Ægir - 01.11.2004, Blaðsíða 45
45
S Ö F N
Sjóminjasafnið á Húsavík er deild
í Safnahúsinu á Húsavík og þar er
útgerð og sjósókn í Suður- og
Norður-Þingeyjarsýslu gerð skil á
skemmtilegan hátt.
„Það tók tólf ár að byggja sjálft
safnahúsið, en það var síðan opn-
að fyrir tveimur árum. Hér hafði
hins vegar verið safnað munum
tengdum sjósókn síðan árið 1952.
Þeir voru í geymslum og einnig
voru munir tengdir hákarlaveið-
um geymdir á Grenjaðarstað.
Helgi Bjarnason var mikill
áhugamaður um uppbyggingu
þessa safns og sömuleiðis vann
Finnur Kristinsson, fyrsti for-
stöðumaður hér, ötullega að upp-
byggingu safnsins. Og það átti
líka við um sjómenn hér á Húsa-
vík, sem sýndu þessari sögu mik-
inn áhuga.
Sjóminjasafnið er deild í okkar
byggðasafni sem tekur til sjó-
sóknar og sjávarnytja hér á norð-
austurhorninu. Við horfum til
sjósóknar frá upphafi, en ekki síst
tuttugustu aldarinnar. Við höfum
verið að vinna að þingeyskum
sögugrunni, þar sem við skráum
öll bátamið Þingeyinga frá sýslu-
mörkum Eyjafjarðarsýslu og aust-
ur fyrir Langanes. Þessum upplýs-
ingum ætlum við síðan að koma á
tölvutækan kortagrunn þannig að
þær verði aðgengilegar safngest-
um hér,“ segir Guðni Halldórs-
son, forstöðumaður Safnahússins á
Húsavík og um leið forstöðumað-
ur Sjóminjasafnsins, sem er í sér-
stöku húsi, en áfast öðru rými
Safnahússins.
Útgerðarsaga
Einars Sörenssonar
Það vekur athygli þegar inn í Sjó-
minjasafn Þingeyinga er komið
að þar inni eru nokkrir glæsilegir
bátar, sem Guðni segir að eigi
sína ríku sögu. Þá eru áberandi
gríðarmiklar selabyssur, en óvíða
var kraftmeiri selveiði stunduð en
einmitt á Skjálfanda. Ýmsan vél-
búnað er þarna að finna og ótal
margt sem minnir á sjósókn fyrri
tíma.
„Ég geri ekki upp á milli hlut-
anna hér, en það er óhætt að segja
að margir þessara muna séu mjög
merkilegir. Ég nefni til dæmis
ýmsa muni frá Einari Sörenssyni.
Einar fleygði aldrei neinu. Hér er
til dæmis bátur Einars, sem upp-
haflega var árabátur. Á honum er
upphaflegur seglabúnaður og öll
helstu áhöldin frá því að hann
gerði út. Það má segja að hér sé
varðveitt útgerðarsaga Einars,“
segir Guðni.
Sjóminjasafnið á Húsavík:
Sjóminjasögu Þingeyinga gerð skil
Guðni Halldórsson, forstöðumaður Safnahússins á Húsavík.
Vélbúnaði er gerð skemmtileg skil á safninu.
Nokkrir glæsilegir bátar eru á safninu, sem vitna um liðna tíð.
Sjóminjasafnið á Húsavík hefur verið opið undanfarin tvö ár, en
söfnun muna sem tengjast útgerð og sjósókn í Þingeyjarsýslum
hófst á sjötta áratugnum.
Guðni Halldórsson: Ég geri ekki upp á milli hlutanna hér, en það
er óhætt að segja að margir þessara muna séu mjög merkilegir.
aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:41 Page 45