Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 95
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 95
Markaðsfyrirtækin
verðlaunuð.
Gunnar Már
Sigurfinnsson frá
Icelandair, Bjarney
Harðardóttir frá
Glitni og Aðalheiður
Héðinsdóttir frá
Kaffitári tóku við
viðurkenningu úr
hendi Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta
Íslands.
Hjónin Björn Kr. Leifsson og Hafdís Jónsdóttir í World
Class hlutu á dögunum verðlaun Ímark sem markaðs-
menn ársins 2006. Þetta var í 16. sinn sem verðlaunin
voru afhent, en þau hafa fyrir löngu unnið sér fastan
sess meðal íslensks markaðsfólks. Það var einróma
niðurstaða dómnefndar að eigendur hinnar þekktu lík-
amsræktarstöðvar væru vel að nafnbótinni komnir sakir
frumkvöðlaeiginleika, markaðshugsunar, staðfestu og
dugnaðar. Starfsemin hefði eflst jafnt og þétt í tímans
rás, bæði hér heima og í Danmörku, þar sem World Class
rekur fimmtán stöðvar.
„Þau hafa náð ótvíræðu forystuhlutverki á sínu sviði
og um leið stuðlað að bættri heilsu og vellíðan viðskipta-
vina,“ sagði Ingólfur Guðmundsson, formaður fulltrúaráðs
Ímark þegar verðlaunin voru afhent.
„Góður markaðsmaður þarf að hafa áræðni og vera
opinn fyrir nýjungum. Það er virkilega ánægjulegt að vinna
til þessara verðlauna, þau fela í sér jákvæða athygli gagn-
vart því sem vel er gert,“ sagði Hafdís Jónsdóttir.
Frumkvöðlar. Björn Kr. Leifsson og Hafdís Jónsdóttir í
World Class eru markaðsfólk ársins.
MARKAÐSMÁL
Ímark valdi Icelandair á dögunum sem
markaðsfyrirtæki ársins. Það var for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
sem afhenti fulltrúum Icelandair þessi
eftirsóttu verðlaun. Auk Icelandair
hlutu Glitnir og Kaffitár sérstaka
viðurkenningu. Þessi þrjú fyrirtæki,
sagði Jóhannes Ingi Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Ímarks, hafa öll náð
góðum árangri í markaðsmálum.
Farþegar Icelandair verða í ár um
1,6 milljónir sem er um 20% vöxtur
milli ára. Markaðsstarf félagsins fór
fram í 10 þjóðlöndum og aðeins 10%
þess var hér á landi. „Með miðasölu á
Netinu og nýjum áherslum í markaðs-
málum höfum við minnkað heiminn
og breytt ímynd félagsins. Í hugum
almennings erum við stórt og alþjóð-
legt fyrirtæki og þannig viljum við líka
vera,“ segir Halldór Harðarson, for-
stöðumaður markaðssviðs Icelandair.
Í dag flýgur Icelandair til 25
áfangastaða, bæði í Evrópu og vest-
anhafs. Jafnframt eru ýmsar nýj-
ungar á döfinni hjá félaginu og þar
ber hæst að snemma í júní á næsta
ári hefst reglulegt áætlunarflug til
þriggja nýrra áfangastaða, það er
Bergen, Gautaborgar og Halifax. Þá
verður áherslum í leiðakerfi félagsins
breytt á þann veg að boðið verður
upp á morgunflug frá Norðurlöndunum
og áfram um miðmorgun til
Bandaríkjanna.
Hjónin í World Class markaðsmenn ársins:
Ótvírætt
forystuhlutverk
Icelandair markaðsfyrirtæki ársins:
Minni heimur og breytt ímynd