Ægir - 01.09.2013, Blaðsíða 37
37
F I S K V I N N S L U N Á M
Nú á haustönn hafa nemend-
ur Fisktækniskólans farið víða
í vettvangsferðir til að kynna
sér sjávarútveginn. Farið var í
heimsóknir í fiskvinnslufyrir-
tæki, Hafró, Landhelgisgæsl-
una, Matvælastofnun, fiskeld-
isfyrirtæki og á fleiri staði.
Nemendur vinna síðan verk-
efni úr þessum ferðum og eru
þær gjarnan notaðar sem
stoðefni við bóknámið í skól-
anum.
Nú á vorönn fara 12 nem-
endur í vinnustaðanám og
aðrir nemendur koma inn í
skólann eftir sitt vinnustað-
anám. Þá á þriðju önn. Vel
hefur gengið að fá pláss fyrir
nema á ýmsum stöðum í
tengdum greinum. Þar má
nefna að sumir hafa verið í
fiskvinnslum, aðrir hjá Marel,
nemendur hafa unnið við sjó-
mennsku, í fiskeldi, hjá Land-
helgisgæslunni eða kynnt sér
sölumál og margt fleira.
Kunnum við þessum fyrir-
tækjum kærar þakkir fyrir.
Það er mjög ánægjulegt hve
greinin tekur nemendum vel
og eru flestir tilbúnir að
miðla af reynslu sinni og
þekkingu til þeirra.
Fyrir skömmu útskifuðust
nokkrir karlar úr viðbótar-
námi í vélstjórn. Þeir eru
búnir stunda lotunám í raf-
fræði, kælitækni og vélfræði.
Þetta verkefni er samstarfs-
verkefni Fisktækniskólans og
Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Námið er sett upp í lotum
þannig að það henti sem best
starfandi fólki í greininni. Til
dæmis hafa sjómenn verið
ánægðir með þetta fyrir-
komulag og nýtt sér það
óspart.
Raunfærnimat í fiskvinnslu
Í haust hafa Nanna Bára
Maríasdóttir sviðsstjóri og Ás-
dís Pálsdóttir verkefnastjóri
hjá Fisktækniskólanum ásamt
Jónínu Magnúsdóttur, nám-
og starfsráðgjafa hjá Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum
unnið að raunfærnimatsverk-
efni sem menntamálaráðu-
neytið styrkti. Verkefnið felst
í að gera starfsmönnum með
mikla reynslu og þekkingu í
fiskvinnslu kleift að láta meta
reynslu og þekkingu til móts
við viðurkennda námskrá
Fisktækniskólans til fram-
haldsskólaeininga meðal ann-
ars til að styrkja stöðu sína á
vinnumarkaðinum. Ferlið er
þannig að einstaklingurinn
sækir um að fara í raunfærni-
mat. Tekið er viðtal og út frá
því er metið hvort viðkom-
andi eigi erindi í matið. Eftir
það taka matsmenn við og
meta hvern og einn í þeim
áföngum sem hann hefur
merkt sig við. Þessa dagana
er verið að ljúka mati á fyrsta
hópnum og munu niðurstöð-
ur liggja fyrir nú fyrir jól. Eftir
raunfærnimatið fer náms- og
starfsráðgjafi yfir möguleika
þeirra til áframhaldandi náms
ef viðkomandi kærir sig um.
Leitað var til hagsmuna-
aðila á borð við forsvarsmenn
fiskvinnslufyrirtækja og stétt-
arfélaga við undirbúning
raunfærnimatsins. Mikill ein-
hugur er um að láta raun-
færnimatið ganga vel og að í
framtíðinni geti sem flestir
nýtt sér þá þekkingu sem
þeir hafa aflað í gegnum
starfið sitt til eininga innan
framhaldsskóla. Með því
styrkir fólk sig á vinnumark-
aðnum.
Það er mjög gott hversu
jákvæð viðbrögð skólinn hef-
ur fengið bæði innan greinar-
innar og hjá nemendum.
Sjávarútvegur er ein mikil-
vægasta atvinnugrein okkar
og því mjög mikilvægt að
sinna menntun þar.
Nanna Bára Maríasdóttir
Höfundur er sviðsstjóri
Fisktækniskólans.
Fisktækniskóli Íslands:
Fjölbreytt starf í haust
Nemandi í vettvangsnámi hjá Frostfiski.
Kennslustund í Fisktækniskólanum.