Ægir - 01.11.2004, Blaðsíða 46
46
F É L A G S M Á L
Í greinargerð með ályktuninni
segir m.a. að á undanförnum
árum hafi verið dregið úr starf-
semi Landhelgisgæslunnar, en
með flutningi hennar til Kefla-
víkurflugvallar og með auknum
verkefnum væri unnt að efla og
styrkja stofnunina. „Íslendingar
væru þar með orðnir virkir þátt-
takendur í vörnum landsins.
Einnig myndi þessi breyting
tryggja örugga leitar- og björg-
unarþjónustu og fullnægjandi eft-
irlit úr lofti á hafsvæðinu um-
hverfis Ísland,“ segir í greinar-
gerð. Og einnig segir þar: „Það er
orðið löngu tímabært að setja
Landhelgisgæslunni ný markmið
og verkefni. Einnig er kominn
tími til að endurskoða tækjakost
Landhelgisgæslunnar. Miklar
breytingar hafa verið á starfsemi
stofnunarinnar á þessum tíma,
fullnaðarsigur yfir auðlindalög-
sögunni, meiri kröfur til björgun-
ar- og umhverfismála, ógn af
hryðjuverkum o.fl. Þar sem Ís-
land er eyja í miðju Atlantshaf-
inu, njóta margar þjóðir góðs af
öflugri björgunarþjónustu og eft-
irliti. Athuga þarf hvort alþjóða-
stofnanir svo sem NATO, IMO,
ICAO, nágrannaríkin og Banda-
ríkin séu tilbúin að taka þátt í
kostnaði af þessari starfsemi.“
Leiguframsal verði takmarkað
Í annarri samþykkt skoraði for-
mannaráðstefnan á ríkisstjórnina
að koma í framkvæmd þeirri
ákvörðun sem mörkuð er í stjórn-
arsáttmálanum um að takmarka
verulega leiguframsal innan fisk-
veiðiárins.
Í greinargerð með samþykkt-
inni segir að leiga á aflaheimild-
um innan ársins sé og muni verða
megin ástæðan fyrir misferli við
launauppgjör sjómanna á meðan
hún sé heimiluð. „Sú áhersla sem
lögð var á að koma línuívilnun í
framkvæmd er í hróplegu ósam-
ræmi við það athafnaleysi sem
einkennt hefur þennan þátt
stjórnarsáttmálans. Afgerandi
takmörkun á kvótaleigu innan
fiskveiðiársins er mun stærra mál
en svo að ásættanlegt sé fyrir sjó-
menn að látið sé kyrrt liggja
árum saman. Ráðstefnan skorar
því á sjávarútvegsráðherra að
beita sér fyrir því innan ríkis-
stjórnarinnar að hrint verði í
framkvæmd þessum veigamikla
þætti stjórnarsáttmálans,“ segir
orðrétt í greinargerðinni.
Kjarasamningi fagnað
Formannaráðstefnan fjallaði um
svokallaða norðausturleið og
ályktaði að nauðsynlegt væri að
Íslendingar fylgist vel með hugs-
anlegum auknum möguleikum
okkar varðandi umskipunarhöfn í
tengslum við aukna umferð um
þessa leið.
Ráðstefnan ályktaði að hún
vildi að Samkeppnisstofnun láti
fara fram skoðun á því hvort sala
og verðlagning á fiski í beinum
viðskiptum milli aðila standist
samkeppnislög.
Þá er því fagnað að náðst hafi
frjálsir samningar milli skip-
stjórnarmanna og LÍÚ í fyrsta
skipti um árabil. „Með samn-
ingnum hefur verið stigið mikil-
vægt skref í átt að sátt milli skip-
stjórnarmanna og útvegsmanna.
Ráðstefnan telur að þótt sú sátt sé
takmörkunum háð, sé hún mikil
vægur vegvísir til nánara og heil-
brigðara samstarfs um kjaramál
skipstjórnarmanna í framtíðinni,“
segir í samþykkt formannaráð-
stefnunnar.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambandins:
Landhelgisgæslan verði flutt
til Keflavíkurflugvallar
Á formannaráðstefnu Farmanna- og fiskimannasambandsins á Siglu-
firði dagana 25. og 26. nóvember sl. var samþykkt ályktun þar sem
skorað er á ríkisstjórnina að efla og styrkja Landhelgisgæslu Íslands.
Skoðað verði gaumgæfilega hvort ekki sé raunhæft að flytja stofnunina
til Keflavíkurflugvallar og taka að sér björgunarþjónustu og eftirlit úr
lofti á hafsvæðinu umhverfis Ísland, sem bandaríski herinn á Keflavík-
urflugvelli hafi sinnt hingað til.
Frá formannaráðstefnu
Farmanna- og fiski-
mannasambandsins.
Mynd: Þórhallur Ásmundsson.
aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:41 Page 46