Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2013, Side 14

Ægir - 01.09.2013, Side 14
14 ans, og voru þá búnir að draga 16 bjóð af 28. Bátarnir höfðu samband um talstöðv- arnar og ákváðu að reyna að halda hópinn heim til hafnar á Akranesi. Um klukkan hálfþrjú kom óstöðvandi leki að Birni II. Dælan hafði ekki undan, og þótt tveir hásetar færu í lífaustur hafðist ekkert við lekanum. Þegar hér var kom- ið sáu þeir á Birninum engan bát nema Fylki, sem var skammt undan. Kristinn skipstjóri náði sambandi um talstöðina við Njál Þórðarson skipstjóra á Fylki og sagði honum hvernig komið væri. Sjórinn væri kominn á móts við efri kojurnar í lúkarnum. Báturinn væri að sökkva. Bað hann Njál að koma strax til hjálpar. Skipverjarnir settu allir á sig björgunarbelti og báturinn var látinn andæfa. Fylkir var kominn á vett- vang innan fárra mínútna. Helltu þeir olíu í sjóinn, til að lægja öldurnar, og lögðu upp að Birninum að aftan á hléborða. Bilið á milli bát- anna var þá 10-15 faðmar. Kastlínu var hent yfir í Fylki, og strax dregin til baka lína frá þeim. Síðan var útbúin lykkja og línan bundin undir hendurnar á einum skipverj- anna, sem var dreginn yfir í Fylki með björgunarbelti um sig miðjan. Þannig var öllum fimm skipverjunum bjargað af Birni II. Tók björgunin að- eins hálftíma. Það stóð á endum, þegar síðasti skip- verjinn var dreginn frá borði var Björninn II tekinn að mara hálfur í kafi og braut þá á honum. Bátarnir héldu áfram ferð sinni heim og Fylkir kom að landi klukkan sjö um kvöld- ið. Vart mátti tæpara standa að björgunin lánaðist. Njáll Þórðarson og skipshöfn hans sýndu þarna einstakt snar- ræði.“ Strand norska flutningsskips- ins Bro „Það var komið kvöld 9. október 1947. Ég var þá skipstjóri á Sigurfaranum og var á leið á reknetaveiðar í Miðnessjó. Við vorum komn- ir rétt suður fyrir Garðskaga, vindinn var tekið að herða og veðurspáin sagði að vind- áttin yrði suðvestan með stormi – sjö vindstig. Það var því ekki um annað að ræða en halda aftur að landi, og bíða betra veðurs. Það gerð- um við. Smám saman tíndust hinir bátarnir líka heim. Þegar við komum til Akra- ness voru allir bátarnir komnir að landi. Þegar ég steig upp á bryggjuna stóð þar formaður Slysavarna- deildarinnar á Akranesi, Axel Sveinbjörnsson. Hann kom til mín og spurði hvort við, ég og áhöfnin á Sigurfara, treystum okkur til að fara vestur á Mýrar. Þar væri norska flutningaskipið Bro strandað. Formaðurinn sagði mér að enginn af þeim bát- um, sem komnir væru að landi, hefði treyst sér til að fara í þessa ferð, enda aug- ljóst að fárviðri væri á þess- um slóðum. Hann vissi að ég var vel kunnugur skerjagarð- inum á Mýrunum, var aðeins ellefu ára gamall þegar ég byrjaði að róa þar með föður mínum. Ég kvaðst reiðubúinn að fara, ef hann fengi leyfi út- gerðarinnar til að leggja bát- inn í þessa tvísýnu. Sömu- leiðis skyldi ég tala við skipshöfn mína, en við vor- um sjö um borð. Kallaði ég þá alla saman og sagði þeim hvað framundan væri. Kváð- ust þeir allir tilbúnir að fara með mér. Skömmu síðar kom formaður slysavarna- deildarinnar og sagðist hafa fullt samþykki útgerðarinnar – við mættum fara. Þegar hér var komið sögu var sunnanstormur, sjö vind- stig, og spáin suðvestan stormur undir morgun. Þá vissum við að það mátti eng- an tíma missa, ef takast ætti að bjarga mönnunum. Við lögðum frá bryggju og héldum sem leið liggur vestur á Mýrar. Ég var í stöð- ugu loftskeytasambandi við Loftskeytastöðina í Reykja- vík, sem var í loftskeytasam- bandi við norska skipið. Þeg- ar við fórum að nálgast Þor- móðssker sáum við hvar skipið var strandað. Það var á svipuðum slóðum og Po- urquoi Pas? hafði strandað 15. september 1936. Þórður Sigurðsson, skipshöfn hans á mótorbátnum Ægi og björg- unarsveitin á Akranesi höfðu einmitt lagt í lífshættulega björgunarferð til þess að reyna að bjarga áhöfninni á því fræga skipi. Ég bað loftskeytamanninn í Reykjavík að halda stöðugu sambandi milli okkar svo að enginn misskilningur yrði, þar sem ég gat ekki talað við skipið. Við vorum illa settir því að dýptarmælirinn var bilaður hjá okkur, engan rad- ar höfðum við og enga ljós- kastara til að lýsa upp svæð- ið. Þegar við komum að Þor- móðsskeri fórum við inn að sunnanverðu við skerið og ég bað stýrimanninn að vera frammi á með handlóð til að mæla dýpið. Á meðan á þessu stóð var skipstjórinn á norska skipinu alltaf að biðja Reykjavíkurradíó að spyrja hvort við kæmumst ekki nær skipinu. Ég fór eins langt og ég treysti mér og við létum akkerið fara þegar við vorum komnir í vindstöðu við skip- ið, þá yrði auðveldara fyrir skipverjana að róa til okkar undan vindinum. Ég bað Loftskeytastöðina að láta mig vita þegar þeir væru komnir í bátana, til þess að við gæt- um fylgst með þeim. Þeir létu okkur vita að nú væru þeir lagðir frá skipinu til okkar á tveimur bátum; skip- stjórabát með átta manns og stýrimannsbát með sjö manns. Við horfðum út í sortann og sáum brátt að annar bát- urinn, skipstjórabáturinn, var að leggjast að síðunni hjá okkur. Hinn bátinn sáum við ekki. Bað ég þá Loftskeyta- stöðina að spyrja hvort hann hefði ekki farið frá skipinu á sama tíma. Sagði ég norska skipstjóranum að fara í tal- stöðina hjá mér og fékk þá 15 F R Á S Ö G N Þórður Guðjónsson, skipstjóri á Akra- nesi. Hann lést 27. október 2005. aegirdes06_final.qxd 15.12.2006 21:27 Page 15 megnis að fiska í bræðslu nema á loðnuvertíðum þegar hrognataka stóð yfir. Það gekk vel með loðnuveiðarnar á Sigurði VE og ekki síður með síldveiðarnar.“ Siguður VE var jafnan eitt af aflahæstu skipunum í fisk- veiðiflota Íslendinga og árið 1975 setti Sigurður m.a. met er skipið landaði rúmlega 40 þúsund tonnum á árinu. Hann segir að Sigurður VE hafi verið einstaklega gott skip í sjó og hafi ávallt „varið sig vel“. „Hann var vissulega dálítið langur, eða 72 metrar. Yfir- byggingin var ekki mjög há þannig að í aftakaveðri voru Kristbjörn Árnason stýrði Sigurði VE frá árinu 1974 og fram á allra síðustu ár. „Hann varði sig alltaf vel í sjógangi,“ segir skipstjórinn fyrrverandi um sjóskipið Sigurð VE. Myndir: Óskar Pétur Friðriksson Sigurður VE á loðnumiðunum. Skipið þótti alla tíð glæsilegt. S K I P I N

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.