Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.2004, Blaðsíða 11

Ægir - 01.11.2004, Blaðsíða 11
11 Ú T G Á FA „Vinnan við þessa útgáfu hefur verið einstaklega ánægjuleg og þá ekki síst að finna afar góðar und- irtektir auglýsenda, sem hafa beinlínis keppst um að fá að kynna sína vöru í þessum ritum sem eru langstærsti og útbreidd- asti vettvangur þeirra sem vilja kynna sig fyrir útgerðarfyrirtækj- um og sjómönnum,“ segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli. „Við höfum á gríðarlegri reynslu og uppsafnaðri þekkingu að byggja, en það er átttugasti ár- angurinn sem nú er að koma út,“ segir Valþór. Ritin voru áður gef- in út af Fiskifélagi Íslands. At- hygli tók síðar við starfinu og eignaðist útgáfuréttinn fyrir fjór- um árum. „Ritunum er dreift ókeypis og þann háttinn munum við hafa á héðan í frá. Það er laga- skylda að hafa almanakið um borð í öllum stærri skipum og okkur í Athygli er sönn ánægja að geta lækkað útgerðarkostnað útgerðar- manna með frídreifingu,“ segir Valþór. Nytsamlegar upplýsingar Í ritunum tveimur eru í raun allar þær upplýsingar sem sjómenn þurfa. Jón Sigurðsson, vélstjóri og trillukarl, hefur veg og vanda af Skipaskránni, en þar er að finna ítarlegar tækniupplýsingar um öll þilfarsskip, úthlutaðan kvóta, kennitölu útgerða og svo fram- vegis. Í Sjómannaalmanakinu eru síðan ýmsar nytsamlegar upplýs- ingar sem mönnum til sjós eru mikilvægar og í raun ómissandi, svo sem helstu lagabálkar sem gilda um og útgerð, töflur um sjávarföll og gang himintungla og upplýsingar um alla helstu nytjafiska á Íslandsmiðum, en í bókinni eru einmitt myndir af þeim sem Jón Baldur Hlíðberg hefur teiknað. „Þetta er gott almanak og skipaskráin er mjög vönduð,“ segir Jón Sigurðsson, aðspurður um ritin. Hann segir dreifinguna í fyrra hafa tekist einstaklega vel og engin ástæða sé að ætla að ekki takist eins til í ár. „Það er því ekki að ástæðulausu að ég hef gjarnan talað um mest lesnu bók- ina á Norður - Atlandshafinu. Ég veit raunar að það er ekki bara til sjós sem menn glugga í þessar bókum, ég veit um marga sem taka skipaskrána sem hreinan og kláran skemmtilestur og leggja bókina ekki frá sér fyrr en svefn- inn lokar brá.“ Sjómannaalmanakið og Skipaskráin 2005 komin út Ókeypis dreifing í öll skip Sjómannaalmanakið og Skipaskráin 2005 eru komin út, en þetta er alls tæplega 1200 blað- síðna verk í tveimur bindum. Athygli er útgef- andi ritanna sem dreift er um borð í öll íslensk skip og báta, utan skemmtibáta, og auk þess útgerðarfyrirtækja, hafna og fleiri slíkra - að viðbættum áskrifendum Ægis. „Þetta er gott almanak og skipaskráin er mjög vönduð,“ segir Jón Sigurðsson, ritstjóri. Nokkrir af starfsmönnum At- hygli með Sjómannaalmanakið 2005 og Skipaskrána 2005, sem samtals eru tæplega 1200 blaðsíður. Frá vinstri: Atli Rúnar Halldórsson, Ágúst Ólafsson, Gunnar E. Kvaran, Valþór Hlöðversson ritstjóri, Árni Þórður Jónsson og Jóhann Ólafur Halldórsson. Myndir: Sigurður Bogi Sævarsson. aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:39 Page 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.