Frjáls verslun - 01.11.2006, Page 39
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 39
D A G B Ó K I N
mánuði en í ráðningarsamningi
var fallist á að hann hlyti ríf-
legar bætur ef breytingar yrðu
á yfirstjórn sjóðsins. Björn var
borgarverkfræðingur áður en
hann var ráðinn til SPH sem
sparisjóðsstjóri.
Það tók Björn ekki svo
langan tíma að fá vinnu eftir
brotthvarfið frá sparisjóðnum
því hann var í lok janúar sl. ráð-
inn framkvæmdastjóri Saxbygg
- sem er fjárfestingarfélag í
sameiginlegri eigu Saxhóls ehf.
og Byggingarfélags Gylfa og
Gunnars (BYGG) ehf.
20. febrúar
Magnús kaupir
Gísla Jónsson
Magnús Kristinsson, útgerð-
armaður í Eyjum, sem nýlega
hafði keypt Pál Samúelsson hf.
og bílaleiguna Hertz á Íslandi,
lét ekki deigan síga við að
kaupa fyrirtæki. Sagt var frá
því að hann hefði keypt Gísla
Jónsson ehf.
27. febrúar
79 milljarðar eru
ekkert vandamál
Dagsbrún skorti ekki fé ef
marka mátti viðtal norska dag-
blaðsins Dagens Næringsliv
við Gunnar Smára Egilsson,
forstjóra Dagsbrúnar. Hann
sagði að Orkla Media hefði
gott af því að fá nýja eigendur,
enda hefði hann þá tilfinningu
eftir fund með fólki frá Orkla
Media að það hefði ekki áhuga
á að leiða félagið áfram. Hafði
blaðið eftir Gunnari Smára að
Dagsbrún hefði meiri áhuga
á dönskum fjölmiðlum í eigu
Orkla Media en norskum og
að fjármögnunin 79 milljarðar
íslenskra króna væri ekkert
vandamál fyrir Dagsbrún.
21. mars
Hallgrímur hættir
hjá Árvakri
Hallgrímur
Geirsson óskaði
eftir starfs-
lokum sem
framkvæmda-
stjóri Árvakurs,
útgáfufélags
Morgunblaðsins,
á aðalfundi fé-
lagsins. Stjórnin féllst á starfs-
Það urðu miklar sviptingar í
stjórn Straums-Burðaráss fjár-
festingabanka eftir aðalfund
félagsins sem haldinn var föstu-
daginn 3. mars. Einn stærsti
hluthafinn í félaginu, Magnús
Kristinsson, útgerðarmaður í
Eyjum, sem hefur verið varafor-
maður stjórnarinnar, náði ekki
kjöri sem varaformaður. Þess
í stað var Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, kosinn vara-
formaður stjórnarinnar og að
sögn Magnúsar var Eggert kos-
inn sem fulltrúi „litla manns-
ins“ í stjórnina.
Við skulum glugga í frétt
Morgunblaðsins með beinni
tilvitnun:
„Magnús sagði að þegar
fundurinn átti að hefjast hefði
komið í ljós að einn aðalmað-
ur af fimm, Páll Magnússon,
var fjarverandi. Hann segir að
Björgólfur Thor Björgólfsson,
formaður stjórnar, hafi greini-
lega verið búinn að ákveða fyr-
ir fundinn hver yrði varamaður
Páls og greint frá því að Þór-
unn Guðmundsdóttir lögmaður,
sem er einn af varamönnum
í stjórn, sæti fundinn í stað
Páls. Þetta hafi komið Magn-
úsi í opna skjöldu.
„Allt í einu er Þórunn sest
við stjórnarborðið en við ger-
um enga athugasemd við það.
Eggert Magnússon tekur síðan
til máls og tilkynnir að hann
sé öldungur fundarins og eigi
að setja fundinn, sem hann
og gerði. Fyrsta mál á dag-
skrá var að hann stakk upp á
Björgólfi Thor sem formanni og
voru allir samþykkir því,“ segir
Magnús.
Hann segir að þessu næst
hafi Þórunn tekið til máls á
fundin-
um, nán-
ast tilbú-
in með
skrifaða
ræðu um
að henni
þætti
eðlilegt að fulltrúi litla manns-
ins, eins og hún orðaði það,
yrði kosinn varaformaður
stjórnar Straums-Burðaráss
fjárfestingabanka. Sá hafi ver-
ið Eggert Magnússon, sem
var síðan kosinn varaformaður
gegn atkvæði Magnúsar.
„Og óska ég Eggerti Magn-
ússyni, fulltrúa litla mannsins,
innilega til hamingju með
að vera orðinn varaformaður
Straums-Burðaráss fjárfestinga-
banka. Vonast ég til þess að
hann ræki það embætti vel og
dyggilega,“ segir Magnús.
4. mars
EGGERT FULLTRÚI „LITLA MANNSINS“
Eggert Magnússon,
formaður KSÍ.
Hallgrímur
Geirsson.
Magnús
Kristinsson.