Ægir - 01.11.2004, Blaðsíða 42
42
U M H V E R F I S M Á L
Skólp
Óheimilt er að losa skólp frá
skipum á hafnarsvæðum eða inn-
an netlaga. Sú skylda er sett á
hafnir að tryggja aðgengi að við-
eigandi móttökuaðstöðu fyrir
skólp. Hér er um að ræða umtals-
verða breytingu frá ákvæðum
eldri laga en þau eru fyllilega í
takt við nútíma viðhorf og kröfur
í skólpmálum og fráveitumálum
þéttbýlis.
Tilkynningaskylda
Skipum sem flytja olíu og/eða
hættulegan varning innan meng-
unarlögsögu Íslands ber nú með
góðum fyrirvara áður en lagt er úr
höfn eða komið er inn ímengun-
arlögsöguna að tilkynna Vaktstöð
siglinga um ferðir sínar, ásamt
því að gefa upp magn og tegund
farms. Þetta auðveldar viðbúnað
og flýtir fyrir viðbrögðum ef eitt-
hvað bregður útaf á siglingu um-
hverfis landið.
Íhlutun
Landhelgisgæsla Íslands fær með
þessum nýju lögum víðtækari
heimildir til íhlutunar eða að
grípa til annarra þeirra ráðstafana
sem taldar eru nauðsynlegar inn-
an mengunarlögsögu Íslands ef
talin er hætta á bráðamengun.
Gæslan hefur til dæmis rétt til
yfirtöku á stjórn skips ef fyrir-
mælum hennar er ekki fylgt. Hér
er um að ræða mikilvæga braga-
bót á þeim veruleika sem blasti
við íslenskum stjórnvöldum þeg-
ar skipsstjóri Vikartinds vanmat
stórlega aðstæður utan við Háfs-
fjöru í apríl 1997 og neitaði að
fara eftir fyrirmælum og leiðbein-
ingum Landhelgisgæslunnar og
fleiri aðila.
Eins og hér hefur verið nefnt
breyta nýju lögin nokkuð þeim
lagaramma sem áður gilti hér á
landi. Einnig má nefna að á veg-
um IMO er unnið að gerð viða-
mikilla breytinga á MARPOL
samningnum um varnir gegn
mengun sjávar frá skipum. Vegna
þessa er nauðsynlegt að endur-
skoða nokkrar reglugerðir sem
voru settar með stoð í lögum nr.
32/1986, um varnir gegn meng-
un sjávar. Þrjár nýjar reglugerðir
hafa þegar tekið gildi, nr.
792/2004, um móttöku á úrgangi
frá skipum, nr. 800/2004, um
umskipun olíu á rúmsjó, og nr.
801/2004, um varnir gegn sorp-
mengun frá skipum. Endurskoð-
un og viðbætur munu halda
áfram næstu mánuði og mun
Umhverfisstofnun upplýsa hlut-
aðeigandi eftir því sem málinu
vindur fram.
Að lokum skal bent á að farið
hefur fram gagnger endurskoðun
Ný lög um varnir gegn
mengun hafs og stranda
Þann 1. október sl. tóku gildi ný lög nr. 33/2004, um varnir gegn meng-
un hafs og stranda. Lögin leystu af hólmi eldri lög frá 1986 og eru í
þeim ýmis ný ákvæði, sjá nánar texta í ramma. Ekki er pláss hér til þess
að rekja ítarlega ákvæði laganna og er áhugasömum því bent á að frek-
ari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar
(www.ust.is). Stofnunin vill þó benda sæfarendum og útgerðum sérstak-
lega á þrjú ákvæði:
Hin nýju lög um varnir gegn mengun hafs og stranda koma í stað eldri laga frá 1986.
Þessi mynd var tekin í Reykjavíkurhöfn. Mynd: Snævarr Guðmundsson.
Kristján Geirsson.
Greinarhöfundur er
fagstjóri hjá
Umhverfisstofnun.
Pistlar um umhverfismál
Umhverfisstofnun og ritstjórn sjávarútvegsblaðsins Ægis hafa tekið
höndum saman um upplýsingagjöf til aðila í sjávarútvegi um þau
málefni sem tengist hagsmunamálum sæfarenda og útgerða með
nokkrum pistlum í næstu tölublöðum Ægis. Er vonast til þess að
þeir pistlar verði ykkur lesendur góðir til upplýsinga og fræðslu.
Undirritaður er ætíð reiðubúinn að taka við tillögum að efni til um-
fjöllunar eða almennt um varnir gegn mengun hafs og stranda hvort
sem er ofan af landi eða frá skipum.
aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:41 Page 42