Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 116

Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 116
Þyrping hf, Hátúni 2b, 105 Reykjavík 594 4200 594 4201 thyrping@thyrping.is www.thyrping.is sími fax netfang vefslóð þróunarfélag property development Þyrping reisir sérhannað 12000m² skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 26. Bílastæði verða annars vegar í bílageymslu undir húsinu fyrir um 200 bíla auk bílastæða við bygginguna. Húsnæðið skiptist í tvo misháa hluta, 8 hæðir vestan megin og 5 hæðir austan megin. Á jarðhæð verður verslun og þjónusta en á öðrum hæðum hússins er gert ráð fyrir skrifstofu- og þjónustustarfsemi. Húsnæðið verður sérhannað út frá þörfum framsækinna fyrirtækja með frábæru útsýni. Húsnæðið afhendist tilbúið til innréttinga vorið 2007. Á vefsíðu Þyrpingar, www.thyrping.is, er að finna frekari upplýsingar auk ítarlegra teikninga af húsinu í heild og einnig hverri hæð fyrir sig. Frekari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Þyrpingar í síma: 594 4200. Til leigu: Glæsilegt skrifstofuhúsnæði í hjarta helsta fjármálahverfis Reykjavíkur norður vestur suður austur hz et a eh f S K R I F S T O F U - O G V E R S L U N A R H Ú S leigu og þá fari menn að velta fyrir sér hvort betra sé að kaupa eða leigja en hins vegar séu allir langtímaleigusamningar verðtryggðir líkt og lánin. Lítið framboð Varðandi leigu á verslunarhúsnæði segir Björn Þorri að verslunin sækist að sjálfsögðu eftir aðgengilegri staðsetningu og áhersla sé gjarnan lögð á jarðhæðir eða húsnæði á góðum og sýnilegum stöðum. Hann gerir ráð fyrir að dýrustu fermetrarnir sem hægt sé að finna á leigumarkaði hér á landi séu í eftirsóttu verslunarhúsnæði og þá einkum og sér í lagi í minni kantinum, lítið húsnæði á góðum stað. „Ef ég ætti að útvega í dag 1.000 fermetra gott skrifstofuhúsnæði í glæsilegu húsi, að ég tali nú ekki um glæsilegt hús, 7.000-12.000 fermetra að stærð þá er mér óhætt að fullyrða að það sé nánast ekkert framboð af slíku. Hugsanlega er eitthvað í byggingu, en í dag eru þessi hús ekki á markaði. Það er skortur á góðum eignum í besta flokki.“ - Er offramboð á skrifstofu- og verslunar- húsnæði fyrirsjáanlegt nú þegar svo mikið er byggt? „Það er gaman að rifja upp hina tilfinninga- þrungnu umræðu upp úr 1990 en umræða um fasteignamarkaðinn er reyndar alltaf til- finningaþrungin hér. Þá var ekki talað um húsnæði, sem var á lausu, í fermetrum heldur hektörum. En tíminn vann ótrúlega hratt á því ástandi þótt skapast hefði nokkurt offramboð í nokkur misseri. Ég held að það hafi komið mörgum á óvart hversu fljótt greiddist úr því máli en það er eins og fast- eignamarkaðurinn og uppbyggingin komi fólki stöðugt á óvart. Það virðist hafa verið lögmál í gegnum tíðina og ég sé ekki að það sé að breytast. Ég held þó að menn séu að verða meðvitaðri um hvað fasteignamarkaðurinn er óskaplega lítið þroskaður hér, enda er hann svo ungur. Við seljum nánast aldrei eignir sem eru yfir 100 ára, en víða erlendis eru seldar eignir sem eru jafnvel 500-700 ára gamlar og jafnvel enn eldri.“ Hús atvinnulífsins er að Borgartúni 35. Það er 3.514 m2. Hörður Jónsson byggingameistari byggði húsið sem var tilbúið í maí 2002. Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög þess stóðu saman að kaupunum árið 2001. Núverandi eigendur eru Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Landssamband ísl. útvegsmanna, Samtök fiskvinnslu- stöðva, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök atvinnurek- enda í raf- og tölvuiðnaði, Samtök verslunar og þjónustu og Hlutdeild, deild Vinnudeilusjóðs SA. Auk þess eru leigjendur í húsinu Samtök fjármálafyrirtækja, Útflutningsráð Íslands, Nýsköpunarsjóður og GS1 Ísland. Í húsinu Borgartúni 27 eru þrjú stórfyrirtæki, Capacent, KPMG og Icelandic Group. Húsið var byggt á árunum 2002 og 2003 og tekið í notkun í nóvember 2003. Byggingaraðili er BYGG. Skrifstofuhúsnæðið er 7300 m² og bílageymslur o.fl. eru að auki 1400 m². Yfirleitt er húsnæðið ekki selt fullbúið heldur tilbúið til innréttingar. Algengt er að fermetrinn í svona húsnæði, og á þessu byggingarstigi, kosti á bilinu 180-230 þúsund krónur. (Framhald af bls.115) KRAFA UM BETRA SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI EN ÁÐUR 116 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.