Ægir - 01.11.2004, Blaðsíða 53
53
S J Á VA R Ú T V E G S S A G A N
Þann 27. nóvember sl.
færði Sigurður Sigurðs-
son á Húsavík Sjó-
minjasafninu þar í bæ
höfðinglega gjöf -
tímaritið Ægi frá upp-
hafi til dagsins í dag,
innbundið og gyllt.
Gjöfin er til minningar
um föður Sigurðar og
nafna, Sigurð Sigurðs-
son, sem hefði orðið
níræður 17. október sl.
Ekki eru upplýsingar um hvort
þetta Ægis-safn er það eina sem
til er í einkaeigu, en ekki er ólík-
legt að telja að svo sé. Hér er um
að ræða ómetanlegan fjársjóð um
sögu sjávarútvegs á Íslandi á 20.
öldinni, en fyrsta tölublað Ægis
kom út í júlí 1905. Guðni Hall-
dórsson, forstöðumaður Sjóminja-
safnsins, sagði safnið ómetanlegt
fyrir Sjóminjasafnið og styrkja
það enn frekar í sessi.
Greitt fyrir bókband með Ægi
„Faðir minn, Sigurður Sigurðs-
son, átti tæki og tól til að binda
inn bækur. Meðal annars batt
hann inn fyrir mann hér á Húsa-
vík, sem hét Einar Sörensson, afi
Einars Njálssonar fyrrverandi
bæjarstjóra hér á Húsavík og nú-
verandi bæjarstjóra í Árborg. Ein-
ar Sörensson átti Ægi frá upphafi
og hann greiddi föður mínum
fyrir bókbandið með Ægi. Pabbi
þáði þetta með þökkum og
þannig eignaðist hann fyrstu ár-
ganga Ægis.
Þegar ég varð 25 ára gamall
árið 1968 gaf pabbi mér þetta
Ægis-safn í afmælisgjöf. Hann
hafði þá bundið inn öll blöðin
sem höfðu komið út til þess tíma,
gyllt bækurnar og gengið afar vel
frá þeim.“
Innbundið jafnóðum
„Það kom því ekkert annað til
greina en að halda áfram að kaupa
Ægi, bæði vegna þess að mér
fannst blaðið áhugavert, enda var
ég sjómaður til margra ára, allar
götur þar til fyrir tuttugu árum
síðan, og einnig fannst mér ekki
koma til greina að hætta að kaupa
blaðið með alla árganga fram að
þessum tíma í höndunum. Pabbi
hélt áfram að binda blaðið inn
fyrir mig fram til ársins 1979, en
hann lést síðan í ágúst 1983. Ár-
gangana frá 1980 til 1990 batt
inn gamall maður á Hvammi,
Þórarinn Þórarinsson, ættaður úr
Vogum í Kelduhverfi. Frá
1991og til dagsins í dag hefur
Adam Jónsson, vistmaður á
Hvammi, fyrrverandi bóndi í
Kelduhverfi, séð um bókbandið.
Það eina sem ég á eftir að skila
hingað er árgangur 2004, sem
verður lokið við að binda inn eftir
áramótin,“ segir Sigurður.
Áskrifandi í áratugi
Sigurður Sigurðsson skósmiður
gaf á sínum tíma verkfæri sem
hann notaðist við í sinni vinnu til
Safnahússins, sem Sjóminjasafnið
er hluti af, og segir Sigurður son-
ur hans að í sínum huga hafi ekk-
ert annað komið til greina í sín-
um huga en að þetta veglega safn
af Ægi væri best komið á Sjó-
minjasafninu. „Pabbi átti auðvit-
að heiðurinn af því að hafa byrjað
að safna blaðinu, þó svo að ég hafi
haldið því áfram.“
Sigurður hefur því keypt Ægi
undanfarna áratugi, en hættir því
núna um áramótin. Honum er
þökkuð samfylgdin og tryggð við
blaðið. Jafnframt er Sjóminjasafn-
ið á Húsavík boðið velkomið í
áskrifendahópinn, en það tekur
við áskrift Sigurðar og tryggir þar
með að Ægir verður allur til í
safninu fyrir komandi kynslóðir.
Ómetanleg gjöf til Sjóminjasafnsins á Húsavík:
Innbundinn Ægir frá upphafi
Fyrsta tölublaðið kom út í júlí 1905.
Um hundrað ára saga Ægis samankomin á hillu í Sjóminjasafninu. Sigurður Sigurðsson segist vera afar sáttur
við að þetta ómetanlega safn skuli nú vera komið í Sjóminjasafnið á Húasvík.
aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:41 Page 53