Ægir - 01.09.2013, Blaðsíða 46
46
Haldinn var í nóvember fundur
atvinnuvegaráðuneytisins og
Íslenska sjávarklasans undir
yfirskriftinni Tveir fyrir einn.
Um var að ræða sóknarfund
með sjávarútvegsráðherra um
hvernig hægt er að tvöfalda
verðmæti fisks sem berst á
land. Íslenskur sjávarútvegur
stendur frammi fyrir ótal tæki-
færum og var markmiðið með
fundinum að bregða birtu á
þau sóknarfæri sem íslenskur
sjávarútvegur stendur frammi
fyrir og mikilvægi þess að
hann búi yfir styrk og framsýni
til að láta tækifærin verða að
ábatasömum veruleika.
Orri Þór Ormarsson, lækn-
ir og framkvæmdastjóri Lipid
Pharmaceuticals sagði frá
starfsemi fyrirtækisins sem
þróar lyf sem innihalda
omega-3 fitusýrur sem fengn-
ar eru úr fiskiolíum.
„Um tvenns konar lyf er
að ræða. Annars vegar eru
það stílar sem eru ætlaðir til
notkunar við hægðatregðu.
Við vitum að það er eftir-
spurn eftir omega-3 merktum
lyfjum og við teljum okkur
hafa markaðsforskot því það
hafa ekki komið sambærileg
ný lyf á markað í 30 ár.
Hitt lyfið, sem við erum að
rannsaka og þróa, er smyrsl
sem inniheldur sömu fitusýr-
ur og er ætlað til notkunar
við ýmiss konar húðsýking-
um en fríar fitusýrur hafa
bæði bakteríu- og veirudrep-
andi áhrif og eru auk þess
bólgueyðandi.“
Fiskleður í heimsþekktum
vörumerkjum
María K. Magnúsdóttir, sölu-
stóri hjá Sjávarleðri á Sauðár-
króki, sagði að um 98% af
því sjávarleðri sem fyrirtækið
sútar, eða býr til leður úr, sé
selt til útlanda og þá aðallega
til Bandaríkjanna og Ítalíu.
„Sjávarleður keppir við
önnur fyrirtæki sem framleiða
t.d. krókódílaskinn sem er
um 400% dýrara en fiskurinn
auk þess sem framleidd eru
snákaskinn og strútaleður.
Það er miklu auðveldara að
senda fiskileðrið út um allan
heim.
Fiskileður er það nýjasta
nýtt í exótísku leðri eins og
það kallast og þó svo að við
séum búin að vera á markaði
í meira en 10 ár þá er það
ennþá nýtt á heimsmarkaði.
Íslendingar eru líka mjög
duglegir að nota fiskileðrið
og það er frábært að sjá
hvernig það hefur þróast hér
heima í gegnum tíðina og
það fólk er klárlega braut-
ryðjendur.“
María sagðist telja að
möguleikar á frekari sölu á
fiskileðri frá Íslandi væru
miklir. Phillip Lim, Alexander
Wang, Helmut Lang, Ferre-
gamo, Escada, Live&Love,
Perfect belt, Brown shoes,
Brian Atwood shoes, Nine
west, Dior, Chanel og Louis
Vuitton eru á meðal þekktra
fyrirtækja sem nota fiskileður
frá Sjávarleðri í hönnun sína.
Lyf úr þorskroði leysa
húðvandann
Kerecis þróar og framleiðir
lækningavörur sem unnar eru
úr þorskroði til meðhöndlun-
ar á vefjaskaða og húðvanda-
málum og fékk fyrirtækið ný-
lega hvatningarverðlaun LÍU.
„Allar vörur fyrirtækisins
eiga það sameiginlegt að
innihalda prótein úr þorsk-
roði ásamt því að innihalda
omega-3 fitusýrur,“ sagði Ívar
Þór Axelsson verkefnisstjóri.
Meginvörulína fyrirtækis-
ins nefnist MariGen og eru
það stoðefni unnin úr roði
sem eru búin til með því að
fjarlægja allar frumur og of-
Tveir fyrir einn
- að tvöfalda verðmæti fiskaflans
María K. Magnúsdóttir sölustjóri hjá Sjávarleðri á Sauðárkróki. Leður úr fiskroði keppir á heimsmarkaði í dag við mun dýrara leður úr krókódílaskinni.
Myndir: Svava Jónsdóttir
N Ý S K Ö P U N Í S J Á V A R Ú T V E G I