í hverju fyrirtæki – fyrirtæki er aldrei sterkara en þeir sem vinna hjá því.“ Vörður á vegi velgengninnar - Geturðu nefnt fimm ákvarðanir sem hafa ráðið miklu um vel- gengni Actavis undanfarin ár? „Það væri hægt að nefna margar slíkar! En ætli það sé ekki fyrst sú ákvörðun að koma lisinopril inn á þýska markaðinn í upphafi. Í öðru lagi þegar við ákváðum 1999 að þó öll salan væri til þriðja aðila og skilaði mikilli framlegð væri best að byrja að selja undir eigin merki. Í þriðja lagi eru ákvarðanir um að lækka framleiðslukostnað með fjárfestingum á Möltu og í Búlgaríu og efla þróunarstarfsemi á Ind- landi.“ Viltu aðild að ESB? - Hvaða áhrif hefði aðild Íslands í ESB á starfsemi Actavis? „Hún skiptir okkur í sjálfu sér engu máli. Með því að vera fyrir utan ESB þurfum við rannsóknarstofur þar til að fá leyfi fyrir lyf okkar sem væri flókið ef við værum ekki í EFTA, en ESB-aðild breytir ekki öllu. Veltan okkar hér heima er minni en eitt prósent af veltu Actavis. Gjaldmiðillinn skiptir heldur ekki öllu máli en það er samt óheppi- legt að vera með lítinn og sveiflukenndan gjaldmiðil. Það væri miklu heppilegra fyrir okkur ef hér væri tekin upp evra. Vaxtastigið hér er brjálæðislegt sem skiptir reyndar ekki öllu máli fyrir okkur því að getum við tekið lán í evrum eins og önnur fyrirtæki. Einstaklingar á Íslandi geta gert það líka en það er varla forsvaranlegt vegna geng- isáhættunnar. Það myndi breyta heilmiklu fyrir heimilin í landinu ef evran væri tekin upp hér. Ég vildi gjarnan sjá krónuna tengda evrunni með einhverjum hætti.“ Hátt lyfjaverð á Íslandi - Verð á lyfjum er stöðugt bitbein. Hvers vegna er verð á lyfjum á Íslandi hærra en á Norðurlöndum? „Þar koma til nokkrir þættir. Lyf frá okkur sem seljast aðeins í litlu magni á íslenska markaðnum ættu sum hver að vera allt að fimm sinnum dýrari ef þau ættu að standa undir sér miðað við það þjón- ustustig sem við veitum. Læknar vilja ekki að við hættum með þessi lyf og okkur finnst það skylda okkar að þjóna markaðnum hér. Þetta veikir samanburðinn við aðra, en við höfum upp úr stærri lyfjunum svo að í heild er framlegðin eðlileg. Við höfum bent á galla í kerfinu. Ef þeir væru lagaðir væri hægt að skila bæði neytendum og ríki sparnaði án þess að lyfjaverðið væri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.