Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Page 81
UMSAGNIR UM BÆKUR 199 anleg. Hann spymir gegn hreifingu, sem hefur þróunarréttinn sín megin. Hann eygir aðeins möguleika til vam- ar, enga til endurreisnar hinum sundr- aða og visna þjóðarlíkama, sem hann reynir að stæla með frelsishugsjón sinni og vilja. Einnig ríkishugmynd þessa hugsjónamanns takmarkaðist við borg- armúra Aþenu. Og þó verpur harátta hans ljóma á rústir hellenaríkisins foma. Með ofurmannlegri mælsku sinni og eldmóði tókst honum að hrífa megin- hluta hellensku þjóðarinnar með sér til baráttu gegn makedoniska ofureflinu. Herinn beið ósigur, sjálfstæði Hellas var lokið, en yfir falli þess er reisn og ljómi. Höfundur minnist Demostheness að- eins stuttlega á einum stað (bls. 57— 58), en listar hans, mælskulistarinnar og þýðingar hennar í grískri menningu, getur hann ekki, nema hvað tekur til sófista og lýðskmmara. Mun mörgum þykja það vöntun. Mælskulist var snar þáttur í menningu Hellena, einkum Aþeninga. Þekking og leikni í henni var nauðsynleg til æðri mennta, en hæst mun hún hafa risið hjá Demosthenes. Höf. er ólatur að tína hnökrana úr lagðinum, um leið og hann spinnur sinn historiska þráð. I leiðréttingum hans og gagnrýni gætir mjög hinnar bjartsýnu skynsemistefnu, er hæst reis um og eftir aldamótin. Vill stundum gleymast það, sem Herder og söguskilningur róm- antikurinnar kenndu okkur, að andi hvers tímabils og hverrar menningar verði að fá að njóta sín, án þess að sagnfræðingurinn reiði stöðugt að hon- um sleggju rationalismans. Það er eins og höf. sé að taka fram í fyrir sjálfum sér. „Þukydídes segir, að hann hafi rit- að sögu sína til þess, að hún yrði ævar- andi eign allra tíma, svo að menn gætu haft vítin til þess að varast þau. En hvenær ætli mönnum lærist af dæmi annarra að hafa stjórn á pólitiskum ástríðum sínum, metnaði og öfund?“ Er littererum og pólitiskum arfþegum Sturlunga sögu ekki ætlandi að skilja tilsagnarlaust fánýtið í tilætlan Þuký- didess? „Sneypuverk“ kallar höf. það, er kristinn keisari lokaði síðasta speki- skóla Aþenu, en ekki er greint frá ástæðum né tildrögum. Ég kýs stað- reyndir sögunnar fremur en slíka dóma. I ritdómi um Austurlönd hef ég bent á þessa tilhneigingu höfundar. Á bls. 79 í Hellas er skemmtilegt dæmi um þá kímni, sem stundum blandast í umvönd- unartón hans. Umvandanir geta jafnan orkað tví- mælis, og mun höfundur því trauðla undan þeginn. Á það að minni hyggju ekki sízt við um gagnrýni hans á Platon og Aristóteles fyrir að villast út í hug- speki. Anaxagoras „bar heimspekina til Aþenuborgar. En þar gat hún af sér, fiótt í hugspekisniði vœri (leturbr. mín), sinn fegursta andans blóma ...“ í þess- ari villu óð Platon, og Aristóteles tókst „aldrei alveg að losa sig við skýringar- tilraunir hugspekinnar," eða af „klafa hugspekinnar,“ eins og höf. einnig orð- ar það (bls. 180—181). Höf. hafði þegar á bls. 145 aumkað Platon og Aristóteles, „að þeir tóku upp á því óheillaráði, er vér enn súpum seyðið af, að hugsa sér efnið algerlega andvana og andann efnisvana". Vesalings Sókrates, Platon og Aristóteles að þeir skyldu fara að ana út í hugspeki í stað þess að taka bók niður af hillu sinni og lesa í henni um „ ... was die Welt im Innersten zusammenhalt". (Faust). En mér er spurn: Hvað er náttúruspekin

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.