Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2013, Blaðsíða 10

Ægir - 01.09.2013, Blaðsíða 10
10 Þ J Ó N U S T A Traust geymsla – og öruggur flutningur alla leið! Frystigámar til sölu eða leigu Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100 AT H YG LI Eigum á lager 20 og 40 ft. frystigáma. Bjóðum einnig gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins. www.stolpigamar.is Hafðu samband! Skaginn hf. á Akranesi og Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði undirrituðu nú skömmu fyrir jól samning um nýjan vinnslubúnað fyrir upp- sjávar- og bolfisk. Þetta mun vera stærsti einstaki samning- ur sem gerður hefur verið við íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki um sölu á hátæknibúnaði til fiskvinnslu. Búnaðurinn verð- ur samkvæmt samningnum til- búinn til vinnslu þann 1. júní næstkomandi. Ingólfur Árnason er fram- kvæmdastjóri Skagans hf. Hann segir samninginn þann stærsta sem fyrirtækið hafi gert innanlands. „Við höfum þekkingu og reyndan mann- skap til þess að ljúka verkinu á réttum tíma,“ segir Ingólfur. Ingólfur og samstarfsfólk hans hjá Skaganum hf. og Þorgeir & Ellert hf. byggðu í fyrra í samvinnu við Kæli- smiðjuna Frost uppsjávar- vinnslu í Færeyjum sem ætl- uð var framleiðslu fyrir 1000 tonn á sólarhring. „Þetta gerum við best“ Verkefnið sem hér um ræðir verður unnið af Skaganum hf. og Þorgeir & Ellert hf. ásamt fjölmörgum samstarfs- aðilum á Akranesi og víðar í góðu samstarfi við starfsfólk Skinneyjar-Þinganess hf. „Við erum ákaflega stolt af því að stjórnendur og eigendur Skinneyjar-Þinganess hf. skuli treysta okkur fyrir þessu verkefni. Þetta gerum við og kunnum best,“ segir hann. „Við erum að huga enn frekar að framtíðinni. Þetta skref gerir okkur samkeppn- ishæfari,“ segir Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess hf. Hann segir að undanfarin ár hafi fyrirtækið endurnýjað flotann og með nýjum vinnslubúnaði frá Skaganum hf. verði gæði afurðanna enn meiri. Þá muni framleiðni fyr- irtækisins aukast verulega við þessa uppbyggingu og reikna megi með að afköst í fryst- ingu uppsjávarafla aukist upp í um 600 tonn á sólarhring. Samhliða þessari fjárfestingu verður húsnæði endurbætt sem og vinnslubúnaður fyrir bolfiskvinnslu. Íslenskur sjávarútvegur í fremstu röð Aðalsteinn segir mikilvægt fyrir Skinney-Þinganes og samfélagið allt, að íslenskur sjávarútvegur haldi stöðu sinni í fremstu röð á heims- vísu. Sú staða sé ekki sjálfgef- in heldur þurfi fjárfestingu til. Því kosti fyrirtækið miklu til við endurbætur sem þessar. Hann segir að íslenskur sjáv- arútvegur hafi á undanförn- um árum tekið virkan þátt í þróun vinnslubúnaðar fyrir sjávarútveginn með Skagan- um hf. Markmiðið sé ætíð að auka samkeppnishæfni Ís- lands á alþjóðamarkaði. Aðal- steinn segist hafa þá trú að íslensk stjórnvöld endurskoði lög um veiðigjöld með það að leiðarljósi að sjávarútveg- urinn geti haldið áfram að vaxa og skila samfélaginu öllu ríkulegum ávinningi. Skaginn og Skinney-Þinganes undirrita samning um smíði nýs vinnslubúnað fyrir uppsjávar- og bolfisk: Stærsti hátæknisamningur íslensks sjávarútvegsfyrirtækis Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans hf. og Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess hf., handsala samninginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.