Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2013, Side 20

Ægir - 01.09.2013, Side 20
20 kíminn þegar hann er spurð- ur hvort þeir hafi lagt námið til hliðar til að gerast útgerð- armenn á barnsaldri. „Nei, nei. Við fórum bara út strax eftir skóla á daginn en það kannski kom fyrir að við mættum ekki í síðasta tímann!“ Hrognin drýgð með vatni Alltaf slæddust nokkrar slepp- ur í netin og safnaðist saman í innlegginu í Kaupfélaginu. „Gjarnan er miðað við að úr einni sleppu fáist svo sem eins og lítri af hrognum en hjá okkur var magnið talsvert meira. Við sáum auðvitað að það mætti drýgja hrognin með vatni og mig grunar að karlarnir í móttökunni hafi nú strax tekið eftir þessu en litið framhjá því oftast nær. En þegar við gerðumst heldur grófir í að þynna sullið þá helltu þeir vatninu af. Við komumst ekki upp með hvað sem er,“ en guttarnir fundu samt eitt ágætt ráð til að drýgja tekjurnar. Þegar þeir mættu með fötuna til að vigta lögðu þeir ullarsjóvettlingana við hliðina á hrognafötunni á vigtina en vigtarmennirnir í móttökunni hjá KEA áttuðu sig aldrei á því að inni í vell- ingunum voru grjót sem held- ur hífðu vigtina á hrognunum upp! Það var því ýmsum að- ferðum beitt. Hásetar og launadeila Áfram héldu þeir félagar upp- teknum hætti vorið 1973. Nú var að færast meiri bragur yfir útgerðina, búið að útvega betri net, dytta að bátnum og búnaðinum og svo framvegis. Stundum lögðu feðurnir Kristján Þórhallsson og Gunnar Arason þeim lið við útgerðina og kom fyrir að Kristján færi með í róður. En hvor þeirra var skipstjórinn? „Við ákváðum að hafa það til skiptis, annað árið var það Ari og síðan ég. En auðvitað var það bara út á við. Við vorum saman í þessu,“ segir Siggi en samt sem áður þurfti að gæta að skipulaginu því hásetar voru ráðnir á bátinn. „Fyrst réðum við skóla- bróður okkar úr sömu götu, Óla Vigni Jónsson, með okk- ur sem háseta og stundum kom fyrir að einhverjir úr krakkahópnum fengju að koma með. Það fylgdust allir með þessu af miklum áhuga,“ segir Sigurður og bætir við að þeir félagar hafi aldeilis verið fljótir að ná háttum og tals- máta útgerðarmanna þegar kom að áhafnarmálunum. Á árabátnum góða sem þeir félagar fengu til að stunda grásleppuveiðarnar. Hér hafa útgerðarfélagarnir tveir náð sér í svartfugl. Frá hægri: Ari Gunnarsson og Sigurður Óli Kristjánsson. Með þeim eru þrír drengir; næstur Sigurði er Jakob sem kom frá Vestmanneyjum og dvaldi um tíma á Dalvík vegna gossins, þá bræðurnir Jakob og Helgi Helgasynir. Afladagbók Útgerðar Sigga og Ara hf. hefur að geyma skemmtilegar færslur Sig- urðar á grásleppuvertíðinni árið 1973. Þessir ungu útgerðarmenn sóttu miðin á sjálfan páskadag þetta vorið og afraksturinn voru tvær grásleppur þann daginn. Æ G I S V I Ð T A L I Ð

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.