Ægir - 01.09.2013, Blaðsíða 13
13
Þegar Kristbjörn er spurð-
ur um hvort ekki sé eftirsjá
að Sigurði VE segir hann ekki
hafa neina þýðingu að ræða
um það. En hann talar um
skipið af miklum hlýhug:
„Hann skilaði okkur alltaf
heilum í höfn og það mátti
alveg treysta honum til þess
þótt slæm væru veður. Það
var svo einkennilegt að í
vondum veðrum dró hann
sjálfur úr hraðanum,“ segir
Kristbjörn.
Varði sig vel í sjógangi
Kristbjörn hætti á Sigurði VE
fyrir um þremur árum og var
skipið gert út í takmarkaðan
tíma eftir það.
„Sigurður VE var verulega
gott aflaskip en ég það er
ekki auðvelt að skýra þá
miklu velgengni sem fylgdi
skipinu. Það var lengi gert út
á togveiðar og þá var á hon-
um Auðunn Auðunsson skip-
stjóri. Síðar var honum breytt
í nótaveiðiskip og þá tók ég
við honum. Skipið var alltaf
gert út frá Vestmannaeyjum
og ég var með lögheimili
þar,“ segir Kristbjörn, sem
hefur þó alltaf átt heima á
Húsavík.
„Þetta gekk þannig fyrir
sig að þegar við vorum langt
frá landi reyndum við að fylla
skipið og landa. En upp við
landið var oft farið með ein-
hverja slatta í land ef veðrið
var slæmt og sömuleiðis ef
þörf var á því að vinna
aflann. En við vorum mest-
„Ég tók við Sigurði VE árið 1974 og var nánast þar til yfir lauk,“
segir Kristbjörn Árnason, einnig þekktur sem Bóbi, sem var skipstjóri hins fengsæla
Sigurðar VE, sem nú er horfinn út flota landsmanna. Skipinu var siglt hinsta sinni í
byrjun september til Danmerkur þar sem það var rifið niður í brotajárn.
S K I P I N