Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.2013, Qupperneq 39

Ægir - 01.09.2013, Qupperneq 39
39 S J Ó M E N N S K A N Hjallahraun 2 220 Hafnarfjörður s. 562 3833 www.asaa.is - asaa@asaa.is Wesmar bógskrúfur Hidea utanborðs- mótorar Hidrostal snigildælur TMP vökvakranar BT Marine skrúfur Halyard pústkerr Helac snúningsliðir Tides Marine ásþétti FPT bátavélarIsuzu bátavélarWesterbeke rafstöðvar og trilluvélar Doosan bátavélar Zink Gírar Dælur Ásþétti AAvélar Rafstöðvar Hljóðkútar Stýrisvélar Snúningsliðir Hosuklemmur Skrúfubúnaður Utanborðsmótorar Vélar og búnaður fyrir báta og stærri skip Mikilvægt að kaupa hagstætt inn Tvær áhafnir eru á Guð- mundi í Nesi og eru 18 manns í hvorri áhöfn. Skipið er aðallega á Djúpmiðum nær Grænlandssundi og úthaldið er frá 30-34 sólarhringum. Það er viðamikið starf að vera matreiðslumaður á frysti- togara. Auk sjálfrar matseldar- innar fer mikill tími í þrif og undirbúning. „Ég legg mikla áherslu á snyrtimennsku. Ég, eins og margir aðrir í áhöfninni, lít svo á að skipið sé okkar ann- að heimili og þar viljum við hafa snyrtilegt. Við búum um borð annan hvern mánuð allt árið um kring. Snyrtimennsk- an á líka sinn þátt í því að okkur líður öllum vel á skip- inu og hún er auðvitað nauð- synleg með tilliti til með- höndlunar á matvælum.“ Innkaup á kosti eru stór þáttur í starfi matreiðslu- mannsins og þar ríður á að vera skipulagður. Þessi hluti vinnunnar vefst þó ekki fyrir Níels Óskari enda hafði hann áður séð um slík mál til margra ára á fyrri vinnustöð- um. Undirbúningur fyrir hvern túr hefst viku áður en landfestar eru leystar. Níels Óskar pantar kostinn í gegn- um heildsala og reiknar út kostnaðinn í hörgul. „Samkvæmt samningi er mér gert að gæta hags áhafn- arinnar í innkaupum. Áhöfnin borgar fæðið sjálf en fær þó fæðisstyrk frá útgerðinni. Ég leita því hagstæðustu tilboð- anna og reyni að fá birgjana til að slást um viðskiptin. Það er um heilmiklar upphæðir að tefla.“ Rjóminn kemur sterkur inn! Níels Óskar er venjulega kominn fram um kl. 5 á morgnana og byrjar þá að baka brauð og kökur. Morg- unmaturinn þarf að vera til- búinn kl. 7.30. Boðið er upp allt þetta hefðbundna, súr- mjólk, skyr og vel af rjóma. „Menn eru viljugir í rjóm- ann ekki síst núna þegar nýj- ustu rannsóknir hafa leitt í ljós að feitmeti er ekki endi- lega fitandi heldur er söku- dólgurinn fyrst og fremst syk- ur. Þessar rannsóknir urðu til þess að menn urðu ófeimnir við neyslu á rjóma og hún hefur aukist verulega um borð í Guðmundi.“ Níels Óskar minnist þess að fyrir fáeinum árum hafi næringarfræðingar hleypt af stokkunum átaki gegn neyslu feitmetis. Rjómi og smjör hafi t.a.m. verið á hálfgerðum bannlista. Útgerðin sendi báðar áhafnir til rannsókna hjá Hjartavernd. Flestir komu vel út en átakinu var fylgt eft- ir. „Ég hef alla tíð verið á þeirri skoðun að það sé bara bull að rjómi og náttúrulegt feitmeti sé óheilsusamlegt. Pabbi er að verða níræður og hann hefur alla tíð verið ófeiminn við þennan mat og hann er við fína heilsu. Átak- ið riðlaði dálítið skipulaginu hjá mér því að ég fór eftir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.