Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.2004, Síða 24

Ægir - 01.11.2004, Síða 24
24 S J Ó V E I K I Þetta segir dr. Hannes Peteren, yfirlæknir háls-, nef- og eyrna- deildar Landspítala - háskóla- sjúkrahúss, sem gerði þetta atriði að umtalsefni í fyrirlestri sem hann flutti í haust í tengslum við Slysavarnaviku sjómanna. Hann telur umræðu um málefnið mik- ilvæga og skynjar að fyrirlestur sinn hafi komið málunum á ákveðna hreyfingu. „Sjóslys verða helst þegar vont er veður. Veðr- átta hefur áhrif á skip og sjófærni þeirra. Sama gildir að sjálfsögðu um manninn; það hefur áhrif á líðan hans að vera um borð í skipi í ólgusjó. Hugsunin verður ekki jafn skýr og líkaminn starfar ekki eðlilega. Einmitt þá verður meiri hætta en ella á að frávik frá eðli- legum störfum um borð séu gerð,“ segir Hannes. Saga úr frumskóginum Fyrir um tveimur milljónum ára var mannskepnan rétt að verða til. Úti í skógunum voru hins- vegar apar - sem þurftu vegna fæðuöflunar sinnar í trjám að vera með stutta fætur og langar hend- ur. Seinna urðu skógarnir ein- hverra hluta vegna gisnari og þá þurftu aparnir að komast yfir meira svæði - og reistu sig því upp á afturfæturnar, en þannig komust þeir hraðar yfir en á fjór- um fótum. Svona þróuðust forver- ar okkar í þann upprétta mann er við þekkjum í dag. Það að ganga um uppréttur á tveimur fótum hefur marga kosti er felast í því að komast hratt yfir og leika allskyns listir - um leið og ógnun jafnvægisleysis og dettni grúfir yfir. Þetta litla, milljóna ára gamla brot úr þróunarsögu mannsins út- skýrir framhaldið talsvert, það er að manninum er það eiginlegt að standa uppréttur með báðar fætur á jörðinni og ferðalög hans um merkur jarðarinnar miðast við það hversu hratt fætur hans báru hann. Í tímans rás hefur nútíma- maðurinn tamið og gert sér hjálp- artæki til að komast hraðar yfir, svo sem á baki taminna dýra eða í kerrum aftan í þeim. Þannig ferðalög og þá sérstaklega í farar- tækjum nútímans - svo sem bíl- um, skipum eða flugvélum - eru manninum á engan hátt eiginleg. Við þessi ferðalög getur því mað- urinn fundið fyrir ónotum eða veikindum sem almennt eru köll- uð hreyfiveiki. Í flota hans hátignar Rannsóknir á sjó- eða hreyfiveiki hafa lengi verið stundaðar, forð- um tíð einkum af frönskum en þó ekki síður breskum læknum. „Þessar rannsóknir tengdust á sínum tíma nýlendustefnunni og mikilli útþenslu breska heims- veldisins. Í hernum var kappsmál flotaforingjanna að sjómönnum í flota hans hátignar liði sem best. Alveg sama var síðar uppi á ten- ingnum í Bandaríkjunum vegna geimferðaráætlunar. Líðan manna um borð í litlu boxi úti í ómælis- víddum geimsins var einn þeirra þátta sem þurfti að kanna, þekkja og geta brugðist við vandamálum þeim tengdum,“ segir Hannes Petersen. Niðurstaða þessara rannsókna - og annara sem síðar hafa komið - segir Hannes, eru þær að mönn- um sé ekki tamt að vera um borð í skipi er velkist á hafi úti. „En þeir hinsvegar venjast þessari miklu hreyfingu, oft á sjóaramáli kallað að sjóast. Aðlögunarhæfni mannsins er stór hluti af öllu eðli hans, því þegar komið er í land þarf maðurinn síðan aftur að venj- ast nýjum aðstæðum í hreyfingar- litlu umhverfi og þá myndast það sem við köllum sjóriða,“ segir Hannes. Hann segir sjóveiki ekk- ert hafa með það að gera að heila- dingullinn fari af stað. Slíkt sé þó velþekkt alþýðuskýring á Íslandi, sem á hinn bóginn eigi sér engan stað í veruleikanum. Stýrikerfið í heilanum Vegna uppruna mannsins á apa- slóðum í skóginum kallar upprétt staða hans á einskonar stýrikerfi í heilanum. Á hverri tímaeiningu berast heilanum fullkomnar upp- lýsingar um hvernig staða líkam- ans sé. Þær upplýsingar fær hann í gegnum fern skynfæri; það er augu, jafnvægisviðtæki í innra eyra, vöðvaskyn (proprioception) í neðri útlimum, baki og hálsi og það fjórða eru þrýstiviðtæki í il- inni sem skynja hvort maðurinn Dr. Hannes Petersen, yfirlæknir háls-, nef- og eyrnadeildar LSH: Telur sjóveiki vanmetna orsök slysa til sjós Getur verið að sjóveiki sé vanmetinn þáttur þegar leitað er skýringa á tíðni slysa á sjó og jafnvel sjóslysa hér við land? Hafa þeir sem rannsaka sjóslys ef til vill um of talið orsakirnar liggja í bilunum á skipunum sjálfum og búnaði þeirra, ellegar veðurfari, en ekki litið eins og vert er til annara atriða? Svo sem að mannlegi þátturinn bresti líkt og gerist oft, þá er bíl- eða flugslys verða. „Ef lækna á mann af sjóveiki, verður að taka hann frá borði og setja hann í land. Það er í raun eina lækningin. Í stuttu máli má segja að sjóveiki sé svar náttúrulega frískra ein- staklinga við sjúku umhverfi.“ Mynd: Björn Valur Gíslason Viðtal: Sigurður Bogi Sævarsson. aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:40 Page 24

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.