Frjáls verslun - 01.11.2006, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
Gott til síðasta dropa
Langt eftirbragð og fullkomið jafnvægi
Sagt var frá því að Baugur
Group og meðfjárfestar
hefðu lokið yfirtöku á öllu
hlutafé í bresku versl-
unarkeðjunni House of
Fraser. Heildarkaupverðið
með fjármögnun skulda
var 603 milljónir punda
eða 77 milljarðar króna.
Það var í lok ágúst sem
Baugur, ásamt meðfjár-
festum, gerði tilboð í HoF.
Meðfjárfestar Baugs
eru Don McCarthy,
sem verður stjórn-
arformaður félags-
ins, FL Group, Tom
Hunter, eigandi
West Coast Capital,
Kevin Stanford,
stofnandi Karen
Millen, Halifax Bank
of Scotland (HBOS) í
gegnum fjárfestinga-
félag sitt Uberior og
Stefan Cassar, fyrrum
fjármálastjóri
Rubicon Retail,
en hann verður
fjármálastjóri
félagsins.
John King,
sem hefur verið
forstjóri bresku versl-
unarkeðjunnar Matalan
frá árinu 2003, hefur verið
ráðinn forstjóri House of
Fraser. Hann mun hefja
störf í byrjun árs 2007.
9. nóvember
YFIRTAKAN Á HOUSE OF FRASER
House of Fraser í London.
28. nóvember
LATIBÆR FÉKK BAFTA VERÐLAUNIN
Magnús Scheving hefur
notið mikillar velgengni með
fyrirtæki sitt, Latabæ, og er
sjónvarpsefni frá fyrirtækinu
núna sýnt víða um heim.
Nýjasta skrautfjöðrin í hatt
Magnúsar var þegar sjón-
varpsþættirnir um Latabæ
fengu verðlaun bresku
kvikmyndaakademíunnar,
BAFTA, í flokki alþjóðlegs
barnaefnis.
Magnús Scheving og félagar í Latabæ.
29. október
Ekstrablaðið kallar
íslenska athafna-
menn „bófa“
Um fátt hefur verið meira
rætt en ótrúleg skrif danska
Ekstrablaðsins um íslenska
athafnamenn að undanförnu.
Þetta hefur verið umsvifamikill
greinaflokkur af hálfu blaðsins
og hefur hann gengið út á að
kalla íslenska athafnamenn
„bófa“ og hafa allir helstu for-
kólfarnir í íslensku útrásinni
fengið sinn skammt.
Meginlínan í skrifunum hefur
verið sú að íslensku fjárfest-
arnir séu óheiðarlegir og hafi
komist í álnir á vafasaman
hátt.
Langflestir íslensku fjár-
festanna, sem um hefur verið
fjallað í þessum ótrúlega
greinaflokki, hafa ekki séð
ástæðu til að svara skrifunum
– ekki talið þau svara verð.
Áður en Ekstrablaðið hóf
þessa umfjöllun sendi það frá
sér tilkynningu um að von væri
á umfangsmiklum skrifum um
„íslenska kraftaverkið“ og
hvaðan peningarnir koma.
,,Hefur þú átt viðskipti við
Sterling, Merlin eða Magasin?
Og viltu vita hvert pening-
arnir þínir fóru? Eða hefurðu
lesið Nyhedsavisen nýlega og
furðað þig á því hvaðan pen-
ingarnir koma? Kauptu þá
Ekstrablaðið,“ sagði í tilkynn-
ingu vegna greinaskrifanna.
„Við höfum komist til botns
í hinu íslenska „kraftaverki“
og fylgt peningunum frá
Rússlandi til Lúxemborgar, til
Karíbahafsins, til Íslands, til
Danmerkur. Og það er nú ekki
falleg sjón. Við munum sýna
þér viðskiptalíkan með bófum,
háttsettum stjórnmálamönnum
og tugmilljörðum króna,“ sagði
ennfremur í tilkynningunni.
Þá hampaði blaðið því í
umræddri fréttatilkynningu að
dönsku blaðamennirnir tveir
sem stóðu að umfjölluninni
hefðu báðir unnið til „danskra
blaðamannaverðlauna“ en
einnig var boðað að rússneskur
fréttaritari kæmi að skrifunum.